Vikan


Vikan - 01.08.1994, Blaðsíða 27

Vikan - 01.08.1994, Blaðsíða 27
hans varð. Gömul, góðlátleg kona í rauðrósóttum kjól með hvíta svuntu reyrða um sig miðja, stóð við af- greiðsluborðið og beið þess að reiða fram þjónustu sína. - Ósköp ert þú kuldalegur, blessaður maðurinn. Þér veit- ir víst ekki af kaffisopanum aumingjanum, tautaði hún vingjarnlega. Svona ömmu- legt hjal yljaði Sverri til muna. Hann pantaði kaffi og klein- uhring. Gamla konan hækk- aöi í útvarpinu eins og til aö hressa aðeins upp á and- rúmsloftið. Van Morrison með lag sitt um brúneygðu stúlk- una hljómaði um litlu kaffi- stofuna. Eitt augnablik hugs- aði Sverrir um eðalvagninn sem átt hafði hug hans allan. Nú reyndi hann það sem hann gat að fá fallegu, brún- eygðu stúlkuna upp ( bílinn til sín. En það bara gekk alls ekki. Bjartsýni hans frá því fyrr um morguninn hafði vikið fyrir hinni örgustu svartsýni. Hann grúfði sig yfir bollann og maulaði kleinuhringinn daufur í dálkinn. Gamla konan gekk að borðinu til hans. - Hvað er það sem hrjáir unga manninn svo mjög? spurði hún góðlátlega. Sverrir leit á hana fjarræn- um augum. Jú, það gat ekki verið honum neitt hættulegt að losa örlítið um þungann og trúa henni fyrir þessari vonlausu leit. Hún hlustaði þögul á hann uns hann hvíslaði til hennar númerinu á miðanum. Gamla konan hugsaði sig dálítið um. Gleðiglampi kom í augu hennar. - Ég held ungi maður að leit þín sé á enda. Bara að þú hefðir komið fyrr. Ég veit um bensínstöð hér í ná- grenninu sem hugsanlega gæti átt þetta númer. Sverrir reis snöggt upp. - Ég keypti miða þar í morgun númer sautján eitt- hvað. Ég veit alltént að það var að nálgast töluna átján. Gamla konan gekk að af- greiðsluborðinu. Hún gerði dálítinn uppdrátt á bréfmiða af nærliggjandi götum og staðsetti þar bensínstöðina umræddu. - Þú verður að hafa hrað- ann á, sagði hún sigri hrós- andi og rétti honum miðann. Sverrir þrýsti hönd hennar í þakklætisskyni. Riddari götunnar hljómaði í útvarpinu. Sverrir setti í brýnnar og hraðaði sér út klæddur (mynduðum mótor- hjólagalla. Það hafði bætt talsvert í snjóinn og hálkan hafði auk- ist til muna. Sverrir renndi blint út á götuna. Hann átti engrar undankomu auðið þegar hátt hvisshljóð fjög- urra hjólbarða, sem drógust eftir hálli götunni, nálgaðist hann óðfluga. Hann fann höggið og síðan tómið þegar hann hentist hátt í loft upp. Hann baðaði út öllum útlim- unum i örvæntingu og von- lausri tilraun að taka af höggið við lendinguna. Eins og sandpoki féll hann með háum dink aftan við bílinn. Sverrir heyrði óskiljanlegar raddir í fólki sem stumraði yfir honum. Líf hans fjaraði hægt og rólega út. Hann neytti sinna síðustu krafta til að sjá bílinn sem klippt hafði á lífsþráð hans. Dauft bros kom á varir hans er augu hans greindu bílnúmerið. „Átján tuttugu og einn“. □ GLÓPAGULL 6.TBL.1994 VIKAN 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.