Vikan


Vikan - 07.10.1993, Side 2

Vikan - 07.10.1993, Side 2
vikan 24 ÆVINTYRALEGT STARF Hann er kvikmyndatökumaður á Stöð 2, kallaður Besti en heitir fullu nafni Bergsteinn Björgúlfsson. Hann segir skemmtilega frá starfi sínu og ýmsu því sem á daga hans hefur drifið. 6 UNGLINGAR OG ÚTIVIST Á næstu sex siðum er fjallað um útivist og fleiri mikilvæga þætti ( lífi barna og unglinga út frá sjónarhóli unglinganna sjálfra, sálfræðings, skólastjóra og móð- ur. Hér birtast viðtöl við Einar Gylfa Jóns- son sálfræðing, tvo hressa unglinga í Hafnarfirði, Sigrúnu Gísladóttur skóla- stjóra og Vigdísi Steinþórsdóttur, móður á Akureyri. 16 KJAFTSHÖGG AFTRA MÉR EKKI - segir Steinunn Jóhannesdóttir, höfund- ur hins umdeilda leikrits Ferðaloka sem sýnt er á Smíöaverkstæði Þjóðleikhúss- ins um þessar mundir. Þar fjallar hún um skáldið Jónas Hallgrímsson á sérstæðan hátt sem vakið hefur hörð viðbrögð sumra gagnrýnenda. Hún segir meðal annars frá því hvernig það er að fá á kjaftinn. 28 GUÐRUN BÝR Á HJALTLANDI Blaðamaður Vikunnar sækir heim Guð- rúnu Júníusdóttur sem býr á Hjaltlandi og unir hag sínum vel þarna á nyrstu slóð- um Bretlandseyja. 36 JONA RUNA „Ég hafði ekki hugmynd um að maðurinn minn hefði haldiö fram hjá mér.“ Fjórum mánuðum eftir að barn hjónanna kom í heiminn eignaðist eiginmaðurinn annað barn með vinkonu þeirra. 38 SMÁSAGAN Bláa umslagiö eftir Agötu Christie. 52 OG 54 MATUR ER MANNSINS MEGIN Uppskrift að góðum og einföldum hversdagsmat að hætti hvers og eins og gómsætri mokkaköku að hætti Vikunnar. 55 VIKANICHILE Fimmti hluti ferðasögu Péturs Valgeirs- sonar. 64 TÍSKAN í PARÍS Vikan á tiskusýningu Sonju Rykiel í Paris. 32 ÞAKKA FYRIR ALLT HITT Jón Hlöðver Áskelsson, tónlistarmaður og tónskáld á Akureyri, varð fyrir áfalli fyrir nokkrum árum. Hann er lamaður að hluta og segir hér frá því hverju fötlunin breytti fyr- ir hann og hvernig hann hefur smám saman sætt sig við hana. 20 HÓLMFRÍÐUR OG SJÓMENNSKAN Hólmfríður Þorsteinsdóttir og Haukur Grettisson róa til fiskjar hvort á slnum frystitogaranum. „Það er orðinn einn og hálfur mánuður síðan við vorum saman ( landi en við höfum þó aðeins sést úti á sjó.“ 44 MYNDASÖGUR Ómissandi. 50 SLÁTUR, SLÁTUR... Nú stendur sláturtíðin sem hæst. Hér birtir Vikan góð ráð og uppskriftir úr smiðju Leiðbeiningastöðvar heimilanna. 68 HÖFUNDUR JÚRAGARÐSINS Rætt við Michael Crichton, höfund sög- unnar Jurassic Park sem farið hefur sig- urför um heiminn.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.