Vikan - 11.03.1993, Side 27
SKAPADÆGUR
FYRIRFRAM ÁKVEÐIÐ
Vegna þess hvaö Narfa virðist dauöinn hug-
leikinn þá er rétt aö benda honum á þá staö-
reynd aö meö tilliti til þess sem henti vin hans
er alls ekki óeðliiegt þótt honum veröi dauöinn
óþartlega hugstæður. Málið er bara, eins og
hann bendir á, að hann virðist ekki eiga að
fara strax. Eins og kemur fram í bréfi hans
hefur hann hvað eftir annað sloppið úr mikilli
hættu. Sennilegast er því að hans tími sé alls
ekki kominn enda piltur enn á gangi mitt á
meðal okkar sem betur fer verð ég að segja
eftir að hafa lesið bréfið hans sem er mjög
sérstakt og óvenjulegt af ýmsum ástæðum.
Ég hallast nefnilega fremur að því að við
höfum öll hér á jörðinni fyrirfram ákveðinn
tíma sem nauðsynlegt er að nota vel. Ég ein-
faldlega trúi ekki á neina tilviljunarkennda at-
burðarás í þessum efnum fremur en flestum
öðrum, satt best að segja. Þessi sjónarmið
segja að það sé engan veginn hægt að forða
feigum og þess vegna hafi sem dæmi bara
alls ekki verið komið að skapadægri Narfa
frekar en afa hans á sínum tíma. Af þeim sök-
um fór hann heldur ekki í umræddum tilvikum.
FÆÐUMST ÖLL MEÐ
FEIGÐARÓL UM HÁLSINN
Þaö er því mikill galli að eyða tíma og þreki í
of miklar vangaveltur og áhyggjur af því hvort
maður kunni að vera feigur eða ekki. Það er
nefnilega staðreynd að ekkert okkar getur full-
yrt nokkuð um hvort sem er, þrátt fyrir að
ýmislegt geti á stundum stutt þannig sjónar-
mið, satt best að segja. Réttara er fyrir Narfa
að eyða þeim kröftum sem hann losar sig við
í óþarfa áhyggjur í eitthvað sem er nær-
tækara, gagnlegra og meira á hreinu en
dauðinn sjálfur. Við fæðumst öll með feigðaról
um hálsinn og þess vegna erum við flest mjög
ung þegar okkur verður fyllilega Ijóst að við
vitum bara alls ekki hvað tíminn verður lang-
ur, þrátt fyrir hinar ýmsu pælingar þar að lút-
andi. Allar óþarfa vangaveltur um væntanleg-
an dauðdaga eru því út í hött.
FEIGÐ STUNDUM SÝNILEG
Með tilliti til þess að lokum að ég er sálrænn
sjáandi sjálf verð ég að segja eins og er að
það er stundum hægt að skynja eða öllu held-
ur sjá feigð þess sem er á hraðleið burt frá
þessari jörð. Stundum hefur komið fyrir að ég
hef séð fyrirfram eins og mjög sérstaka og
afar skýra litabreytingu í áru eða bliki þess
sem feigur reyndist. Eins hefur komið fyrir að
ég hef fundið mjög sérkennilega moldarlykt
og líka eins og sérkennilega og óútskýranlega
nálykt af fólki. Þetta tvennt hefur eins og fylgt
vissum einstaklingum sem hafa oröið á vegi
mínum fyrir lát þeirra. Þegar þetta hefur átt
sér stað hefur varla liðið mánuöur eða margir
þar til mér hefur borist til eyrna lát viðkom-
andi.
HUGLÆGUR UNDIRBÚNINGUR
HEPPILEGUR
Þannig atvik, sem hafa hent mig, hafa frekar
ýtt undir þá sannfæringu mína aö við eigum
einungis fyrirfram ákveðinn tíma hérna megin
grafar og alls ekki víst að sá tími notist okkur
sem skyldi ef við neitum að reikna meö að
enginn viti hver verður fyrstur eða næstur til
að yfirgefa jörðina. Hitt er svo annað mál að
við eigum að lifa þannig aö okkur standi ekki
stuggur af væntanlegum brottflutningi okkar af
þessari jörð inn í ríki Guðs. Viö eigum þannig
að undirbúa brottförina af kostgæfni og reikna
með að við verðum eftir dauðann ekkert síður
en á jörðinni aö taka einhverjum en mismikl-
um afleiðingum af lífi okkar og breytni. Best er
að miða undirbúninginn við að lifa jákvæðu og
grandvöru lífi sem er sjálfum okkur til sóma
og samferðafólki okkar til ánægju og eftir-
breytni.
Eða eins og lífhræddi pilturinn sagði eitt
sinn í góðra vina hópi: „Elskurnar mínar, ég
er ekkert aö segja aö ég sé feigur en ég
náttúrlega haga mér bara þannig aö ég
geti yfirgefiö jarölíkamann hvenær sem er,
sáttur og óhræddur viö allar afleiöingar af
lífi mínu hér og nú. Enda er ég heiöarlegur
og velviljaöur og langar alls ekki aö gera
öörum illt þó ég sé stundum kaldhæöinn
og heldur full. Brottfarartímann nákvæm-
lega getur Guö einn sagt til um.“
Vonandi gagnast þessar vangaveltur Narfa
eitthvað í hans pælingum um mögulega feigð
sem virðist alls ekki vera innan seilingar hjá
honum fremur en öðrum og minna hræddum
trúlega.
Með vinsemd,
Jóna Rúna
5. TBL. 1993 VIKAN 27