Vikan - 01.08.1994, Blaðsíða 51
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
vegna ástands sem er með
öllu óeðlilegt og óviðunandi.
Við vitum að óhófleg stjórn-
semi getur verið ein hlið
ákaflega óheppilegrar ofur-
ástar sem liggur þá í því
m.a. að tiltekið foreldri sér
ekki fyrir enda þess ástands
sem gæti skapast í lífi við-
komandi barns ef nærveru
foreldrisins nyti ekki stöðugt
við.Ekki bara á yngri árum
fórnarlambs ofurástarinnar
heldur á fullorðinsárum við-
komandi líka.
FJÖTRAR RANGRA
AFSKIPTA
Þetta er náttúrlega ákveð-
in afskræming á því sem við
teljum ástina vera. Sú teg-
und ástar og umhyggju, sem
liggur í því að viðkomandi
barn getur ekki lifað sjálf-
stæðu lífi án afskipta for-
eldris síns, er óeðlileg og
röng. Viðkomandi er þá
fremur í fjötrum og skortir
það frelsi sem við þurfum öll
á að halda til að fá færi á að
þroskast eðlilega og rétt.
Við vitum ekki hvaða styrk
við kunnum að búa yfir þeg-
ar á reynir ef við getum ekki
náð, fyrir yfirgangi foreldra,
að takast á við bæði sorgir
og gleði þess lífsforms sem
við kjósum sjálf að búa okk-
ur.
SAMSKIPTALEGUR
RÉTTUR MIKILVÆGUR
Stjórnsemi er alls ekki
heppilegt samskiptaform og
hefur engan gert hamingju-
saman ennþá. Gagnkvæm
virðing og jákvæð væntum-
þykja er af hinu góða og sá
hæfileiki jafnframt að kunna
sér siðferðisleg takmörk
gangvart öðrum. Hætt er við,
að ef tengdamóðirin yrði
sjálf fyrir því að ráðist væri
inn í einkalíf hennar og
heimili, með því offorsi sem
hún lætur eftir sér við þau,
þá myndi hún bregðast við
því með því að mótmæla.
Vissulega getur enginn sætt
sig við það að eiga engan
sýnilegan samskiþtalegan
rétt. Við eigum alls ekki að
umgangast hvert annað af
tómri skyldurækni, heldur af
löngun og elsku.
VIRÐING OG KURTEISI
Við eigum að umgangast
hvert annað vegna áhuga
okkar á velferð hvers ann-
ars, með það að leiðarljósi
að við höfum engan rétt á að
troða á hvert öðru eða
ganga yfir hvert annað með
hnýsni, óheppilegri gagnrýni
eða öðrum álíka leiðindum.
Við erum betur sett án sam-
skipta við þá sem treysta sér
ekki til að sýna okkur fulla
virðingu og sjálfsagða kurt-
eisi og þá er alveg sama
hvort um er að ræða tengda-
mæður okkar eða bara ein-
hverja aðra. Við getum ein-
faldlega ekki látið hvað sem
er eftir okkur í samskiptum
okkar hvert við annað og
allra síst ótæpilegan yfir-
gang eða aðra þá ósiði sem
eru hvimleiðir og niðurnjörv-
andi á jákvæð og heilbrigð
samskipti.
VELKOMINÁ
SNYRTISTOFU ÁRBÆJAR
| ROFABÆ 39 - SIMI 68 - 93 - 10 | 1- m
► ANDLITSBÖÐ
► HÚÐHREINSUN
► LITUN
► PLOKKUN
► VAX-MEÐFERÐ
► FÓTSNVRTING
► FÖRÐUN
HULDA
SÉRMEÐFERÐ:
JURTAMASKI: f. bóluhúð, f. hóræðaslit,
f. eldri húð. HITAMASKI: f. þurra húð,
f. óhreina húð, f. vannærða húð.
AUGNMASKI: f. poka og hrukkur.
5ILKINEGLUR • TRIM FORM • GERUM GOT I EYRU
liái'siiyríistolan
., ART
PENINGAR ERU
STJÓRNTÆKI
Eins er rétt að benda Frikka
á þá staðreynd að þó
tengdaforeldrar hans hafi
lánað þeim hjónunum fé, þá
gefur það tengdamóður
hans engan rétt til að virða
ekki sjálfsögð mannréttindi
Frikka og dóttur hennar,
sem liggja meðal annars í
því að þau eiga rétt á einka-
lífi hvort með öðru, án óþarfa
afskiptasemi og yfirgangs
hennar. Alveg sama þó þau
kunni að skulda henni um
tíma tíkall eða meira. Við vit-
um að það er tiltölulega auð-
velt að nota peninga nei-
kvætt og þá m.a. eins og
stjórntæki á sína. Það gerist
alltof oft að fólk kjósi einfald-
lega að kúga sína nánustu
með peningum ef það nær
ekki vilja sínum fram í sam-
skiptum við viðkomandi með
öðrum og ögn heppilegri
hætti.
ÁSKIL MÉR ÞANN RÉTT
Eða eins og pirraði piltur-
inn sagði: „Elskurnar mín-
ar. Vonandi fæ ég bráðum
frið fyrir ráðríku og ókurt-
eisu fólki. Ég get ekki
lengur liðið það lið sem
lætur eins og ég eigi eng-
an séns, án afskipta ann-
arra í stóru sem smáu mér
viðkomandi. Ég vinn fyrir
mér sjálfur og geri mitt
besta og áskil mér því
þann rétt að fá að vera ég
sjálfur. Ég ætla mér hvort
sem er sjálfur að taka öll-
um afleiðingum af lífi mínu
og breytni. Ég hlýt því að
hafa fullan rétt til þess að
gera það sem mér sjálfum
þykir fýsi- og forvitnilegt."
Með vinsemd, Jóna Rúna.
Gnoðarvogi 44-46 • 104 Reykjavík
sími: 39990
Elín Jónsdóttir, Hárgreiðslumeistari,
Ásta K. Árnadóttir, Lilja Jóhannesdóttir
Hársnynistofan
Hár-Tískan
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
SÍMI 50507
HARSNYRTISTOFAN
GRANDAVEGI 47 (þ 62 61 62
RAKARA- & HARfREiVmSTDFA
HVERFISGÖTU 62-101 REYKJAVlK
6. TBL. 1994 VIKAN 51
NAFNSPJOLD