Vikan


Vikan - 01.11.1994, Blaðsíða 18

Vikan - 01.11.1994, Blaðsíða 18
ISLENDINGAR ERLENDIS þannig að auðvitað var ekk- ert skrýtið að þetta væri svona. Ég lét þetta þó ekki fæla mig frá, ég ætlaði mér að koma aftur og vera um tíma með Þóri. Það reyndist hins vegar erfitt að finna íbúð og verðið var uppsprengt því útlendingar voru farnir að flykkjast til landsins og stór fjölþjóðafyrirtæki voru að koma sér fyrir. Loks fundum við íbúð með húsgögnum sem var nú þannig að ég gat ekki hugsað mér að bjóða Loksins komin í almennilegt húsnæói og meö sitt eigiö innbú. þeim íslendingum heim sem hingað komu." „Og það á nú ekki við hana íu,“ skýtur Þórir inn í. „Allt vatn þurfti að sækja niður, af fjórðu hæð, og svo var draugagangur þarna,“ segir Ingibjörg og ygglir sig. „En þarna vorum við samt þangað til við flutt- um í nýtt einbýlishús, nú í janúar, og í vor fengum við loks allt innbúið okkar að heiman. Svo nú er lífið algjör lúxus." Fyrsta sumarið var öll fjöl- skyldan saman í Prag en um haustið fór sonurinn, Egill, í menntaskóla heima á íslandi og bjó þar með ættingjum en Soffía hóf nám í amerískum skóla í Prag. Síðar kaus hún þó að fara í skóla á íslandi. „Auðvitað hafði maður sam- viskubit af því að vera svona mikið í burtu frá krökkunum en þetta hefur sem betur fer síður en svo skaðað þá. Reyndin varð líka sú að við erum enn meira saman þann tíma sem þau eru hér og njótum þess miklu betur heldur en þegar við vorum heima. Þau hafa gaman af að vera hér á sumrin og eru mjög sátt við þetta fyrirkomu- lag. Við höfum ifka alltaf skroppið heim yfir veturinn og verið heima um jól. Nú er Soffía að fara heim eftir sum- arið og er að byrja í menntó en Egill verður hins vegar hér til áramóta og fer þá væntanlega í nám í Banda- ríkjunum." Ingibjörg er sannfærð um að þeim hafi verið ætlað þetta Pragævintýri, allur að- dragandi hafi verið þannig, þetta hafi bara gerst en aldrei verið tekin ákvörðun í því sambandi. „Aldrei hafði hvarflað að mér að ég ætti eftir að búa í Prag, af öllum borgum. En hún höfðaði strax óskaplega sterkt til mín, ég finn svo mikla friðsæld hér og skynja svo vel ná- lægðina við gamla tímann." Hún viðurkennir þó að visst menningarsjokk hafi gert vart við sig í fyrstu og að fyrsti veturinn hafi verið afar erfið- ur án barnanna, ættingja og vina. Ingibjörg var því fegin er henni var boðið að ganga í klúbb erlendra kvenna stuttu eftir að hún var sest að í Prag. „Þá vorum við bara tólf í klúbbnum en nú erum við sextíu. Klúbburinn reynd- ist hið mesta þarfaþing því m.a. gátum við skipst á upp- lýsingum um hvar hægt væri að kaupa hinar ýmsu nauð- synjavörur. Það gat tekið upp í fjóra tíma að versla inn því þó ekki væri vöruskortur þá voru búðirnar dreifðar og í einni var seld mjólk, kjöt í annarri, nýlenduvörur í þeirri þriðju og svo framvegis. Mat- arvenjur eru líka svo ólíkar því sem maður þekkti og vöruvalið var samkvæmt því. Um tíma fór ég einu sinni í viku yfir til Þýskalands til að kaupa í matinn. Og eftir fyrsta árið hafði Þórir keyrt 60 þúsund kílómetra til að nálgast eitt og annað sem vantaði á veitingastaðinn. Einu sinni þurfti hann til dæmis að fara yfir landa- mæri eftir pipar. En nú eru komnir fínir stórmarkaðir og úrvalið ekki síðra en heima." ÍSLENSKUR FISKUR OG VAFNINGAR Samskipti þeirra hjóna við Tékka eru enn ekki mikil nema í gegnum starfið. Telja þau það vera eins og al- mennt gerist þegar fólk með ólíkan menningarbakgrunn og hugsunarhátt sest að í framandi landi. Auk þess segja þau Tékka tortryggna gagnvart útlendingum sem komið hafa til að freista gæf- unnar og, að mörgu leyti, haft forskot á þá sjálfa. Það finnst þeim ofur eðlilegt. „Við fórum svo sem ekkert var- hluta af þeirri tortryggni," segir Þórir, „vorum fremur lött en hvött lengi vel. Samt sem áður nutum við, sem íslend- ingar, betra viðmóts en til dæmis Þjóðverjar og Amer- íkanar sem Tékkar telja að