Vikan - 20.09.1995, Blaðsíða 35
TEXTI: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR
HANNARFYRIR
AUÐKÝFINGA
INEWYORK
Björn Björnsson innanhúss-
arkitekt í New York.
Þessi mynd er úr húsinu við Riverside Drive en kostnaðurinn við breytingarnar nam langt á
annað hundraö milljónum króna.
Af og til heyrum við
sögur af íslendingum
sem eru að fást við
óvenjulega hluti í útlöndum.
Einn þeirra er Björn Björns-
son innanhússarkitekt í New
York. Verksvið hans er ef til
vill ekki óvenjulegt, hann
sinnir hönnun á heimilum og
hótelum jafnt sem húsa-
kynnum stórfyrirtækja um
allan heim en upphæðirnar,
sem eru í spilinu, vekja undr-
un okkar sem ekki höfum
kynnst milljarðamæringum
heimsins. Nýlega lauk Björn
til dæmis við að endurbæta
og breyta húsi piparsveins á
Riverside Drive í New York
og þegar upp var staðið
kostaði verkið „litlar" 140
milljónir islenskra króna.
Án efa muna einhverjir eft-
ir Birni frá því hann ólst upp í
Ásgarðinum í Reykjavik og
gekk í Breiðagerðis- og Rétt-
arholtsskóla. Þaðan lá leiðin
til Kaupmannahafnar þar
sem hann ákvað að læra
innanhússhönnun. Að námi
loknu fékk Björn vinnu hjá
sænsku fyrirtæki og hannaði
meðal annars á þess vegum
innréttingar og húsbúnað í
Hótel Evrópu í Stokkhólmi.
Frá Svíþjóð lá leiðin til Bag-
dad þar sem Björn hannaði
hótel nánast undir vernd lit-
varða því ekki var talið óhætt
að ungur og Ijóshærður ís-
lendingur væri að þvælast
um í Bagdad því stríðs-
ástand ríkti í landinu.
En nú fóru hjólin að snú-
ast og orð barst af Birni vest-
ur um haf. Hann hefur síðan
unnið í Bandaríkjunum og
hannað heimili, hótel, skrif-
stofur og veitingastaði og
verkin hljóða upp á tugmillj-
ónir króna. Stundum þarf að
beita sálfræði til að fá þessi
verk eins og þegar Björn
hannaði innréttingar í Hótel
Hankyu International í Os-
aka. Þegar kynning á tillög-
unum fór fram lét Björn tvo
þjóna bera inn svínsleðurs-
kassa sem settur var á borð
í miðjum salnum. Japanir
eru forvitin þjóð að eðlisfari
og kassinn vakti mikla at-
hygli. í lok kynningarinnar
færði Björn forsvarsmanni
Japananna kassann að gjöf
en ( honum voru teikningar
og sitthvað fleira sem til-
heyrði hugmyndasamkeppn-
inni. Björn fékk verkið! Með
þessu hafði hann náð at-
hygli, sem annars hefði verið
erfitt að ná, þegar kynntar
voru fjölmargar bráðsnjallar
hugmyndir að útfærslu hót-
elsins.
í New York hefur Björn
meðal annars hannað inn-
réttingar og allt skipulag (
fjögurra hæða húsi við
Riverside Drive. Verkið kost-
aði litlar 140 milljónir króna. í
það skiptið fékk hann heim-
sókn Black Coalition, sam-
taka svartra, sem gjarnan
láta sjá sig þar sem verið er
að vinna stórverk. Þeir setja
mönnum skilyrði: Svertingjar
verði ráðnir til verksins, álit-
legar upphæðir greiddar
samtökunum eða eigendur
megi eiga von á að ekki
verði mikið eftir af bygging-
unni þegar yfir lýkur.
Hús og híbýli munu birta
grein um Björn og verk hans
vítt og breitt um heiminn í
blaðinu sem kemur út í byrj-
un október. Myndirnar, sem
fylgja af verkum Björns, eru
ævintýri líkastar. Síðar mun-
um við svo segja frá spenn-
andi verkefni, sem Björn
vann fyrir Gyðingasamfélag (
Brooklyn, en þar innréttaði
hann óvenjulegt barnaheim-
ili. Væntanlega verða sams
konar heimili sett upp víðar á
næstunni eftir hönnun
Björns.
En það er fleira spennandi
( Húsum og híbýlum. Þar
verður hægt að sjá hvernig
Magnús Scheving, hinn
þekkti þolfimimaður, hefur
búið um sig. Heimili hans er
óvenju fallegt og glæsilegt
þótt kostnaðartölur hafi
kannski ekki farið alveg (
það sem gerist hjá þeim sem
fengið hafa Björn Björnsson
til að skipuleggja heimili sín í
stórborginni New York. □
Magnús Scheving lætur fara
vel um sig í stofunni á heim-
ili sínu sem lesendur H&H
fá aö berja augum í næsta
tölublaöi.
9.TBL.1995 VIKAN 35
STARF ERLENDIS