Vikan


Vikan - 07.10.1993, Qupperneq 8

Vikan - 07.10.1993, Qupperneq 8
foreldra og unglinga, tíðar- andann, boð og bönn svo fátt eitt sé nefnt. Einar Gylfi var beðinn um að ræða í stuttu máli um það hvar skórinn helst kreppir hvað varðar samskipti foreldra og unglinga nú á dögum - og fyrst bar útivistarmálin á góma. - Unglingamir þrýsta til dæmis á um að fá að vera lengi úti á kvöldin og nóttunni vegna þess að þeim finnst þeir vera orðnir fullorðnir. Eitt af því sem einkennir unglingsárin er að prófa hvar mörkin liggja, hversu mikið þeim leyfist. Hlut- verk foreldra er einmitt að gefa unglingunum hæfilega lausan tauminn en vera tilbúnir að setja þeim ákveðin takmörk. Sumir ganga of langt í öðru hvoru. Vandi foreldra um þess- ar mundir er meðal annars sá að kjamafjölskyldan er orðin býsna einangruð og foreldrar bera sig mjög lítið saman. Þess vegna eru unglingarnir sjálfir helsta heimild þeirra fyrir því hvað sé gott og gilt. Þeir eru eðlilega ekki áreiðanleg heimild því að þeim liggur þessi býsn á að verða fullorðn- ir. Þessi setning: „Gerðu það, mamma, það mega það allir,“ er sjálfsögð og skiljanleg rök- semd unglings. Foreldri þarf aftur á móti að vita betur. HVARÁ AÐ SETJA MÖRKIN? Ég legg áherslu á að foreldrar komi sér upp betri heimildum og hafi traustari viðmiðanir um það hvað sé gott og gilt. Fyrsta boðorðið er að þeir beri sig meira saman. Ég held að skólinn sé heppilegasti vettvangurinn. Mér finnst allt of algengt að foreldrar séu ekki í sambandi við foreldra vina og vinkvenna unglings- ins, þeir þekkja viðkomandi kannski ekki nema með gælu- nafni. Það þykir ekki lengur við hæfi að spyrja börn að því hverra manna þau séu og þar fram eftir götunum. Ef foreldr- ar allra í kunningjahópnum bæru saman bækur sínar átt- aði hver og einn sig líklega á því að hann er ekki íhalds- samasti faðirinn eða móðirin í bænum. Þegar fólk fer að tala saman kemur í Ijós að allflest- ir foreldrar eru þeirrar skoðun- ar að unglingarnir eigi að fá nægan svefn á virkum dögum og þeir eigi ekki að vera úti fram eftir nóttu um helgar. Foreldrar þurfa að setjast niður og koma sér saman um útivistartíma bama sinna og hvar þeim beri að setja mörkin. Ef unnt er að komast að sam- komulagi er það mjög gott en það er líka gott fyrir unglinginn að vita að pabbi og mamma hafa ákveðnar hugmyndir um hvað sé gott fyrir hann og eru tilbúin að standa á því. Eg vil líka ráðleggja foreldrum að gera skýran greinarmun á ó- skipulegri útivist og skipu- lagðri. Allir unglingar hafa þörf fyrir að fara niður í bæ, sýna sig og sjá aðra, athuga hvort þeir séu að missa af einhverju, labba rúntinn og mæta þeim eða þeirri sem viðkomandi er skotinn í og segja „hæ“. Það er heilmikið að gerast og ungling- ar hafa þörf fyrir að verja á- kveðnum hluta frítíma síns á almannafæri. Foreldrar hljóta að vera þeir aðilar sem eiga að setja mörkin um það hversu langt þetta má ganga. Svo er hitt allt annað mál ef unglingurinn er að fara í partí eða á skólaball sem foreldr- arnir þekkja og treysta. Það er sjálfsagt að þeir hringi í for- eldra vinarins eða vinkonunn- ar, sem heldur partíið eða ætlar með á ballið, til þess að komast að því hvað hinum finnst og hvaða mörk þeir hafi sett. Ef unglingurinn segir þá „Hva, treystið þið mér ekki?“ þá er eðlilegt að svarið só: „Auðvitað treystum við þér en okkur þykir vænt um þig og við viljum hafa þetta allt á hreinu." Ég tel mjög mikilvægt að foreldrar viti hvar þetta fer fram, hvert símanúmerið er og hvernig foreldrar vinarins eða vinkonunnar ætla að standa að þessu. Það er orðin lenska að vanrækja þetta hér á landi. Foreldrum ber að hafa vitneskju um hvar ung- lingurinn er og hvort partíið er eftiriitslaust, sem mér finnst út í hött. GERST HAFA HRIKA- LEGIR ATBURÐIR Hvernig á fjórtán til sextán ára unglingur að geta verið gest- gjafi í svona partíi þegar við eigum oft fullt í fangi með það sjálf? Hugsið ykkur eftirlits- laust partí; fjórtán ára gest- gjafi og það eru einhverjir sautján ára gæjar sem eru skotnir í einni stelpunni þama. Þeir birtast allt í