Vikan - 20.11.1995, Qupperneq 106
FELULEIKUR VIKUNNAR
/
GJAFIR
Hér á síðunni birtist
sama teikningin í
tveim útgáfum. Sex
atriði hafa breyst á milli
mynda. Þegar þú hefur fund-
ið þessar breytingar og sleg-
ið hring utan um þessi sex
atriði á neðri myndinni kliþþir
þú myndina út eða skrifar á
blað hverjar breytingarnar
eru. Úrlausnarseðilinn verð-
ur þú að póstleggja eigi síð-
ar en 20. desember tii Vik-
unnar Seljavegi 2, 101
Reykjavík.
Dregið verður úr réttum
lausnum og fá fimm heppnir
lesendur ilmvatnið KAS-
HAYA frá hinum þekkta, jap-
anska tískuhönnuði KENZO.
Nafnið KASHAYA er tekið
úr sanskrít og útleggst á ís-
lensku „Eilíf ást“ og því
sannur ilmur ástarinnar.
Hugmyndina að ilminum
fékk KENZO er hann var á
ferðalagi um INDLAND og
skoðaði TAJ MAHAL hofið,
eina fegurstu byggingu í
heimi. Hofið byggði auðkýf-
Erþér falt
áhöndummi
Haustsendingar af ódýrum
„Ulpuhönskum’.’
VERÐ KR.1.800.-TIL 2.500,-
FRAKENZO
ingur og gaf eiginkonu sinni
sem tákn um það hve heitt
hann elskaði hana. Svo heit
var ást hans að það tók
hann alla ævina að byggja
hofið, svo mikið var lagt í
það.
KASHAYA er léttur ilmur
með austurlenskum áhrifum
sem samanstendur meðal
annars af jasmín og sér-
stakri tegund af orkideum
sem notaðar eru á Indlandi
til skreytinga í svefnherbergi
nýgiftra hjóna, sem og lótus
blóma sem eru tákn hinnar
„Eilífu ástar".
Undirtónar ilmsins eru
vanilla og musk ásamt sand-
elviði.
Appelsínuguli litur pakkn-
ingarinnar er einnig sóttur til
Indlands og er tákn um full-
komið jafnvægi á milli hold-
legrar og andlegrar ástar.
KASHAYA er fáanlegt í
30ml og 75ml Eau de Toilet-
te úða og 25ml Eau de Parf-
um úða sem kemur í sér-
stakri gjafapakkningu þar
sem fallegur rúskinnspoki
fylgir flöskunni.
Baðlínan verður fáanleg í
byrjun næsta árs.
nmmnm
Fyrir réttar lausnir í síð-
asta feluleik okkar fengu
fimm lesendur nýjasta ilminn
frá GIVENCHY. Sá heitir IN-
SENSÉ og hefur gert storm-
andi lukku. Nöfn vinnings-
hafanna eru:
Valdís Þorsteinsdóttir,
Brekkugötu 1, 630 Hrísey.
Guðrún Gísladóttir, Melum,
270 Kjalarnesi. Erla Ingvars-
dóttir, Hafnargötu 71, 230
Keflavík. Svava Hallgríms-
dóttir, Ásgarði 159, Reykja-
vík og Emelía Guðrún Svav-
arsdóttir, Þangbakka 10 a,
Reykjavík.
Það sem breyst hafði á
milli mynda í síðasta tölu-
blaði var eftirtalið:
1. Blómapott vantar. 2.
Ruslið komið á gólfið. 3.
Nafnspjald vantar. 4. Öðru-
vísi kjóll. 5. Öðruvísi eyrna-
lokkur. 6. Lampinn er hærri.
106 VIKAN ll.TBL. 1995