Vikan - 07.10.1993, Síða 33
ENNSKAN
LST EKKI í
U, ÁLINU
STÁLINU
VILDI VERDA
DÝRALÆKNIR
Jón var alinn upp við tónlist í
töðurhúsum og frá unga aldri
sótti hann nám í Tónlistar-
skólanum á Akureyri. Hann
segist reyndar stundum hafa
verið ósáttur við það því hann
hafi alltaf farið í sveit í Bárð-
ardalinn á sumrin en Tónlist-
arskólinn verið búinn mjög
seint á vorin. Það varð þess
valdandi að hann missti af
sauðburðinum. Þótt þetta hafi
kannski ekki orðið tii þess að
ýta undir áhugann á tónlist-
inni varð það nú samt svo að
Jón dreif sig í tónlistarnám.
„Eftir að ég lauk landsprófi
1961 lá leiðin í Menntaskól-
ann á Akureyri og ég stund-
aði píanónám jöfnum hönd-
um með. Það kom margt til
greina á þessum árum og
það lá alls ekkert beint við að
fara út í tónlistina. í sveitinni
ætlaði ég til dæmis alltaf að
verða dýralæknir. Eitt árið í
Menntaskólanum hér fór ég til
Reykjavíkur í einhvers konar
nemendaskiptum; fór í
Menntaskólanum í Reykjavík
og ákvað að reyna fyrir mér í
Tónlistarskólanum í Reykja-
vík. Þar hitti ég nokkra ágæta
kennara, til dæmis man ég
eftir tónlistarmönnunum Jóni
Þórarinssyni og Róberti Abra-
ham Ottóssyni. Ég hugsa að
það hafi ráðið úrslitum um að
„Lánsamur
í einka-
lífinu."
Hér eru
þau hjón
ásamt
barna-
barninu,
Sæbjörgu
Láru
Másdóttur.
ég ákvað að fara út í tónlist-
arnám.
GENGIÐ LÆKKADI
UM HELMING
Jón lauk tónmenntakennara-
námi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1967 og fór síðan í
framhaldsnám til Austurríkis.
Hann var í Salzburg í tvö ár
en lá síðan mikið á að komast
heim því.Sæbjörg Jónsdóttir,
núverandi eiginkona hans, var
hér á landi í festum. Hún var
að Ijúka stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri
þetta vor, 1969, og þau giftu
sig í júní. Þá um sumarið
fæddist þeim lítil stúlka, Sigur-
björg. Um haustið lá síðan
leiðin til Hannover í Þýska-
landi þar sem Jón stundaði
nám við tónlistarháskóla borg-
arinnar.
„Mér er minnisstætt hvað
sveiflurnar í lífskjörunum
voru miklar því annað árið
sem ég var í Salzburg lækk-
aði gengið hér heima um
helming og því varð lítið úr
sumarhýrunni manns í það
skiptið. Þótt hugurinn stefndi
til frekara náms var áræðið til
þess ekki nægjanlegt, fyrir
utan efnahaginn sem var
bágur, svo við ákváðum að
koma heim frá Þýskalandi og
ég sótti um stöðu við Tónlist-
arskólann á Akureyri haustið
1970.
20.TBL. 1993 VIKAN 33