Vikan


Vikan - 11.03.1993, Page 46

Vikan - 11.03.1993, Page 46
rPARÍS gestinn óneitanlega svolítið á Hótel Borg í Reykjavík eins og það lítur út eftir breyting- arnar - glæsilegt en samt svo að bæði ungir og aldnir, frjáls- legir í vexti og klæðaburði sem klipptir út úr tískublaði geti látið sér líða vel í þessu umhverfi. Miðað við þjónustu og aðbúnað er verðið mjög á- sættanlegt. Stjörnurnar, sem prýða Californiu, eru fjórar en ekki fimm vegna þess líklega að þar er hvorki sundlaug né gufubað. Að öðru leyti jafnast það á við það sem best gerist. Morgunmaturinn er til dæmis með því besta sem gerist, „buffé“ krásunum hlaðið. Það er líka hægt að mæla með kvöldverði á veitingastað hót- elsins og barinn er með þeim skemmtilegri sem maður sækir heim. Hótel California er mið- svæðis í borginni, á Rue de Berri nr. 16, í nágrenni breið- strætisins fræga Des Champs ► Á Mont- martre úir og grúir af ferða- mönnum. Þaðan er stórkost- legt útsýni yfir borg- ina í góöu veðri og þar má finna fyrir- taks staði til aö njóta matar og drykkjar. ▲■dHótel President er góöur kostur fyrir þá sem ekki gera kröfur. ▲ Fram- lágur blaða- maður á ferö um undir- heima Parísar. Metróinn er mikið þarfaþing. ◄ Hótel California - fjórar stjörnur en fimm stjörnu gæöi. Elysees. Þess má til fróðleiks geta að næsta „metró“-stöð er Franklin D. Roosevelt en þangað ganga leiðir 1 og 9. Ekki langt undan, á Rue Lauriston, rétt hjá sjálfum Sig- urboganum, er þriggja stjörnu hótelið Hotel President. Það er mjög vel staðsett og ef heppnin er með fær maður herbergi með útsýni yfir Signu með Eiffelturninn í kaupbæti. Þetta er vinalegt hótel, snyrti- legt og er verðið sanngjarnt. Hótelið er upplagt fyrir þá ferðalanga sem gera ekki kröfur um íburð. Hér er engu að síður allt sem þarf, prýði- leg herbergi, snyrtileg og með öllum helstu þægindum. Gest- ir hér skulu samt ekki gera sér háar hugmyndir um morgun- mat fremur en á öðrum hótel- um i París í ódýrari kantinum, eitt heilhveitihorn, fransk- brauðshleifur og lítil dós með ávaxtamauki. Kaffið er viðun- andi. Neðanjarðarlestarnar eru skammt undan Hotel President, annars vegar Trocadero og Victor Hugo hins vegar, leiðir 6, 9 og 2. Metróanna er getið hér vegna þess hversu þægilegt og fljótlegt er að fara með þeim á milli staða í París. Við- komustaðirnir eru hreint út um alla borg og mjög víða er unnt að skipta um leið. Farmiðinn kostar ekki nema sex franka og gildir jafnframt sem skipti- miði. Einnig er unnt að kaupa kort og það borgar sig sé maður mikið á ferðinni. Á hótelum liggja frammi kort af borginni, með leiðakerfi metróanna öðrum megin og uppdrætti af París hinum megin. Metrómiðinn og þetta ágæta kort er allt sem þarf til að komast leiðar sinnar í þessari skemmtilegu borg. VEITINGASTAÐIR Hér verður mælt með þremur stöðum sem tíðindamaður Vikunnar hefur sannreynt að standi undir nafni. Honum lán- aðist að heimsækja þá alla í stuttri ferð sinni á dögunum og fékk þar gott að borða og drekka og góðan skammt af samveru við fjöruga Parísar- búa. Fyrst skal nefnt sögufrægt veitingahús í næsta nágrenni við St. Michel ( Latínuhverf- inu. Það heitir Le Procope og hefur verið þarna í fullum rekstri allar götur síðan 1686, að rue de l’Ancienne Comé- die nr. 13 (sími: 43269920), og staðið af sér byltingar sem styrjaldir. Þarna er boðið upp á mat eins og hann gerist bestur úr franska eldhúsinu og er verðinu stillt í meðalhóf. Það er vissara að panta borð því að staðurinn er mjög vin- sæll á meðal Parísarbúa sem gesta borgarinnar. Innrétting- arnar eru gamlar og vinaleg- ar, myndirnar á veggjum bera einnig keim af aldri staðarins, þar sem ekki ómerkari menn en heimspekingarnir og hug- myndasmiðirnir Rousseau og Voltaire hittu samherja sína og vini um miðbik átjándu ald- arinnar og lögðu á ráðin á meðan þeir nutu matar og drykkjar. Hér áttu nokkrir for- vígismenn frönsku byltingar- innar sitt fasta borð, hér varð hluti mannkynssögunnar til. Góður matur á góðu verði, skemmtilegt andrúmsloft og þjónusta eins og hún gerist best. Þriggja rétta máltíð fyrir tvo, flaska af góðu rauðvíni og fordrykkur: 643 frankar. Flestir sem sækja París heim leggja leið sína upp á hæðina háu Montmartre. Allt árið verður þar varla þverfót- að fyrir ferðamönnum um stræti og torg og mörg veit- ingahús hverfisins draga dám af því. Þó er þetta fræga hverfi ekki alveg heillum horf- ið, langt frá því. Því hefur ver- ið haldið fram að þarna megi varla finna ætan bita en ef grannt er skoðað má finna veitingastað sem er sannar- lega heimsóknarinnar verður. Hann heitir L’Assommoir og er númer 12 við rue Girardon (sími: 43201420). Þriggja rétta máltíð fyrir tvo, flaska af góðu víni og fordrykkur: 1000 frankar. Það er vissara að panta borð. ÚT AÐ DANSA Vikan mælir með eftirtöldum stöðum: La Casbah, rue de la Forge-Royale nr. 18-20. Op- inn langt fram á nótt, innrétt- aður eins og afrísk höll. Les Bains, rue du Bourg- l’Abbé. Einn glæsilegasti skemmtistaðurinn í París. Fólki er óhætt að klæða sig skrautlega og á þess kost að virða fyrir sér fjölmarga gesti úr tískubransanum. Folies Pigalle, place Pigalle nr. 11. Gamaldags innrétting- ar, skemmtilegt andrúmsloft. Parísarbúar segja að um þessar mundir sé þetta stað- urinn þar sem hlutirnar gerast. - Góða ferð, góða skemmt- un og verði ykkur að góðu. □ 46 VIKAN 5. TBL. 1993

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.