Vikan - 01.08.1994, Blaðsíða 46
HEIÐURSFOLK
Fjöi- sP'la a skemmtunum. Mér
skyida finnst það gaman, hef svo
Ásdís- gaman af fólki. Það mikil-
af.er vægasta í lífinu finnst mér
mynd- vera að el9a 9oða fjolskyldu
arleg. og vini.
Ásdís og maður hennar,
Jón Gústi, byggðu upp eyði-
býlið Steinadal þegar þau
voru ung og þar uxu börnin
þeirra úr grasi.
„Við eigum sjö uppkomin
börn og níu barnabörn svo
oft er glatt á hjalla. Ég,
ásamt nokkrum barna
minna, tökum þátt f starfi
leikfélags Hólmavíkur og er
það alveg einstaklega
skemmtilegt og gefandi. Eg
er nú ekki heimsins besti
leikari og það er vegna þess
að ég skemmti mér svo vel á
meðan á sýningu stendur að
mér hættir til að gleyma text-
anum fulloft og hafa hvíslar-
arnir mikið að gera þegar ég
er í hlutverki hjá þeim. Mest
tek ég að mér að dútla við
tónlist fyrir félagið og taka
þátt í félagsstarfi þess og fæ
ég mikla útrás í þessu starfi."
Ásdís er hógvær og vill
ekki gera mikið úr hæfileik-
um sínum. Hún segist vera
„fúskari" og vasast í mörgu.
Hún les mikið, spilar á gítar
og er listakokkur.
Ljóð eftir hana hafa birst í
Lesbók Morgunblaðsins og
auk þess fæst hún við að
mála. Hún skreytti bæinn
sinn Steinadal á sínum tíma
og hún málar beint á veggi í
litla húsinu sínu á Hólmavík
en hún keypti það, þegar
yngstu börnin þurftu að fara í
skóla á Hólmavík.
„Ég er fljóthuga og vil
framkvæma hlutina strax.
Lifi fyrir líðandi stund. Stund-
um lendi ég í örðugleikum
vegna þessa en ég vil þó
alltaf vera jákvæð og finnst
hver manneskja vera af-
skaplega mikilvæg og verða
að fá að fara sína leið, sína
óvissu leið. Fyrir það greið-
um við það gjald sem lífið
setur upp og þá er við engan
að sakast.
Mér finnst að við eigum að
fara varlega í að skipuleggja
aðra. Við ættum að kenna
börnum okkar að sýna vænt-
umþykju og hlýju og vera
ánægð með það sem okkur
er gefið."
Þetta segir Ásdís Jóns-
dóttir, oftast nefnd Snúlla.
Hún hefur fylgt sannfæringu
sinni í gegnum lífið, upp-
skorið laun erfiðis síns og
greitt það gjald sem það hef-
ur kostað.
Tvær ömmustelpur koma
í heimsókn á meðan á við-
talinu stendur. Þær vita
hvar ísinn er og bjarga sér
sjálfar þar sem amma er
upptekin, í bili. Svo setjast
þær út á tröppur með ömmu
sinni og brosa móti mynda-
vélinni. Þær eru löngu bún-
ar að læra að það er alltaf
mikið fjör hjá ömmu
„Snúllu“. □
/ /c-t'T D'ÖK 6>UÖ KftRL- ÓA s. /H4>t/A/5- A/AF/VS lEVFiST T=hA STiAJCx /3/a/m þoFi $U\AjC.fí áÖLLU- A/AFaa
—> 1
"7 ] ' StQFft , / rtisjO Z
it— PCrfC, UM~ ERAM,
/ éiðA FR'fí £> TUÍ.D St/íF ST&KKA V * ► ► TiL r
PÍÍUM- E-F-rji 1b-jö£> 3 >
ffiUT- (/£*< 5 ;c>(\ l/ > ,/ 3í/Ð \/
þE.P'fl > \/ V y. ftfiér£S.T4 SoLMÖ Y
IREW Bl'oaa > íT >
T z J 9 ó mp
Lausnarorð síðustu krossgátu: STAURAR
46 VIKAN 6. TBL. 1994