Vikan - 20.09.1995, Síða 6
TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIR UÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
HÚN LIFIR SIG INN
í HEIM
MIÐALDARMÁLARA
OG SKAPAR GULLI
SLEGIN LISTAVERK
SEM UNNIN ERU Á
SAMA HÁTT OG
HELGIMYNDIR
RÉTTTRÚNAÐAR-
KIRKJUNNAR.
Hvítur hjörtur
Listakonan kemur til
dyra í svörtum, þröng-
um buxum og svörtum
jakka með Ijóst, stuttklippt
hárið greitt aftur. Hún heilsar
og bíður til ferskjulitaðrar
stofu. Antiksófi frá sautjándu
öld stendur uppi við einn
vegginn þar sem helgimynd,
íkon, hangir. „Við fluttum inn
á þriðjudaginn var," segir
hún. Viðmælandinn er ung
kona, Kristín Gunnlaugsdótt-
ir, sem þessa dagana heldur
sýningu á Kjarvalsstöðum.
Maðurinn hennar, írinn Brian
FitzGibbon, sem hefur starf-
Bláir englar
að sem þýðandi, túlkur og
handritshöfundur, taldi hana
á að koma til Islands þar
sem hann ákvað að læra ís-
lensku en þau hafa búið á ít-
alíu þar sem Kristín hefur
numið og starfað undanfarin
átta ár. Á hverju ári hefur
hún þó dvalið í fjóra mánuði
á Akureyri þar sem hún er
fædd og uppalin. í april á
næsta ári mun hún halda til
Ítalíu og vera þar um sumar-
ið en meiningin er að koma
aftur til íslands þegar sól fer
að lækka á lofti.
NAM HJÁ SYSTUR
PATRICIU
Tuttugu og fjögurra ára
gömul, nýútskrifuð frá Mynd-
lista- og handíðaskólanum í
Fteykjavík, hélt Kristín til
Rómaborgar þar sem hún
dvaldi í klaustri Franciscu-
systra í tæpt ár. Hún vildi
kynnast klausturlífi af eigin
raun þótt lútersk væri og
nota tækifærið í leiðinni til að
sinna hugðarefni sínu. Þær
voru nokkrar systurnar sem
máluðu og ein þeirra, systir
Patricia, einbeitti sér að gerð
íkona. íslenska listakonan
heillaðist af þessari dular-
fullu og forvitnilegu list og
varð systirin leiðbeinandi
Kristínar þann tíma sem hún
dvaldi innan veggja klaust-
ursins. Eftir klausturdvölina
hóf Kristín nám í Ríkisaka-
demíunni í Flórens þar sem
hún var í fjögur ár og eftir
það fór hún í eins árs sér-
nám í freskumálun. „Mein-
ingin með því námi var að
kynnast þeirri gömlu tækni
sem ítalska arfleifðin hefur
upp á að bjóða. Og það er
enginn smá hafsjór."
ÍKONAR
„Tæknin sem notuð er við
gerð íkona, sem gerðir eru
algjörlega úr náttúrulegum
efnum, er ein sú elsta sem
FRH. Á BLS. 21
6 VIKAN 9. TBL. 1995