Vikan


Vikan - 20.11.1995, Page 22

Vikan - 20.11.1995, Page 22
steinunn hef alla tíð verið mjög sjálf- viður- stæð.“ kenmr að f f|jótu bragði virðlst Stein- meö unn ekki bua yfir neinum deiiu fyrir veikleikum. Þegar vel er gáð skóm. koma þeir hins vegar í Ijós. „Ég er með dellu fyrir skóm,“ viðurkennir hún. „Ég á ansi mörg pör. Þegar ég var yngri ofbauð föður mfn- um einu sinni öll skópörin og lagðist í það mikla verk að telja þau. Þau reyndust vera 29! Ég tek það fram að þau eru mun færri í dag.“ ALVÖRU PÓLITÍK Steinunn vakti fyrst athygli þjóðarinnar fyrir þremur ár- um þegar hún gegndi for- mennsku í Stúdentaráði fyrir hönd Röskvu. Þá höfðu nýju lánasjóðslögin verið lögð fram og Steinunn barðist hatrammlega fyrir því að þeim yrði breytt. „Þetta var mjög spennandi tími og þarna fékk ég fyrst tækifæri til að taka þátt í al- vöru pólitík. Ég leit þó aldrei á stúdentapólitíkina sem stökkpall út í virðingarmeiri stöður í þjóðfélaginu. „ Ásamt félögum sínum úr Stúdentaráði gekk Steinunn á fund þingmanna til að reyna að hafa áhrif á þá. Lánasjóðsfrumvarpið tók vissulega breytingum fyrir þeirra tilstilli en það var þó ekki nóg. „Nú eru menn til dæmis að átta sig á þeim árekstri sem verður á milli lánasjóðskerf- isins og húsnæðiskerfisins. Þetta höfðum við þegar bent á.“ Eitt síðasta embættisverk Steinunnar sem formaður Stúdentaráðs var að standa fyrir mótmælum þegar lögin voru samþykkt á þingi vorið 1992. Var atkvæðagreiðsla þingmanna trufluð af stúd- entum sem lásu upp úr skrif- um Jóns Sigurðssonar um skólamál. Þótt ekki hafi allt það náð fram að ganga sem Steinunni dreymdi um á hún góðar minningar frá þeim tíma sem hún starfaði með Röskvu og það sem meira er; hún á góða vini þaðan líka. „Við vorum ekki aðeins vinir í pólitíkinni heldur líka utan hennar. Við hittumst enn reglulega." Í UPPHAFI EKKI SANNFÆRÐ UM SAMEIGINLEGT FRAMBOÐ Sumrinu 1992 eyddi Stein- unn við að semja BA-ritgerð í sagnfræði sem fjallaði um fyrstu íslensku kennslukon- urnar. Sama sumar „datt“ hún inn í Kvennalistann eins og hún orðar það. „Frá því Kvennalistinn var stofnaður árið 1982 hafði ég dáðst að konunum sem þar störfuðu. Þótt ég hefði aldrei verið pólitískt þenkjandi sem táningur gerðist ég áskrif- andi af Veru þegar ég var unglingur. Ég gekk hins veg- ar ekki til liðs við Kvennalist- ann fyrr en ég útskrifaðist úr Háskólanum." Fljótlega var farið að fela Steinunni ábyrgðarstörf inn- an samtakanna og þegar umræður hófust um sameig- inlegt framboð þáverandi minnihlutaflokka var hún beðin um að vera fulltrúi Kvennalistans í viðræðum þeirra. „í upphafi var ég ekki sannfærð um að sameigin- legt framboð væri rétta leiðin þótt mér þætti vert að skoða þann möguleika. Þegar mál- efnasamningurinn hafði ver- ið gerður var eftirleikurinn hins vegar einfaldur." Steinunn hafði ekki hugs- að sér að fara í framboð þegar hún tók þátt í viðræð- unum en svo fór að hún var valin í 7. sæti Reykjavíkur- listans í forval innan samtak- anna. „Það sagði enginn neitt við mig en ég býst við að mörg- um hafi fundist þetta skrýtið þar sem ég var nýgengin til liðs við samtökin." Steinunn segir að sér hafi aldrei hrosið hugur við þeirri ábyrgð sem henni var falin. Kosningabaráttan var að mörgu leyti ólík þeim hug- myndum sem hún hafði gert sér og fannst henni baráttan stundum minna á Stúdenta- pólitíkina. „Návigið við kjósendur er svo mikið og það er verið að fjalla um mál sem snerta alla beint. í bæjarstjórnarkosn- íngum er nefnilega verið að fást við mál sem snerta göt- una sem hinn almenni kjós- andi býr við eða girðinguna í kringum garðinn hans. Fólki finnst því oft sem bæjar- stjórnarmálin snerti það meira en landsmálin." Það er ekki heiglum hent að koma ný inn í borgar- stjórn og því fékk Steinunn að kynnast. „Fyrsta árið fannst mér erfitt að vera að læra inn á kerfið um leið og ég stjórnaði því. Ég vissi oft ekki al- mennilecja hvernig kerfið virkaði. I upphafi var Ijóst að R-listinn legði aðaláherslu á dagvistunar- og skólamál og ég held að fólk sé þegar far- ið að sjá mikinn mun í þeim málaflokkum. Við verðum að fá áframhaldandi umboð til að geta haldið áfram á þeirri réttu leið sem ég tel okkur vera á.“ KVENNALISTINN ER EKKI HEILÖG STOFNUN Mikið hefur verið rætt um möguleika þess að vinstri flokkarnir gangi í eina sæng. Steinunn telur það geta orð- ið býsna erfitt. „Þó er nauðsynlegt að svokallaðir félagshyggju- flokkar starfi saman að ein- hverju leyti. Ég tel enga ástæða til þess að einhverjir flokkar verið lagðir niður og úr verði einn sambræðingur. Ekki hefur enn verið rætt um það hvað á raunverulega að sameina. Ég efast þó ekki um að svipað geti gerst og með R-listann þ.e.a.s. að þegar fólk hefur komið sér saman um ákveðin atriði geti samstarfið gengið og áður ósameinaðir flokkar unnið sem eitt afl. Það er til dæmis áhyggjuefni hvað Kvenna- listinn mælist með lítið fylgi," segir Steinunn áhyggjufull á svip. „Á kosninganótt þegar Kvennalistinn datt út á tíma- bili velti ég því fyrir mér hvort ekki væri alveg eins gott að Kvennalistinn þurrkaðist út svo fólk sæi hversu mikil þörf væri fyrir hann því hlut- verki Kvennalistans í ís- lenskum stjórnmálum er svo sannarlega ekki lokið þrátt fyrir slæma útreið hans í kosningum. Fyrir mér er 22 VIKAN 11. TBL. 1995
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.