Vikan - 20.01.1996, Síða 39
'1
JUMANJI er yfirnáttúru-
legur leikur sem ætlaö-
ur er þeim sem fýsir að
finna leið til að skilja við
þennan heim eins og við
þekkjum hann.
Hér er um að ræða stór-
mynd með stórleikurum á
borð við Robin Williams
(„Mrs. Doubtfire“, ,,Hook“),
Kirsten Dunst („Interview
with a Vampire'1,) og Bonnie
Hunt („Only You“, „Beet-
hoven“ og „Beethoven 2“).
Hér ráða tryllingsleg spenna
og gamansemi ferðinni.
Tökuliö og leikarar velta vöngum yfir bestu útfærslunni á
því atriöi er Alan Parris (Robin Williams) „sekkur niöurúr
gólfinu"...
Þaö er ekki viö því aö búast aö stofan sé snyrtileg eftir aö
í gegnum hana hafa ruöst fílar, apar, nashyrningar og önn-
ur villidýr!
JUMANJI býður líka upp á
æsandi upplifun og á köflum
er hún skelfileg og ógurleg á
að horfa. Við erum því að
tala um góðan kokkteil gríns,
spennu og hrolls.
Myndin er búin að gera
það gott í Bandaríkjunum og
verður hún ein af stærstu
myndum ársins 1996. JUM-
ANJI er spáð mikilli vel-
gengni á aljDjóðamarkaði.
Teningnum verður kastað
í febrúar og verður JUMANJI
sýnd í Stjörnubíói og í Sam-
bíóunum.
Grínleikarinn óborg-
anlegi, sem hvað
frægastur er fyrir
hlutverk sín í myndunum
The Mask, Dumb Dumber
og Ace Ventura, er þrjátíu
og þriggja ára Kanadamað-
ur. Fullu nafni heitir hann
James Eugene Carrey og
á tæpum tveimur árum
hafa laun hans fyrir kvik-
mynd hækkað úr 350.000
dollurum upp í tuttugu millj-
ónir dollara.
Hann ólst upp í úthverfi
Toronto, faðir hans var
saxófónleikari þar til hann
seldi hljóðfærið og fór að
vinna sem bókari. Móðir
hans var hinsvegar sjúkl-
ingur. Á æskuárunum stóð
Jim Carrey tímunum sam-
an fyrir framan spegilinn og
líkti eftir öðru fólki. ( kjall-
aranum heima hélt hann
leiksýningar og tíu ára var
hann búinn að skrifa Ijóða-
bók sem hann vonaðist til
að yrði gefin út.
Líf fjölskyldunnar breytt-
ist eftir að faðirinn var rek-
inn úr vinnunni. Foreldrarn-
ir uröu að selja húsið sitt,
fjölskyldan fluttist í húsbíl
og Jim Carrey flosnaði upp
úr skóla. Móðirin var næst-
um því alltaf rúmföst og til
að létta henni lífið sagði
sonurinn brandara og hélt
litlar leiksýningar.
Sautján ára gamall fór
Jim Carrey að vinna í
klúbbum þar sem hann líkti
meðal annars eftir Henry
Fonda og Gandhi. Fljótlega
gat hann farið að sjá fyrir
fjölskyldunni. Hann vildi
samt meira. Hann vildi
vekja athygli og afreka
meira en faðir hans hafði
gert. Hann var farinn að
klífa metorðastigann i hin-
um harða heimi skemmt-
anabransans. 1981 var
hann kominn með eigin
sjónvarpsþátt hjá NBC,
The Duck Factory, en sú
sæla entist ekki lengi.
Klúbbarnir urðu aftur hans
vinnustaðir en smátt og
smátt lá leiðin samt upp á
við. Hann fékk hlutverk í
kvikmyndum og sló í gegn.
Móðir hans lést úr nýrna-
sjúkdómi árið 1991 og lifði
það ekki að sjá son sinn
verða að stjörnu. Núna á
Jim Carrey stórt hús í
Brentwood, hann er með
þjón en segir samt sem áð-
ur að líf sitt hafi ekki breyst
mikið. □
1. TBL. 1996 VIKAN 39
KVIKMYNDIR