einu með nokkrar vínflöskur og bjóra. Hvað á þessi litli gestgjafi að gera? Hann verður bara hræddur og segir já og amen. Svo dettur kannski einhverj- um í hug að hringja í ein- hverja útvarpsstöðina og láta tilkynna að það sé partí þarna. Það hafa gerst hrika- legir atburðir í eftirlitslausum partíum. Það er mikilvægt fyrir foreldra, ef þeir leyfa börnum sínum að halda samkvæmi, að hafa það algjörlega á hreinu að þeir sjálfir eða ein- hverjir aðrir sem þeir treysta geti gripið inn í ef eitthvað fer úrskeiðis. Foreldrar þurfa að vera mjög vel vakandi. Það er geysilega mikilvægt að unglingarnir geri sér grein fyrir því hversu mikils virði það er að hafa gott samband við foreldrana. Þó að oft gangi eitthvað á vegna þess að allir eru ekki sammála getur engu að síður verið gott samband á milli aðila. Hver könnunin á fætur annarri sýnir svo ekki verður um villst að þeim ung- lingum reiðir betur af sem eru í góðum tengslum við foreldra sína. Það er unglingum jafn- framt mikilvægt að þeir séu í góðu sambandi við félaga sína en geti samt sýnt ákveð- ið sjálfstæði. Þeir þurfa ekki að vera með í öllu sem hinum dettur í hug, betra er að þeir geti valið og hafnað. ÚTLAGI Á HEIMILINU Margir taka sjálfræðisaldurinn afskaplega bókstaflega, þegar unglingurinn verður sextán ára. Þá ræður hann næturstað sín- um samkvæmt laganna hljóð- an, getur ákveðið hvort hann fer í skóla eða ekki og getur farið að heiman ef honum sýn- ist svo. Unglingurinn hættir að vera bam foreldra sinna og gerist kröfuharður gestur eða kostgangari á heimilinu - má koma þegar hann vill, fara þeg- ar hann vill. Hann rukkar móð- ur sína um nýþvegin fötin sín og föðurinn um vasapeninga til næstu daga. Sums staðar er þetta gagnkvæmt samkomulag foreldra og unglings. Langflest- ir íslenskir unglingar em í heimahúsum fram yfir tvítugt. Það er afskaplega vont fyrir ungling að vera allt í einu kom- inn í þá stöðu að það eru engir rammar í kringum hann, engar væntingar lengur gerðar til hans, hann er skyndilega hætt- ur að vera einn af fjölskyldunni. í sjálfu sér þarf ekki að vera neitt að á heimilinu - ungling- urinn, sem er þetta sautján, átján ára, er orðinn eins konar útlagi. Hann hefur sitt her- bergi, sem enginn má jafnvel fara inn í nema hann, og hann kemur og fer. Þetta er ofsa- lega sorglegt. Hann fer á mis við svo mikið og foreldrarnir líka því að það er svo margt skemmtilegt að gerast. Auð- vitað er eðlilegt að unglingur á þessum aldri sé meira út á við en inni. Fyrsta alvöruástin hefur kannski orðið til, vinátta fer að verða dýpri og áhuga- málin þroskaðri. Líkaminn er kominn í jafnvægi eftir gelgju- skeiðið og unglingurinn er orðinn sáttur við hann, hann er jafnframt orðinn miklu þroskaðri í hugsun. SJÁLFRÆÐISALDURINN TÍMASKEKKJA Auðvitað er þetta ekki alls staðar svona - en býsna al- gengt engu að síður. Það sem mér finnst eðlilegt er að sá sem býr innan fjölskyldu hafi ákveðnar skyldur og rétt- indi um leið og tekið er tillit til sérstöðu hvers og eins. Mér finnst skrýtið að fólk, sem býr svo náið saman, þurfi ekki láta hvert annað vita hvar það er og hvenær það reiknar með að koma heim. Hvaða réttur er það fyrir ungling að búa við þau viðhorf að mega gera það sem honum sýnist og enginn þurfi að vita neitt um hagi hans? Hann er útlagi sem enginn hefur áhyggjur af. Ef ég væri á hóteli mundi ég gera svona kröfur - um góðan aðbúnað, góðan mat og þjón- ustu í hvívetna. Ég yrði aftur á móti sármóðgaður ef þjónninn spyrði mig hvar ég hefði verið, hvert ég væri að fara og hvenær ég kæmi aftur. Það er hótel en ekki heimili. Ég held að það sé tíma- skekkja að miða sjálfræði unglings við sextán ára aldur. Kannski var það eðlilegt fyrir áratugum þegar þorri ung- linga var farinn að vinna og sjá fyrir sér upp úr fermingu. Síðan hafa aðstæður bara breyst svo geysilega mikið. Því ekki að miða sjálfræðið við átján ár eins og fjárræðið og gera úr þessu ákveðna hefð? Þá yrðu þetta stór og spennandi tímamót fyrir hvem og einn. □ 8 VIKAN 20.TBL. 1993
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.