Vikan - 20.09.1995, Blaðsíða 45
FREISTINGARNAR
MARGAR
Finnurðu fyrír því að
menn reyni að kom-
Marga þeirra hef ég átt frá
því ég var þriggja ára í leik-
skóla. Þrátt fyrir að freisting-
arnar, sem fylgja starfi mínu,
séu margar þá hef ég aldrei
skipt um vinahóp."
Hvað ræður vali á tónlist í
þættinum þínum; er það
þinn eigin smekkur eða
er það fyrírfram mótuð
stefna íslenska út-
varpsfélagsins?
„Ég hef í rauninni
algerlega frjálsar
hendur. Ég vel það
sem mér finnst best.
Mér finnst það ekki
heppileg aðferð að spila
tónlist sem á að gera öll-
um til geðs. Sumir fyrir-
rennara minna í starfi
reyndu að spila lög af öllum
tegundum til að gera sem
flestum til geðs. Ég vil ekki
spila þungarokkslög ein-
göngu til að láta þungarokk
heyrast."
Púkkarðu mikið upp á ís-
lenskar hljómsveitir?
„Ég reyni að gera vel við
íslensku hljómsveitinar og
þær fá meira og meira
pláss í þættinum. íslensk
tónlist er þó mjög misjöfn
og íslenskir tónlistarmenn
eru mjög uppteknir af því
að allir eigi að taka mark á
þeim af því að þeir bjóði
fram íslenska tónlist. Ég get
ekki verið sammála því. Ég
vil velja hljómsveitir eftir
gæðum. Oft kemur það fyrir
að hljómsveitir hafa sam-
band við mig á mánudegi en
hafa skipt um nafn á þriðju-
degi og jafnvel fengið
söngvara á miðvikudegi.
Það er afar erfitt að eiga
slíkt.
Þrátt fyrir ýmis
þá á ég erfitt með að neita
íslenskum hljómsveitum um
að koma fram í þættinum.
Stundum verð ég þó að
segja þvert nei en það er í
þeim tilfellum þegar mynd-
böndin eru það slök að
er hægt að senda þau í loft-
ið. Einhvers staðar verður að
setja mörkin.
Tæknimálin eru mjög flók-
in og menn verða að tileinka
sér tæknina. Geri menn það
ekki eru hlutirnir tómt klúð-
ur.“
ast I mjúkinn hjá þér til að
koma list sinni á framfærí;
múta þér jafnvel?
„Já, það er engin spurn-
ing. Fólk gefur manni boli,
derhúfur, gallajakka og
hvaðeina. Svo er mikið um
að sjónvarps- og útvarps-
mönnum sé
boðið á fyl-
lerí. Við
köllum þetta ekki mútur en
hvað er þetta annað? Menn
verða að taka þátt í öllu eða
engu, það þýðir ekkert að
velja úr og taka bara þátt í
því sem manni líkar best.
Það er þó margt í boði sem
freistar, ég verð að viður-
kenna það.“
Finnst þér starf þitt gefa þér
mikil völd?
„Já, ég hef völd en ég
hefði ekki verið ráðinn í þetta
starf ef dómgreind minni
hefði ekki verið treyst. Ég
verð að vera traustsins verð-
ur. En af því að þetta er svo
lítið land þá skapast mikil
tengsl á milli manna í tónlist-
fjölmiðla-
geiranum. Þessi tengsl geta
bæði verið af hinu góða og
hinu slæma. Það eru nokkur
dæmi um tengsl listamanna
og dagskrárgerðarmanna á
öllum fjölmiðlum. Þetta
skapar togstreitu.
Ég er þannig að ég reyni
að gefa öllum tækifæri óháð
kunningskap eða vináttu-
tengslum en það verða þó
alltaf einhverjir útundan.
Margir tónlistarmenn sitja úti
í horni og bíða eftir að mað-
ur uppgvöti þá. Ef ég geri
það ekki úthrópa þeir mig
sem aumingja.“
Hvaða islenskir tonlistar-
menn skara fram úr í dag að
þínu mati?
„Mér finnst Unun hafa kom-
ið mjög sterk inn á markaðinn
á siðasta ári. Spoon er einnig
góð hljómsveit en er því miður
hætt störfum. Emilía Torrini
er efni í mikla stjömu; hún
er hæfileikarík, góð söng-
kona og skemmtileg í
þokkabót. Björk er
náttúrlega búin að
slá öll met, sem
hægt er að slá,
en á því hafði ég
litla trú fyrir-
fram. Sjáifum
fannst mér
Debut ekkert
ofsaleg góð
plata en nýjasta
plata Bjarkar er
frábær. Ég hugsa
þó að fáir séu
sammála mér
hvað þetta
varðar.
„Margir tón-
listarmenn
sitja úti í
horni og bíó<
eftir aö maö-
ur uppgötvi
þá. Ef ég ger
þaö ekki út-
hrópa þeir
mig sem
aumingja.“
TONUST