Vikan - 20.09.1995, Blaðsíða 40
VILL AÐ TÍSKAN SÉ UFANDI
Japanski tískuhönnuðurinn
og Parísarbúinn Kenzo
kom fyrst til borgarinnar í
janúar 1965. Hann drakk í sig
menninguna, gekk um strætin,
sat á kaffihúsum og fylgdist meö
mannlífinu. Honum fannst
franskar konur vera fallegar og
smekklega klæddar. „Þær litu all-
ar út eins og sýningarstúlkur,"
segir hann. Með hjálp japanskra
vina komst hann í samband við
fremstu hönnuði og fyrirtæki á
sviði kventísku. Hann fór á tísk-
usýningar, lærði frönsku, eign-
aðist fleiri vini og smám saman
fór hann aö líta á sig sem París-
arbúa. Til aö vinna fyrir sér seldi
hann hönnun sína meöal ann-
ars Louis Féraud. Ásamt fleiri
Japönum opnaöi hann sfna
fyrstu tískuvöruverslun undir
nafninu Jungle Jap og í hönnun
hans voru áberandi handmáluö
blómamynstur. Fyrsta tískusýn-
ingin hans var haldin í verslun-
inni í april 1970. Frískleiki hans
og ímyndunarafl vakti athygli og
honum var slegiö upp á forsíöu
tímaritsins ELLE. Þá fór boltinn
aö rúlla.
i hönnun sinni leggur Kenzo
áherslu á hugmyndaflug og
frískleika og hann hefur alltaf
fariö ótroönar slóöir í sköpun-
inni. Hann kemur sífellt fram
meö nýjungar; ,.ég bæti hinu
óvænta viö hiö sígilda," segir
hann. Hann er sjónhverfinga-
maöur hvaö varðar val á öllum
regnbogans litum og í litanotkun
hans gætir japanskra áhrifa.
Hann blandar saman kasmírull,
köflóttum og doppóttum efnum,
leoparda- og sebramynstri og
blóm eru hans aöalsmerki. Auk
þess er hann snillingur hvaö
varðar útsaum á flíkum, boröa
og fellingar. Úr þessari óvenju-
legu samsetningu veröur til ein-
stakur glæsileiki. „Ég er ekki aö
reyna aö gera tískuna full-
komna," segir hann. „Ég vil aö
hún sé lifandi." Hugmyndir fær
hann úr náttúrunni, á feröalög-
um og úr listum. Hugmyndir
kvikna þegar hann sér hin ýmsu
forrn, fjarlæg lönd geta veitt
honum innblástur og liann fær
jafnvel hugmyndir með því aö
skoöa verk listamanna á borö
viö Monet, Gauguin og Matisse.
Kenzo-verslanir eru út um allan
heim og meistarinn hefur fengiö
verölaun fyrir hönnun sína.
Hann var fyrsti Japaninn í París
sem hóf ilmvatnsframleiðslu.
Kenzo de Kenzo var sett á
markaöinn 1988, Kenzo pour
homme 1991, Parfum d'ete 1992
og þaö nýjasta er Kashaya de
Kenzo. I I