Vikan


Vikan - 01.11.1994, Blaðsíða 44

Vikan - 01.11.1994, Blaðsíða 44
< M CQ < Alltaf gam- an í boltan- um bara! f viötaliu er Magic meál annars spuröur um þaö hvers vegna hann gangisvona skringi- lega . . . Hins vegar er körfuboltinn líf mitt og yndi og ég ætla aldrei aö hætta aö leika körfubolta. Mig langar aö stunda boltann þannig að ég geti komið fólki til aö brosa og takist það þá brosi ég sjálfur." Á NÚ FLEiRI AÐDÁENDUR Hvaö meö önnur áhuga- mál? „Ég er mikill aðdáandi am- erísks fótbolta og ég hef gaman af hnefaleikum og tónlist af öllum geröum. Tón- list býr yfir þeim eiginleika að Allir í röö, allir í röö . . . Eftir stuttan könnunarleiöangur eftir kræsingaboröum matreiöslumeistaranna geröi Magic þriggja stiga kurteisiskörfu: Auövitaö meö því aö fara f röð- ina eins og öllu almennilegu fólki sæmir! geta hresst mann viö þegar maður er niðurdreginn og sérstaklega hrífst ég af fal- legum söng; ég nefni Whitn- ey Huston til dæmis og Michael Jackson er frábær, mér þykir Toni Braxton líka góöur og sömuleiðs Barbara Streisand og ég gæti nefnt marga fleiri. Ég hef einnig sérstakt yndi af ferðalögum og reyni að taka mér frí reglulega.“ Nú ertu á samningi við Pepsi, breyttist sá samning- ur eitthvað þegar smitið upp- götvaðist? „Pepsi hefur reynst mér mjög vel og samskipti mín við fyrirtækið hafa staðið nú um nokkuð langt skeið. Pepsi brást mér ekki. Ég hef þvert á móti fengið þaðan mikinn stuðning. Og það sama gildir um almenning. Ég átti marga aðdáendur sem leikmaöur í NBA deild- inni en þeim hefur fjölgað eftir að ég hætti þar og sneri mér að því sem ég er að gera núna. Það held ég sé vegna þess að ég er bara ég sjálfur og hef ekkert breyst. Það skiptir höfuðmáli." með það að fólk skuli yfir- leitt gera sér einhverjar hugmyndir um mig. Og víst geng ég skringilega. Ég geng hægt og rólega og reyni að láta lítið fyrir mér fara til þess að ég tefji eng- an. Þetta geri ég annars vegar til að spara orku og hins vegar til að blekkja andstæðinga mína; ef ég hreyfi mig hægt þegar ég er ekki að spila þá halda þeir að ég sé þannig f leik. Fé- lagar mínir hafa löngum gert mikið grín að þessu, þeir kalla mig afa!“ segir Magic Johnson. Að því sögðu stendur hann hæglátlega upp af stólnum og kjagar með um- ræddu göngulagi af stað út á körfuboltavöll, sem er raunar tennisvöllur með körfum, þar sem hann ætlar að taka nokkra af klúbbfé- lögum Pepsi Max í kennslu- stund. Þar eru á meðal nokkrir íslendingar. Orð Magics um það að hann blekki andstæðinga sína með því að hreyfa sig hægt og rólega þegar hann er ekki að sþila körfubolta fást staðfest um leið og hann er kominn með bolt- ann í hendurnar. Þá er eins og önnur sál yfirtaki líkama hans með miklu gríni, lipurð og látum. Hann hendir gam- an að klaufalegum tilburð- um lærisveina sinna þarna á veilinum, hermir eftir þeim með ýktum tilfæringum en kennir þeim síðan réttu hreyfingarnar og handtökin. Þegar því er lokið er ótrú- legt að sjá framfarir þeirra sem tóku þátt í leiknum með Magic Johnson í klukkustund eða þar um bil. Og eins og meðfylgjandi myndir bera með sér þá höfðu allir gaman af þessari uppákomu, einni af ótal mörgum, á Ibiza. VIL EIGA FREKAR EN ÞJÁLFA Hyggstu þjálfa Los Angel- es Lakers á næsta leiktíma- bili? „Enga þjálfun," svarar Magic ákveðinn og um leið og hann segir „nooooo coaching" slakar hann á andlitsvöðvunum og hristir höfuðið. Það væri gaman að sjá þessa líkamlegu tjáningu sýnda hægt á breiðtjaldi! Látbragðið segir allt um það að þjálfun sé ör- ugglega ekki inni í mynd- inni. „Ef ég væri þjálfari þá væri ég ekki hér á Ibiza til dæmis og á ferð um heim- inn. Þjálfun tekur yfir sjö daga vikunnar. Mig langar ekki að vinna sjö daga vik- unnar. Ég held ekki við sól- brúnkunni ef ég er að vinna sjö daga vikunnar,“ segir Magic hlæjandi og bætir síðan við: „Þjálfun er mjög erfið vinna og ég vil ekki lifa erfiðu lífi." Magic er þó tengdur L.A. Lakers á þann hátt að hann er einn eigenda liðsins. „Ég vil miklu frekar eiga liðið en þjálfa það og blessunarlega átti ég nóg af peningum til að gera þann draum að veruleika. Ég hef gaman af viðskiptum og vil starfa við þau og í þvi er einmitt fólgið hlutverk eiganda körfu- boltaliðs. En hann getur líka leyft sér að vera að heiman eins og hann langar til, það er ekki þrotlaus vinna sjö daga vikunnar.“ ÞEIR KALLA MIG AFA Mörgum þykir þú ganga nokkuð skringilega, hvað viltu segja um það? „Ég geri mig ánægðan v
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.