Vikan - 11.03.1993, Blaðsíða 36
JGRTÓKSAMAN
ViStalsbútar úr spjalli viS Michael Jackson:
EF PABBINN ER MEÐAL
ÁHORFENDA VERÐIIR
MICHAEL VEIKUR
fannst afkvæmið víst heldur
ófrýnilegt til andlitsins og taldi
til lítils að leyna því áliti sínu,
að því er afkvæmið segir.
Michael er nú 34 ára gam-
all en hann steig fyrstu sporin
í Ijóma frægðarinnar þegar
hann var aðeins átta ára gam-
all. Þá myndaði hann ásamt
fjórum bræðrum sínum söng-
hópinn Jackson Five undir
stjórn föður þeirra, Joe. Hann
segir í viðtalinu að hæðni og
lítillækkanir föður slns hafi
gert hann að písl og ræfli með
minnimáttarkennd. Hann
þvoði sér meira að segja í
myrkri til þess að hann sæi
ekki sjálfan sig í speglinum.
HELGREIPAR JÁRNAGA
Það var sjónvarpskonan
Oprah Winfrey sem náði
stjörnunni í viðtal. Þau hittust
á ellefu hundruð hektara bú-
garði hans og þar fékk hann
útrás fyrir þessar kenndir
gagnvart föður sínum. Til
dæmis kom fram að Joe hefði
lumbrað ærlega á stráksa
kornungum áður en bræðurnir
stigu á svið til þess að
skemmta. „Mér þykir vænt um
föður minn en ég skil hann
ekki,“ sagði Michael og þar
bergmáluðu yfirlýsingar systur
hans, LaToyu, um það hvern-
ig Joe Jackson hefði alið
börnin sín upp í helgreipum
járnaga. „Líf mitt hefur (
marga staði verið ákaflega
dapurt. Pabbi barði mig og
það var erfitt að þurfa að þola
slíkar barsmíðar, sérstaklega
þegar maður var á leiðinni
upp á svið... Ég veit ekki hvort
hann langaði að eignast gullið
barn en hann var mjög
strangur, fastur fyrir og ákveð-
inn. Bara það að hann liti á
mig hvössum augum hræddi
úr mér líftóruna," sagði Mich-
ael í viðtalinu og hann er enn
dauðskelkaður þegar hann er
á leið á svið á tónleikum, sér-
staklega ef hann veit af föður
sínum meðal áhorfenda.
„Stundum kemur hann til
mín áður en ég kem fram og
þá verð ég bara veikur og
kasta upp. Þetta gerist alveg
eins núna eins og á mínum
yngri árum enda voru ung-
lingsárin mér sérstaklega erf-
ið... Ég held að allar barna-
stjörnur upplifi þetta, að þær
eru ekki þessi litlu sætu börn
sem þær.voru alltaf og allir
vilja að þær séu.“
Hann lýsir því hreinskilnis-
lega hvernig æskuárin liðu
hvert á fætur öðru í táraflaumi
og á sífelldu tónleikaflakki um
heiminn. En Michael leið hins
vegar vel á sviði. „Ég fann
hamingjuna á sviðinu því þar
fannst mér ég vera á heima-
velli og fannst að sama skapi
sárt að yfirgefa það. Þær
stundir komu að ég grét af
einsemd... Síðan sá ég
krakka vera að leika sér fyrir
utan hljóðverin og í almenn-
ingsgörðum og þá grét ég
vegna þess að ég þurfti alltaf
að fara að vinna... Maður fékk
aldrei að gera það sem önnur
börn fengu, eins og að eiga
vini, fara ( náttfatapartí og
bara vera úti með kunningj-
um... Ég átti aldrei neina vini
nema bræður mína, þeir voru
vinir mínir.“
FULLKOMNUNAR-
ÁRÁTTAN
Michael segist hafa komið sér
upp sínum eigin ævintýra-
heimi vegna þess sem hann
glataði af æskunni. „Ég upp-
lifði ekki æskuna og ég er að
bæta mér það upp núna.
Þess vegna finnst mér
skemmtilegt að hafa börn í
kringum mig,“ segir hann en á
búgarðinum er meðal annars
að finna hans eigin dýragarð
og önnur skemmtisvæði á-
samt kvikmyndahúsi, svo eitt-
hvað sé nefnt. „Fólk var vant
að segja að ég væri gömul sál
í litlum líkama, 45 ára gamall
dvergur,“ sagði Michael.
Hann sagði ennfremur að
sjúkdómurinn, sem varð til
þess að húð hans lýstist, hafi
byrjað fljótlega upp úr því að
platan Thriller kom út um
miöjan niunda áratuginn.
„Það er ekkert sem ég get
gert við þessu. Ég ætla ekki
að fara að segja hér lækn-
▲ Hér lætur Michael sig hafa þaö aö lita ( spegil en alla
jafna foröast hann slíka gripi. Aöallega er þaö vegna þess
aö pabbi hans hæddi hann og stríddi, fannst hann Ijótur og
► Michael
áriö 75.
Hann er aö
upplitast af
sjúkdómi.
Pabbi Michaels Jackson
stríddi honum svo mikið
á útlitinu að Michael
þorði ekki að líta í spegil. Og í
ofanálag varð hann að þola
barsmíðar af hálfu föður síns.
Þetta og fleira kom nýlega
fram í opinskáu viðtali við
Michael Jackson. Föðurnum
36 VIKAN 5.TBL.1993