Vikan - 20.09.1995, Page 8
KVIKMYNDIR
TEXTI: HELGA MÖLLER
UÓSM.: HREINN HREINSSON, MARGRÉT MARÍA PÁLSDÓTTIR O.FL.
Fyrir um það bil sjö árum
sat stóreygð, tveggja
ára telpa og fylgdist
gaumgæfilega með föður
sínum leikstýra börnum í
myndinni Pappírspésa. Þrátt
fyrir að hana langaði mikið
að fá að vera með varð hún
að láta sér lynda að vera
áhorfandi.
Síðan hefur þónokkuð
vatn runnið til sjávar. Stúlkan
verður bráðum níu ára göm-
ul og hefur nú lokið við að
leika í fimm myndum, þar af
lék hún stór hlutverk í fjórum
þeirra. Hún heitir Bergþóra
Aradóttir og mun sjálfsagt
heilla margan kvikmynda-
hússgestinn á næstunni því
- v««r m
--M
Bergþóra sem Líf Leifs í einu atriði kvikmyndarinnar
Tár úr steini ásamt Þresti Leó Gunnarssyni sem
leikur Jón Leifs.
að um þessar mundir eru að
hefjast sýningar á myndinni
Tár úr steini sem fjallar um
Jón Leif tónskáld en hún
leikur yngri dóttur hans, Líf.
„Hún er falleg, greind, prúð,
hæfileikarík og skemmtileg,
alveg eins og dóttir mín. . .
yngsti „proffinn" sem ég hef
kynnst," segir Hilmar Odds-
son, leikstjóri kvikmyndar-
innar, um Bergþóru.
Áður en við kynnumst
hlutverki Bergþóru í mynd-
inni Tár úr steini skulum við
fara nokkur ár aftur í tímann.
Foreldrum Bergþóru, Mar-
gréti Maríu Pálsdóttur og Ara
Kristinssyni kvikmyndatöku-
manni duldist ekki áhugi
hennar á að fá að leika. Hún
átti spólur með Karde-
mommubænum og fleiri leik-
ritum og heima í stofu fór
hún með heilu kaflana upp
úr þeim með tilburðum og al-
veg nákvæmlega eins og
leikararnir gerðu. Það gaf til
kynna að hún gæti sett sig í
ýmsar stellingar. Fyrsta
mynd hennar, sjónvarps-
myndin Gamla brúðan, sem
faðir hennar leikstýrði, var
skrifuð með hana ( huga og
var beðið með að taka hana
þar til hún var orðin nógu
stór til að takast á við aðal-
hlutverkið, rétt fjögurra ára
gömul. Það
má því næst-
um segja að
hún hafi
drukkið leikinn
í sig með
móðurmjólk-
inni.
„Henni
finnst þetta allt
mjög eðlilegt,"
segir Ari Krist-
insson, faðir
hennar. „Börn,
sem aldrei
hafa komið
nálægt því að
leika og eru
fengin í hlut-
verk, halda að
allt gerist jafn hratt og þau
horfa á það í sjónvarpinu og
verða því óþolinmóð og
missa kannski áhugann þeg-
ar þau komast að því hvern-
ig unniö er. Þau fá stundum
bara að segja eina setningu
á dag, þurfa að gera sama
hlutinn aftur og aftur og eyða
þar að auki miklum tíma í að
bíða. Bergþóra hafði fylgst
með framvindu mála frá því
hún var tveggja ára og var
því búin aö sætta sig viö út á
hvað þetta gengur áður en
hún lék í fyrsta sinn.“
Meðan faðir hennar lýsir
leikferli dótturinnar stendur
tðsS'Já
hún prúð og þögul hjá og
leggur ekkert til málanna.
Þótt hún sé orðin alvön leik-
kona er ekki víst að hún sé
jafn vön að láta taka við sig
viðtöl og því gott að hafa
pabba sér til halds og traust.
Hún kemst þó ekki alveg hjá
því að segja
okkur eitthvað
um leikferilinn.
„Fyrst var
Gamla brúðan,
svo Jól á
sjúkrahúsi, síð-
an Tár úr steini
og Draumadís-
ir,“ þylur Berg-
þóra upp þegar
hún er beðin að
telja upp mynd-
irnar sem hún
hefur leikið í.
Reyndar
gleymir hún lít-
illi jólamynd hjá
sjónvarpinu,
enda var hlut-
verkið ekki stórt
í henni og
gleymist í sam-
anburði við hin.
Síðastnefnda
myndin,
Draumadísir,
mynd Ásdísar
Thoroddsen, er
enn á klippi-
borðinu, svo
nokkuð er í að
hún verði tekin
til sýninga. Enn
ein myndin bíð-
ur svo Berg-
þóru og verður tekin upp
næsta sumar. Hún verður í
höndum föður hennar sem
varð eiginlega að bíða eftir
að dóttirin losnaði úr öörum
verkefnum.
„Já, það fréttist af henni,“
segir hann. „Það stóð ekkert
til að hún léki ( Tár úr steini
og Draumadísum en þegar
til kastanna kom voru eðli-
lega mjög fá börn á aldrinum
fimm til sjö ára sem kunna
að vinna svo að í þrufum
kom hún best út.“ Faðirinn
skellir spólu ( myndbands-
tækið og sýnir atriði úr
myndinni sem sýnir atvinnu-
manninn litla að verki. Þar
grætur stúlkan fögrum tárum
um leið og hún fer með text-
ann af innlifun.
Hvernig er hægt að fá lítið
barn til að gráta eftir pöntun?
Bergþóra þegir, brosir litið
eitt og lítur til pabba síns.
Hann verður fyrir svörum.
„í fyrstu myndinni var það
gert á dálítið miskunnarlaus-
an hátt. Brúðan var tekin og
hausinn snúinn af fyrir fram-
an hana.“ Ari hlær og Berg-
þóra kímir. „Annars þarf bara
að ímynda sér eitthvað sem
er skelfilegt en er þó allt i
plati,“ heldur hann áfram.
Bergþóra ásamt föður sfnum, Ara Krist-
inssynl, kvikmyndatökumanni. Hvort
þeirra skyldi vera með sfðara hór?
8 VIKAN 9. TBL. 1995