Vikan


Vikan - 07.10.1993, Blaðsíða 14

Vikan - 07.10.1993, Blaðsíða 14
TEXTI: HELGA GUÐRÚN EIRÍKSDÓTTIR / UÓSM.: BRAGIÞ. Jó'sEFSSON ENGIN HÓTELBYGGING Á DAGSKRÁ - SEGIR BJORN LEIFSSON SEM HEFUR TEKIÐ ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARANN Á LEIGU OG OPNAÐI ÞAR UM SÍÐUSTU MÁNAÐAMÓT EFTIR GAGNGERAR BREYTINGAR NÚ TEKST BJÖSSI í WORLD CLASS Á VIÐ REKSTUR ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARANS jóöleikhúskjallarinn hefur til þessa ver- ið sá skemmtistaður í Reykjavík sem hægt hefur verið að ganga að vísum ár eftir ár i óbreyttri mynd - sama tónlistin, sömu barirnir, sama starfsfólkið og nánast sömu gestirnir. Maður hefði getað látið líða fimm ár á milli heimsókna í Kjallarann en samt gengið að sömu gömlu, góðu hlutunum, gamla, góða fólkinu í sömu gömlu, góðu fötunum. Ekkert er samt til eilífðar, ekki gamli Leik- húskjallarinn heldur. Ekki svo að skilja að hann hafi andast í hárri elli heldur þvert á móti. Nú hefur gamla rykið verið dustað af og staðurinn fengið andlitslyftingu og nýtt útlit. Þeir allra íhaldssömustu harma sjálfsagt t(ð- indin en þó eru líklega fleiri sem álíta að kom- inn hafi verið tími til ENGIN ÁSTÆÐA TIL AÐ HÆTTA MEÐAN VEL GENGUR Það er athafnamaðurinn Björn Leifsson, betur þekktur sem Bjössi í World Class, sem stend- ur fyrir þessum breytingum á Kjallaranum. Hann hefur nú tekið staðinn á leigu til tíu ára og hyggst bjóða upp á ýmiss konar nýjungar þar í framtíðinni enda hugmyndaríkur maður. Hann var spurður hvernig það hefði komið til að hann tók við rekstri Kjallarans. „Ég sá staðinn auglýstan til leigu í Morgun- blaðinu einn morguninn. Ég var þá að fara til Mexíkó daginn eftir en hringdi í þjóðleikhús- stjóra og sagðist hafa áhuga á þessu, bað hann að hinkra með að taka ákvörðun þar til ég kæmi heim aftur ef hann hefði áhuga á að ræða þetta. Ég setti mig svo strax í samband við hann þegar ég kom heim og þá voru yfir tuttugu aðilar búnir að sækja um. Hann valdi síðan úr nokkra aðila auk mín til að gera leigutilboð í staðinn og eftir viðræður og kjöl- skoðun endaði þetta með því að ég stóð eftir.“ - Nú rekur þú Ingólfscafé líka og ef mig misminnir ekki þá sagðist þú á sínum tíma ætla að gera tilraun með þann rekstur í eitt ár og hætta svo. Þau tímamörk runnu út í októ- ber í fyrra, þú ert ennþá með Ingóifscafé og hefur nú bætt við þig Þjóöleikhúskjallaranum. Hverju svararðu þessu? „Ja, ekki öðru en því sem þeir segja í Am- eríku: If you are ones in, there is no way out,“ segir Bjössi og hlær. „Það var nú þannig með Ingólfscafé að þetta átti bara að vera tilraun. Ég átti að rífa staðinn upp til þess að sá sem átti hann gæti selt hann. Við stofnuðum hluta- félag um staðinn og þegar þáverandi eigandi vildi selja fékkst enginn kaupandi nema ég yrði seldur með. Nú er ég þar eigandi að þriðj- ungi á móti tveimur félögum mínum, rekstur- inn gengur vel og engin ástæða til að hætta meðan vel gengur. Þegar ég er spurður hvort ég ætli að taka traffíkina þaðan svara ég því til að engin ástæða sé til að drepa góða mjólkurkú fyrir aðra.“ - Þú hefur ákveðið að halda áfram veit- ingahúsarekstri, er þetta eitthvað sem þú hef- ur ákveðið að halda áfram með? Er kannski annar Óli á ferðinni? „Nei, nei. Menn verða að þekkja sín tak- mörk og fæstir þekkja þau. Það er alla vega engin hótelbygging á dagskrá," segir Bjössi og skellihlær. SKIKKA EKKI FÓLK I FÖT AF ÁKVEÐINNI EFNISGERÐ - Hverjar verða helstu breytingarnar hjá þér í Kjallaranum? „Helstu breytingarnar verða náttúrlega þær að færa þetta til upprunalegs horfs. Staðnum var breytt i kringum 1965 og hann hefur verið nánast eins síðan. Það var eins og að koma mörg ár aftur í tímann að koma hingað." - Varþað ekki bara það sem fólk vildi, gamla stöðugleikann, sama gamla kúnnahópinn? Ertu Frh. á bls. 48 1 4 VIKAN 20. TBL. 1993
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.