Vikan


Vikan - 11.03.1993, Síða 23

Vikan - 11.03.1993, Síða 23
ætlar aö reyna það skaltu segja nei og fara. Svo skaltu segja mér þaö og ég skal sjá um það.“ Ef barnið segist ekki kunna við „leikina" sem viss frændi vill leika er gott ráð að líta óvænt inn til barnanna öðru hverju. Það er ekkert sem letur misgjörðamann, sérstaklega ungan misgjörðamann, eins mikið og óttinn við að uþþ um hann komist. Foreldrar geta líka valiö að fara ekki í fjölskylduboð eða ákveðið að skilja barn sitt aldrei eitt eftir með tilteknum ættingja. Það er mikilvægt að viðurkenna fyrir sjálfum sér og börnum sínum að heimurinn er ekki alltaf réttlátur. Útskýrið að stundum hendi slæmir hlutir gott fólk. Mörg börn ásaka sjálf sig og skammast sín fyrir að hafa látið lokka sig. Segið þeim líka að stundum geri gott fólk slæma hluti. Mikilvægustu skilaboðin eru að börnin muni aldrei lenda í vandræðum fyrir að segja frá, það sé alltaf fullorðna aðilanum að kenna, eldra barninu eða aðilanum með meira vald. Þegar um jafnaldra af sitt hvoru kyni er að ræða er valdameiri aðilinn yfirleitt drengurinn. Flest börn segja þó ekki frá. Sum gera sér ekki grein fyrir því að verið sé að misnota þau; þau eru hrædd; óttast refsingu; eru háð misgjörðamanninum andlega eða líkamlega; þeim var mútað til aö þegja yfir leyndarmálinu; þau skammast sín; óttast að þeim verði ekki trúað; óttast að misgjörðamaðurinn geri þeim eða þeirra nánustu eitthvað; þau finna til sektarkenndar; elska misgjörðamanninn eða óttast aö uppljóstrun muni sundra fjölskyldunni; þau búa ekki yfir orðaforða til að segja frá atvikinu eða þau bæla minninguna niöur langt fram eftir aldri. Börn segja frá í bútum og bíða síðan eftir viðbrögðum foreldranna. Oft koma tilraunir barnanna til að segja frá misnotkun fram í formi spurninga eða að barnið segir: „Ég verð hrædd þegar Jón frændi kitlar mig.“ Ef foreldrar sýna engin viðbrögð við svona setningu halda börnin að foreldrið vilji ekki heyra meira eða að þau séu að segja eitthvað sem kemur foreldrinu í uppnám. Spyrjiö nákvæmra, opinna spurninga: „Segðu mér hvers vegna þú ert hrædd viö Jón frænda. Geturðu sýnt mér hvar hann kitlar þig?“ Börn segja líka til án orða svo að þegar þau þverskallast við að fara í tiltekið hús eða fá kast þegar þau heyra að einhver sé að koma eða eigi að gæta þeirra ættu foreldrar ekki sjálfkrafa að gefa sér að vandamálið sé aðskilnaðarkvíði. Foreldrar ættu að sþyrja hvað gerist þegar þeir eru ekki á staðnum, þar á meðal: „Hefur þessi aðili gert eitthvað sem þér líkar illa?“ Þegar börn teikna nakið fólk aftur og aftur, láta sem dúkkurnar þeirra séu í samförum, tala eða haga sér á tælandi hátt eða eru kynferðislega ágeng bendir það yfirleitt til þess að þau viti meira en aldur þeirra gefur til kynna. Það er ekkert aö því að spyrja barn hvar það hafi lært slíka hegðun, sé það ekki gert á móðursýkislegan hátt. Foreldrar ættu þó ávallt að fara varlega og bein kynferðisleg hegðun er sjaldgæf. Önnur hegðunartákn, sem benda til mikils álags og streitu, eru martraðir, lystarleysi, þunglyndi, skyndileg fælni eða vandamál f skóla. Líkamleg ummerki - kláði, bólgur eða roði við kynfæri, endaþarm og munn, óvanaleg lykt, marblettir, blæðingar, útferð og erfiðleikar með gang - koma aðeins fram í 30 til 40 prósent tilfella (gælur, barn látið fróa þeim fullorðna og margt fleira skilur ekki eftir sig líkamleg ummerki) og stundum eru þessi einkenni ekki tákn um misnotkun. HRYLLILEGUR MEIRIHLUTI ÁSAKANA SANNUR Margir foreldrar leggja ekki vísbendingarnar saman fyrr en það er orðið of seint en allir foreldrar verða að trúa börnum sínum þegar þau segja frá. Fagfólk er sammála um að sjaldgæft sé að börn Ijúgi til um kynferðislega misnotkun. Eina undantekningin er í forræðismálum þar sem barn gæti hafa verið þvingað til þess að Ijúga upp á foreldri en jafnvel í skilnaðarstríði er hryllilegur meirihluti ■ Þegar