Vikan - 11.03.1993, Blaðsíða 52
TEXTIOG UÓSM.: JÓHANN GUÐNIREYNISSON
r- TRIER I ÞÝSKALANDI
SVARTAHLIDID
OG Gl l.l.W
Trier er ein þeirra borga
sem koma ókunnugum
rækilega á óvart. Helsta
verslunargatan er fjölskrúðug,
með alls kyns listamenn á víð
og dreif eftir gangstéttunum.
Undir hinu fræga Porta Nigra
stendur einn þeirra og vatns-
litar þetta svarta minnismerki
um frægðartíma Rómverja á
pappír. Selur síðan vægu
verði. Hingað koma Lúxarar í
miklum mæli til að kaupa inn
ýmsan varning enda ekki
nema svo sem eins og hálf-
tíma akstur frá höfuðborg
Lúxemborgar, Þessi þýska
borg gefur enskum og skosk-
um „kollegum" sínum lítið sem
ekkert eftir í verðlagningu.
En það var annað og meira
en lágt verð sem kom undirrit-
uðum hvað mest í opna
skjöldu þar sem hann miðaði
linsunni á hvert merkisatriðið
á fætur öðru. Eftir spássér-
ingu inn eftir hliðargötum opn-
aðist annar heimur, fortíð, nú-
tíð, jafnvel framtíð. Elsta borg
Þýskalands og sú sem státar
af hvað mestum og stærstum
minnisvörðum um yfirráð
Rómaveldis, býr yfir fjölmörg-
um leyndarmálum sögunnar,
vel varðveittum í listilega
hlöðnum híbýlum drottnara
sem létu sér ekkert fyrir brjósti
brenna. Enda var þar höfuð-
staður heimsveldisins á þess-
um slóðum meðan allt lék í
keisaralegu lyndi.
BLEIKA HÚSIÐ
Já, þeir kölluðu ekki allt
ömmu sína, þessir kallar.
Einn lét til dæmis reisa sér
krýningarsal sem nú gegnir
reyndar hlutverki lúterskrar
▲ Fjaðrafok
á verslunar-
torgi - ekki
matarfriður.
4 Kynslóöa-
biliö truflar
ekki ung-
viöiö þó
goöumlíkir
steypu-
grikkir fylg-
ist meö.
► Götulista-
maöur,
málverk og
mótíf.