Vikan - 11.03.1993, Blaðsíða 60
MEXÍKÓ
fæddra á Yucatan-skaganum
má nefna ofnar körfur, skarf-
gripi úr skeljum og svörtum
kóral og hengirúm úr baðmull
eða silki.
Þeir sem eru á höttunum
eftir tískufatnaði þurfa ekki að
verða fyrir vonbrigðum. Finna
má alls kyns búðir sem hafa á
boðstólum allt frá hátísku-
strandfatnaði til fatnaðar í
sögulegum Yucatan-stíl. Karl-
menn geta keypt sér „guaya-
bera“-skyrtu sem er létt
bómullarflík og notuð með
stuttbuxum eða síðbuxum.
Fyrir konur gefur á að líta
„buipil" sem kemur frá Mayum
- afar léttur kjóll en með
flóknum og fallegum útsaumi.
Ekki má gleyma Panama-
höttunum sem framleiddir eru
A Köfun
meö köf-
unargler-
augum og
öndunar-
pípu er
vinsælt
sport meö-
alferða-
manna á
Yucatan-
skagan-
um.
▼ Neöan-
sjávarlífiö
er heill-
andi fag-
urt og fjöl-
breytilegt.
Litskrúö-
ugir hita-
beitisfisk-
ar synda í
tærum
sjónum al-
veg upp
aó fjöru-
boróinu.
á staðnum. Leðurvörur er líka
að finna, til dæmis belti, pen-
ingaveski, stígvél, skó, skart-
gripi og jafnvel skrautleg reið-
tygi-
MERKAR MINJAR
MAYANNA
Töfrar Cancún liggja þó ekki
fyrst og fremst í búðarápi og
baðströndum. Unnt er að fara
í stuttar kynnisferðir til merkra
og fagurra sögustaða á
Yucatan-skaganum og á
skömmum tíma eru gestir
komnir þúsundir ára aftur í
tímann. Víða er að finna minj-
ar hinnar merkilegu Maya-
menningar og með tilkomu
Cancún sem sumarleyfisstað-
ar er auðveldara en áður að
nálgast þennan horfna heim,
dularfulla veröld Mayanna. í
raun er ómögulegt að sleppa
undan aðdráttarafli þessarar
fornu menningar.
Á miðju hótelsvæðinu er að
finna rústir frá tímum
Mayanna, „Las Ruinas del
Rey“ eða rústir konungsins,
umkringdar lúxushótelum, líkt
og staðfestingu á óafmáan-
legum áhrifum hinnar fornu
menningarþjóðar. Allir sem
koma til Cancún verða að
skoða fornleifarnar í Tulum
sem er skammt frá borginni.
Þeir sem eru illa haldnir af
fornleifaveirunni geta valið um
ferðir til staða eins og
Chichen Itza, sem er ekki
langt frá Cancún, Uxmal og
Cobá. Svo er hægt að fljúga
til hinnar stórfenglegu Maya-
borgar Tikal í Guatemala en
þar hafa fundist stórkostleg-
ustu minjar Mayatímans langt
inni i frumskóginum. Hægt er
að velja um eins dags eða
tveggja daga ferð og í tveggja
daga ferðinni er gist í höfuð-
borginni, Guatemalaborg.
MATUR VIÐ
ALLRA HÆFI
Það er enginn skortur á veit-
ingastöðum í Cancún, með
fjölbreyttu úrvali rétta næstum
alls staðar að úr heiminum.
Hægt er að fá mexíkóskan
mat, maya, arabískan, tex-
mex, kínverskan, japanskan,
ítalskan, franskan, spánskan,
„continental", cajun, afrískan,
karabískan, svissneskan,
þýskan, kanadiskan og
bandarískan.
Einn girnilegasti kosturinn
er auðvitað fiskréttirnir. Eng-
inn vandi er að finna fiskveit-
ingastaði, nýr fiskur er alls
staðar á boðstólum og fram-
reiddur á hundrað mismun-
andi vegu og þeir sem ekki
geta með nokkru móti slitið
sig frá Karíbahafinu, eiga kost
á kvöldverðarsiglingum á
hverju kvöldi.
Nátthrafnar þurfa áreiðan-
lega ekki að kvarta yfir nætur-
lífinu. Ef menn vilja taka það
rólega er tilvalið að skella sér
á þjóðdansasýningu. Sjá má
ýmsar útfærslur á mexíkósk-
um dönsum og hinn sívinsæla
hattadans.
Loks má leita og kannski
finna Mexíkóbragðið eina og
sanna í flösku. Sumir greina
vart á milli tequila og Mexíkó.
Maður finnur það hreint og
ómengað, með salti og
grænni sitrónu (lime), blandað
í sangríu, seven-up eða í
formi hinnar sívinsælu
Margarítu. Mexíkóskur bjór er
frábær, léttur og frískandi og
hefur fengið alþjóðleg verð-
laun. Létt vín koma líka veru-
lega á óvart fyrir gæði, jafnt
rauð sem hvít.
Það er ævintýri að koma til
Cancún, ferðast um eyjarnar í
kring og inn í frumskóginn á
Yucatan-skaganum. Loftslag-
ið, sjórinn, strendurnar, matur
og drykkur - allt fyrsta flokks.
Það eina sem gæti ef til vill
farið svolítið í taugarnar á Is-
landsmanninum er hve stað-
urinn er „ameríkanseraður",
það er að segja lagaður að
miklum hluta að þörfum
bandarískra ferðamanna. Við
því er víst ekkert að segja,
þeir eru auðvitað fjölmennast-
ir af þeim hópum ferðamanna
sem leggja leið sína til
Cancún enda aðeins tæplega
tveggja stunda flug þangað
frá Miami í Flórída, þaðan
sem við komum á leið okkar
frá íslandi. Bandarísk áhrif eru
ásækin og lúmsk um allan
heim og kannski er síðasta
vígið að falla núna þessa dag-
ana með tilkomu McDonalds
hamborgarastaðar í Reykja-
vík! □
60VIKAN 5.TBL. 1993