Vikan - 20.11.1995, Side 112
BRJOSTAGJOF
ALGENGT ER AÐ
UPP KOMI
VANDAMÁL
TENGD
BRJÓSTAGJÖF
SVO SEM
STÍFLUR í AAJÓLKUR-
GÖNGUM OG
ÓNÓG MJÓLKUR-
FRAMLEIÐSLA.
Æskilegt er að börn
séu lögð á brjóst
eftir fæðinguna
eins fljótt og auðið er. Ef það
er gert myndast tengsl fyrr
en ella á milli móður og
barns og jafnframt þykir það
vera ákjósanlegt hvað varð-
ar sogþörf barnsins. Sýnt
hefur verið fram á að í flest-
um tilfellum þurfi börn enga
aðra næringu fyrstu sex
mánuðina. Skortur á fræðslu
er algeng ástæða þess að
brjóstagjöf gengur brösug-
lega og margir foreldrar virð-
ast hafa lítinn áhuga á
fræðslu um það sem tekur
við eftir fæðinguna.
Hjálparmæður eiga flestar
sameiginlegt að hafa á sín-
MAMAIEL
ELECANCE
'Jwimph
INTERNATIONAL
STÆRÐIR: 75-95
B - C - D - DD
tympia_
SENDUM í
PÓSTKRÖFU.
Laugavegi 26, sími 551 3300 — Kringlunni, sími 553 3600
um tíma lent f basli hvað
varðar brjóstagjöf. Allar
fengu þær stuðning og hjálp
og hjá þeim kviknaði áhugi á
að aðstoða mæður í sömu
sporum og miðla af reynslu
sinni. Þær eru í félaginu
Barnamáli, sem er áhugafé-
lag um brjóstagjöf, vöxt og
þroska barna, og standa að
útgáfu frétta- og fræðslurits-
ins Mjólkurpóstsins sem gef-
ið er út þrisvar til fjórum
sinnum á ári. Ein hjálpar-
mæðranna er Guðrún
Jónasdóttir, sem á fjögur
börn, og er hún jafnframt eini
einkaaðilinn á landinu sem
leigir út mjaltavélar. „Eftir að
ég átti yngsta barnið fékk ég
stíflu í annað brjóstið. Ég
hafði aldrei kynnst þessu fyr-
irbæri en þó hafði ég kynnst
flestum vandamálum sem
upp geta komið við brjósta-
gjöf.“
MJALTAVÉLAR OG
STÍFLUR
Bólguhnútur myndast þeg-
ar mjólkin á ekki greiða leið
fram í mjólkurgöngin og út úr
brjóstinu. Svo þegar mjólkur-
framleiðsla hefst í næstu gjöf
eykst vandamálið nema
barnið nái að sjúga út stífl-
una. Ýmsar ástæður geta
legið að baki stíflu í mjólkur-
göngum. Guðrún segir að
ein ástæðan geti verið að
það slái hreinlega að móður-
inni. „í eldri bókum stendur
að mæður skyldu varast að
fara illa klæddar út til að
hengja upp bleiur, svo tekið
sé nærtækt dæmi. Aðrar
ástæður fyrir stíflum geta
verið sýkingar en konur geta
einnig fengið sýkingar vegna
stíflunnar. Sýking getur
myndast vegna sárs á vört-
unni þannig að þá myndast
bólga sem orsakar stíflu. Sár
á vörtunni geta verið mjög
smá og þau eru ekki alltaf
sýnileg með berum augum.
Ef kona hefur fundið fyrir
eymslum strax á fyrsta degi
og þau hafa versnað eru all-
ar líkur á að barnið taki
brjóstið ekki rétt. Hafi eymsli
og sár komið á þriðja eða
fjórða degi eru líkur á að það
stafi af því að brjóstin eru
ekki vön álaginu og þess
lags eymsli ganga yfirleitt yfir
á tiltölulega stuttum tíma.
Hins vegar er stundum
erfitt að henda reiður á hvað
orsakar stífluna. Mikilvægt
er að börn séu látin sjúga
brjóst sem byrjað er að stffl-
ast. Fyrstu einkennin geta
verið roði, eymsli, harður
hnútur eða hiti. Það hefur
komið fyrir að konur hafi
112 VIKAN ll.TBL. 1995
TEXTI: SVAVA JONSDOTTIR