ætli sér allt að gleypa." Ingi- björg viðurkennir að hún hefði gjarnan viljað vita meira um venjur og siði Pragbúa er hún kom. „Það hefði komið í veg fyrir smá misskilning hér og þar, eins og til dæmis þegar ég bauð nágrönnum í kaffi og enginn snerti kökurn- ar á fatinu. Ég hélt auðvitað að þeim þættu þær svona ógeðslegar en komst að því síðar að það er ekki til siðs að fólk skammti sér sjálft, það gerir húsmóðirin." Sitt- hvað kom Þóri líka á óvart. „Til dæmis var merkilegt að sjá ef eitthvert álitamál kom upp, eins og hvort glösin ættu að standa svona eða hinsegin, þá þurfti öll vaktin að koma og ræða málið dá- góða stund, allir höfðu sína skoðun á því en enginn tók ákvörðun. Og annað, ef ein- hver á nafnadag eða afmæli þá þykir sjálfsagt að byrja daginn með því að skála í kampavíni eða snafs og svo er verið að vökva sig allan daginn. Þennan sið kunni ég ekki að meta og vildi ekki samþykkja svo menn hafa orðið að sætta sig við það eða hætta.“ „Vel á minnst, hver sagðist vera hættur að tala,“ segir Ingibjörg og lítur stríðnislega á mann sinn. Þórir hlær og heldur ótrauður áfram: „En burtséð frá svona smáatriðum þá eru Tékkar harðduglegir og eiga eftir að bjarga sér allra best fyrrum austantjaldsþjóða, enda er uppbygging hér lengst á veg komin. Landið var mjög auð- ugt, eins og sjá má af þeim stórkostlegu byggingum sem hér eru, og nú, eftir skiptingu landsins og með sívaxandi ferðamannastraumi, verður ekki langt í að þjóðin verði fjáð á ný. Árlega koma nú 60-70 milljónir ferðamanna til Tékklands, sem er sex- til sjöfaldur íbúafjöldi landsins. Það er því kannski ekkert skrýtið að bara fram hjá Reykjavík Praha gangi um 60.000 manns á klukkutíma yfir hásumarið, samkvæmt nýlegri talningu." Og hluti þeirra ratar nokk inn á veitingastaðinn Reykjavík Praha því á einu ári hafa komið þangað um 120.000 gestir, að langmestu leyti er- lendir ferðamenn. Þórir segir nafnið Reykjavík hafa reynst mun áhrifaríkara en nafn fyrri staðarins, ísland, sem gjarn- an hafi misskilist og þá eink- anlega af enskumælandi fólki. „Fólk man greinilega eftir fundi Reagans og Gor- batsjovs í Reykjavík. Það líð- ur varla sá dagur að við fáum ekki fyrirspurnir um ísland, sem við greiðum auðvitað úr með mestu ánægju, en því miður er þónokkur misbrest- ur á að við fáum send öll þau gögn að heiman sem við höf- um óskað eftir. Einn ferða- málafrömuðurinn taldi þenn- an markað hér harla lítils virði því Tékkar hefðu ekki efni á að ferðast. Þetta er skammsýni, íslensk ferða- málayfirvöld þurfa ekki síður að huga framtíðinni. Unga fólkið hér er mjög áhugasamt um ísland og þess tími mun koma, á því er enginn vafi. En að öðru leyti er skoðun mín sú, eftir þessa reynslu hér, að þeir, sem eru að fást við landkynningu heima, ættu að stuðla að því að komið verði upp veitinga- stöðum í nokkrum stórborg- um erlendis, til dæmis með Reykjavíkurnafninu. Slík landkynning kostar ekki mik- ið og ég er sannfærður um að hún myndi skila sér betur en margt annað sem reynt er.“ Þórir segir að fyrsta flokks íslenskt fiskmeti nægi til að staður eins og Reykjavík Praha skeri sig úr og þyki eft- irsóknarverður. „Við vorum eðlilega fyrst hér til að bjóða upp á íslenskan fisk en ekki leið á löngu þar til fjöldinn all- ur af veitingahúsum fór að auglýsa slíkt hið sama, þó að fiskurinn sá væri af allt öðru þjóðerni." En þær voru fleiri nýjungarnar sem bryddað var upp á á Reykjavík Praha og vöktu athygli. Meðal ann- ars var auglýst að þar væru borð ekki frátekin - þeir sem kæmu fyrst fengju þjónustu fyrst. „Áður fékk fólk ekki inn- göngu á veitingastað nema að hafa pantað borð með góðum fyrirvara, jafnvel þótt staðurinn væri tómur. Eins var þess vandlega gætt að ekki sæist inn, gluggatjöld alltaf dregin fyrir. Þeir vöktu því ekki litla athygli vafning- arnir hennar íu sem bara 1 8 VIKAN 10. TBL. 1994
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.