Vikan - 07.10.1993, Síða 50
Allt slátur er nú afgreitt í
pokum og kössum og
ekki þarf lengur að
hafa með sér þvottabala við
innkaupin. Það sem þarf til
sláturgerðar auk slátursins er
rúgmjöl, hafragrjón, salt og
sumir nota einnig rúsínur.
Fyrir þá sem aldrei hafa
tekið slátur er vert að geta fá-
einna atriða sem geta komið
að gagni. Það er mjög mikil-
vægt að hafa allt tilbúið þegar
blóði, haframjöli, rúgmjöli og
mör er blandað sama. Blóð-
hræran þolir enga bið því
gerjun hefst mjög fljótt þegar
búið er að blanda blóði og
mjöli saman, þá rýrna gæðin
að mun. Einnig er mikilvægt
að slátrið sé soðið eða fryst
strax að lögun lokinni. Að-
gæta þarf í upphafi slátur-
gerðar að frystigeymslan sé
hrein og frost á henni þarf að
auka áður en slátrið er sett
inn.
Sláturverkun hefst á því að
vambirnar eru skafnar laus-
lega, oftast hafa þær verið
þvegnar. Þær eru snyrtar og
úr þeim fæst efni í 5-6 keppi.
Þeir eru síðan saumaðir sam-
an með mjúku bómullargarni
og gert er ráð fyrir nægilega
stóru opi til að láta hráefnið í.
Ef eitthvað þarf að geyma
keppina, hvort sem þeir hafa
verið saumaðir eða ekki, er
best að láta þá liggja í köldu
saltvatni. Ef slátrið er soðið
jafnóðum er gott að hafa pott
með sjóðandi vatni vlð hönd-
ina og láta keppina jafnóðum í
hann. Blóðmör þarf um
þriggja tíma suðu en lifrar-
pylsa tvær til tvær og hálfa
klukkustund.
Oft er slátrið látið sjóða
hálfan suðutímann, síðan
fryst eftir að það hefur verið
kælt. Það flýtir fyrir suðunni
þegar slátrið er síðar tekið úr
frysti. Eini ókosturinn við þetta
er að slátrið tekur meira rúm f
frystinum eftir að það hefur
verið soðið.
BLÓÐMÖR
OG LIFRARPYLSA
Ágætt er að blanda blóðið f
hlutföllunum einn lítri af blóði
á móti pela af vatni. Rúg-
mjölið er síðan látið út í ásamt
haframjölinu. Best er að
blanda þessu öllu saman með
þeytara en oft er þó notuð
sleif. Hálfri til tveim matskeið-
um af grófu salti er blandað
saman við. Þegar sleifin getur
nokkurn veginn staðið í balan-
um en hnígur þó hægt til hlið-
ar er blóðhræran rétt blönduð.
Mörinn er brytjaður, honum
síðan blandað saman við
blóðið ásamt rúsínum ef vill.
Vatnið er látið renna af
vömbunum og gæta þarf þess
að fylla keppina aðeins að
þrem fjórðu. Þeir vilja springa
við suðu séu þeir stútfullir.
Mikilvægt er að stinga síðan
gaffli í slátrið öðru hverju á
meðan á suðu stendur.
Þegar lifrarpylsan er útbúin
eru æðarnar teknar úr lifrinni
og hún hökkuð ásamt litlu
magni af nýrum. Mjólk er
Allt
matarkyns á
myndinni var
fengið að
láni hjá Hag-
kaup í Kjör-
garði. Lyng
og annar
jarðargróður
var sótt (
smiðju
blómabúðar-
innar Dalíu
við Fákafen.
50 VIKAN 20. TBL. 1993