Vikan - 11.03.1993, Qupperneq 16
TEXTI: LOFTUR ATLl EIRÍKSSON
llniversal kvikmyndaveriö er í Studio
City, hverfinu handan við Hollywood-
hæöirnar í Los Angeles. Svæöiö er á
stærö viö alþjóöaflugvöll og þar er
tekinn fjöldi kvikmynda og sjónvarps-
þátta. Ymsar þekktar sviösmyndir og
fígúrur úr kvikmyndasögunni eru
þarna samankomnar og milljónir
feróamanna heimsækja svæóiö ár-
lega til aö forvitnast um hvernig
kvikmyndir veröa til. Hópur þeirra
var aó leggja upp í rútuferð tii aö
komast í nánari snertingu viö King
Kong og risahákarlinn úr Jaws mynd-
unum þegar blaöamaöur Vikunnar
var á ferö í kvikmyndaverinu á dög-
unum.
Erindi mitt var að hitta að máli Joe Dante, leik-
stjóra myndarinnar Matinee sem frumsýnd var í
Hollywood fyrr í þessum mánuði. Myndir hans eru
flestar gáskafullar hrollvekjur og hann er sennilega
þekktastur fyrir Gremlins myndirnar og myndina
Innerspace sem gerist að miklu leyti innan í
mannslíkamanum.
Sögusvið Matinee er Key West í Flórída á sjö-
unda áratugnum þegar Kúbudeilan var í hámarki
og flestar bandarískar fjölskyldur voru með kjarn-
orkubyrgi í bakgarðinum. Myndin er í rauninni tvær
kvikmyndir í einni því hún segir frá leikstjóra svo-
nefndra B-kvikmynda sem kemur í bæinn til að
sýna nýjustu mynd sína, Mant eða Maður/maur, og
samskiptum hans við bæjarbúa. Stór hluti Matinee
gerist síðan í kvikmyndasalnum þar sem áhorfend-
ur eru á svokallaðri matinee sýningu sem sviþar til
þrjúsýningar í íslenskum kvikmyndahúsum. John
Goodman (King Ralph, Barton Fink, Raising
Arizona) fer með hlutverk leikstjórans Woolsey og
hann notar alls konar heimatilbúin trikk eins og „at-
omo-vision“ (kjarnorkusýn) og „rumblerama" (hoss
og hristingur) til að gera áhrif myndarinnar sem
skelfilegust.
Skrifstofa Joes Dante er eins og safn fyrir
B-myndir og á veggjunum eru plaköt úr alls konar
skrímsla- og ófreskjumyndum. Hann er hlýlegur í
viðmóti en minnir einhvern veginn á ofvaxið barn
sem lifir í eigin ævintýraheimi. Við fáum okkur sæti
umkringdir brúðunum úr Gremlins og í gegnum
rimlagardínurnar sé ég þegar næsti ferðamanna-
hópur fer um borð í rútuna að skoða kvikmyndaver-
ið. Við byrjum á að tala stuttlega um viðtalsþátt
með Michael Jackson sem var á dagskrá í sjón-
varpinu daginn fyrir fund okkar og það verður
kveikjan að
fyrstu spurningu
minni.
-Margir líta á
Michael Jackson
sem frík og það
er mikið af furðu-
verum í mynd-
unum þínum. Getur þú útskýrt
fyrir mér hvaðan sá áhugi kem-
ur?
„Ég byrjaði feril minn í
Hollywood hjá Roger Corman,
leikstjóranum sem hefur verið
kallaður konungur B-mynd-
anna. Allar myndirnar sem
hann gerði byggjast á utan-
Joe Dante er hlýlegur í viömóti en minnir óneitanlega á ofvaxiö bam sem lifir í eigin ævin-
^ týraheimi.
GÓÐ KVIKMYND
KEMUR ALLTAF
FRA HJARTANU
EINKAVIÐTAL VIÐ JOE DANTE, LEIKSTJORA MYNDARINNAR MATINEE
garðsfólki, annaðhvort þeim sem eru við jaðar þjóð-
félagsins eða þeim sem eru löngu komnir út fyrir
rammann og reyna að fela sig fyrir þjóðfélaginu.
Þetta hefur sjálfsagt haft áhrif á mig en ég minnist
þess einnig að hafa verið hrifinn af hryllingsmynd-
um frá unga aldri. Helsta forsenda þeirra er oftast
furðuveran sem stendur utangarðs eins og til dæm-
is Frankenstein sem er skapaður með ákveðnum
persónugöllum eða Drakúla sem þráir að vera
mannlegur en verður það aldrei.“
BYRJAÐI í B-MYNDUM
-Segðu mér aðeins meira af samvinnu ykkar
Cormans.
„Hann réð mig til starfa á þeim tíma sem enginn
annar vildi neitt með mig hafa af því að óg kunni
ekkert fyrir mér í kvikmyndagerð. Ég hafði verið kvik-
myndaáhugamaður lengi en hafði (raun ekki búið til
neina mynd nema sjö klukkustunda langan samtín-
ing úr ýmsum myndum sem ég skeytti saman og
ferðaðist með og sýndi í skólum. Þetta var skemmti-
legur kokkteill, sérstaklega vegna þess að hægt var
að fara út úr kvikmyndasalnum og koma aftur löngu
síðar án þess að virðast hafa misst nokkuö úr.
Roger var mjög hagsýnn og ódýrasta vinnuaflið,
sem hann gat náð í, var fólk án nokkurrar reynslu.
Það var auðfundið og ekkert okkar vissi hvað við
vorum að gera en komumst fljótlega að þv( að við
vorum að búa til kvikmyndir sem yrðu sýndar (kvik-
myndahúsum. Þetta var eins og verksmiðja full af
nýútskrifuðum kvikmyndagerðarnemum og innan
1 6 VIKAN 5.TBL. 1993