Vikan - 07.10.1993, Síða 10
TEXTI: HJALTIJON SVEINSSON
AÐ VERA
UNGLINGUR
VIKAN RÆÐIR VIÐ
BEGGU OG ALLA
UM ÚTIVIST OG ÁHUGAMÁL
Til þess að kynnast lítil-
lega viðhorfum ungling-
anna sjálfra til útivistar
og áhugamála var félagsmið-
stöðin Vitinn í Hafnarfirði
heimsótt. Þar hitti blaðamaður
fyrir tvo hressa krakka, þau
Bergþóru Pálínu Björnsdóttur,
fimmtán ára, og Þórð Alla Að-
albjörnsson, fjórtán ára. Hún
er í 10. bekk í Lækjaskóla og
hann í 9. bekk Víðistaðaskóla.
Aðspurð um hvernig þeim
líkaði í skólanum luku þau
upp einum munni um að þar
þætti þeim gott að vera og
námið gengi eftir vonum.
- Hvað verjið þið miklum
tíma til heimalærdóms alla
jafna?
Begga: Ég er búin að taka
eftir þvf nú í haust að ég þarf
miklu meiri tíma í hann en til
dæmis í fyrra. Ég hugsa að
ég þurfi að læra í að minnsta
kosti tvo tíma á dag.
Alli: Það er mjög misjafnt.
Ætli ég eyði ekki einum og
upp í tveimur tímum á dag,
stundum meira, stundum
minna.
- Hvað gerið þið í frístund-
um?
Begga: Ég horfi mjög mikið
á sjónvarpið, oft er ég hér og
djassballett æfi ég tvisvar í
viku. Það er ágætt að hanga
hér í Vitanum, sem er opinn
frá eitt til fjögur og svo aftur
frá átta til hálfellefu.
Alli: Það er svipað hjá mér,
ég horfi oft á sjónvarp þegar
eitthvað skemmtilegt er í því á
kvöldin, ríkissjónvarpið. Ég
kem líka oft hingað. Fótbolta
og körfubolta spila ég með
vinum mlnum í skólanum
þegar gott er veður.
HEIM
KLUKKAN HÁLFTÓLF
- Hvað eruð þið jafnan lengi
úti á kvöldin?
Begga: Ég er yfirleitt alltaf
komin heim í síðasta lagi
klukkan hálftólf ef ég þarf að
fara í skólann daginn eftir. Ég
fer samt ekki alltaf að sofa
strax. Oft fer ég að horfa á
sjónvarpið, Stöð 2. Ef mynd-
irnar eru mjög seint tek ég
þær upp og horfi á þær næst
þegar ég hef tíma til. Ég er
svolítinn tíma að labba heim
úr Vitanum og oft þurfum við
stelpurnar að kjafta saman
áður en við kveðjumst. Ann-
ars þarf ég að gæta mín á því
að fara ekki allt of seint að
sofa, ég þarf að vakna klukk-
an sex til þess að bera út
Morgunblaðið. Ég legg mig
svo aftur og get sofið í svona
þrjú kortér áður en ég dríf mig
í skólann. Um helgar sef ég til
hádegis, það er alveg á
hreinu.
Alli: Ég er alltaf kominn
heim ekki síðar en hálftólf ef
skóli er daginn eftir. Ég þarf
að vakna rúmlega sjö.
- Hvað borðið þið í morg-
unmat?
Begga: Hunangs-Cheerios
og hafragraut.
Alli: Oftast súrmjólk og
brauðsneið.
- Takið þið nesti með ykkur
í skólann?
Begga: Nei. Ég er líklega
eina manneskjan í skólanum
sem tekur ekki með sér nesti
og kaupir sér heldur ekkert.
Ég lifi bara á morgunmatnum
þangað til ég fer heim í há-
deginu.
Alli: Ég tek oftast með mér
nesti og stundum kaupi ég
mér eitthvað í skólanum en
þar eru til sölu samlokur,
snúðar, kringlur og svo fram-
vegis.
MEÐ NÆTURSTRÆTÓ
UM HELGAR
- Hvaö megið þið vera lengi
úti um helgar?
Begga: Ég er komin heim
svona um þrjúleytið. Ef við
förum til Reykjavíkur tökum
við næturstrætóinn heim
klukkan tvö.
Alli: Það er mjög misjafnt.
Stundum er ég í Vitanum á
föstudögum, stundum fer ég f
bíó í Reykjavík. Þá er ég yfir-
leitt kominn heim um eða upp
úr miðnættinu. Ég fer mjög
sjaldan í miðbæ Reykjavíkur.
Begga: í fyrra vissi ég nán-
ast ekki hvað var að gerast
niðri í bæ í Reykjavík um
helgar. Núna förum við krakk-
arnir þangað næstum á hverju
föstudagskyöldi, þá er okkar
aldurshópur þar. Yfirleitt eru
eldri krakkarnir á laugardög-
um. Samt hef ég farið á laug-
ardögum líka.
- Hvað sækja krakkar niður
í miðbæ um helgar?
Begga: Bara að hitta fullt af
krökkum, kjafta saman, hanga
- það eru allir þar. Auðvitað
er oft fyllirf og læti, ofbeldi
jafnvel, en ef við höldum okk-
ur saman f hópi þá er allt f
lagi.
Alli: Mestu lætin byrja
klukkan þrjú þegar skemmti-
stöðunum er lokað. Þá erum
við löngu farin heim.
ÁHÆTTA
AÐ HALDA PARTÍ
- Hvenær byrja unglingar í
dag að drekka?
Begga: Ég held að flestir
10VIKAN 20.TBL. 1993