börn teikna nakiö fólk aftur og aftur, láta sem dúkkurnar þeirra séu í samförum, tala eöa haga sér á tælandi hátt eöa eru kynferðislega ágeng bendir það yfirleitt til þess aö þau viti meira en aldur þeirra gefur til kynna. Þaö er ekkert að því aö spyrja barn hvar það hafi lært slíka hegðun, sé þaö ekki gert á móðursýkislegan hátt. ásakana sannur. Því miður neita margir foreldrar að horfast í augu við upplýsingar sem eru of sársaukafullar til að takast á við þær. Þar er um að ræða hin ýmsu stig afneitunar: afneitun á staðreyndum („ég bý í góðu hverfi svo þetta getur ekki komið fyrir barnið mitt“) afneitun á vitund - að horfast ekki í augu við það sem maður veit um misgjörðamanninn („hann gerir þaö áreiðanlega aldrei aftur“) eða neita að trúa eða rannsaka það sem barnið heldur fram; afneitun á ábyrgð - þá er haldið áfram að koma barninu í hættulega stöðu, annaðhvort með því að láta sér fátt um kringumstæðurnar finnast - þegar makinn fer ítrekað inn í herbergi barnsins um miðja nótt - eða með því að gera lítið úr ásökunum barnsins og loks, eftir að búið er að Ijóstra upp um kynferðislega misnotkun, afneitun á áhrifunum - að gera lítið úr langtímaáhrifum („árásargirnin í honum stendur ekki í neinu samhengi við misnotkunina“). Barnið, sem er misnotað á nóttunni af föður sínum en stuðlar á daginn að því að fjölskyldan sýnist hamingjusöm og fullkomin, fær mikla þjálfun í afneitun en notar líka mikið af orku sinni í hana. Öll börn sem eru kynferðislega misnotuð .finna til skömmustu og auðmýkingar. Þau eru reið og ringiuð og finnst þau hafa verið svikin. Undantekningarlaust álíta þau sjálf sig ábyrg. Á uppljóstrunarandartakinu þarfnast þau fyrst og fremst stuðnings fullorðins aðila sem trúir þeim. Takið barnið í fangið, faðmið það og segist vera glöð að það sé að segja frá málinu. Ræðiö síöan málið í rólegheitum. Það tekur langan tíma að fá börn til að lýsa því sem hefur gerst á samhangandi hátt. Börnin nota alls kyns leiðir til að reyna að útiloka sársaukann og skömmina, til þess að lifa atvikið af. Vanmetið ekki þær tilfinningar sem barnið gæti borið til misgjörðamannsins - sem gætu verið væntumþykja og reiði í bland. Mikilvægt er að barnið finni að það sé í lagi að tjá mikla breidd tilfinninga. Foreldrar verða að búa sig undir heiftarleg viðbrögð. Sumar mæður fá áfall og fjarlægjast barnið, aðrar fyllast hefnigirni og reiði. Allar tilfinningar eru eðlilegar en gefið tilfinningum barnsins gaum fyrst. Eitt af því versta sem móðursjúkt eða vantrúað foreldri getur sagt er: „Ertu viss?“ „Hvers vegna varstu ekki búin að segja mér þetta?“ „Hvernig stendur á þér að láta þetta gerast?" „Hann/hún færi aldrei að gera neitt slíkt," eða „Guð hjálpi mér! Hvað verður nú um þig?“ SÉRFRÆÐINGAR KALLAÐIR TIL Hafi barn verið misnotað þarf barnalæknir að skoða það. Fullvissið barnið um að þið trúið því og útskýrið að það þurfi að tala við fleira fólk og segja sögu sína aftur. Barnið þarf aö undirbúa vel vegna þess að þetta er ekki venjuleg læknisskoðun. Læknirinn mun grannskoða kynfæri og endaþarm barnsins og spyrja mjög beinskeyttra spurninga um misnotkunina. Barnadeild Hringsins hefur haft náið samstarf við Félagsmálastofnun undanfarin ár og hefur miðlun þeirrar fræðilegu þekkingar sem fyrir hendi er verið gagnkvæm. Hvað tekur svo við? Eru hæfir meðferðaraðilar tilbúnir að taka við barninu og móðurinni? Aöalsteinn Sigfússon sálfræðingur er félagsmálastjóri Kópavogs og stóð árið 1984 fyrir fyrstu ráðstefnu á fslandi um kynferðislega misnotkun á börnum. „Stærstu sveitarfélögin, það er Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður og Akureyri, hafa skipulagt starfsemi með góðum árangri og greiða meðal annars niður sálfræðimeöferð fyrir þolendur,“ segir Aðalsteinn. „Þegar um viökvæm mál er að ræða er alltaf sþurning 5, TBL. 1993 VIKAN 23

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.