Vikan - 20.01.1996, Page 46
LIF OG HEILSA
TEXTI: ODDNÝ S.
BJÖRGVINSDÓTTIR
ÆSKUNA
Líkamsræktarstöðvar
eru alltaf að verða full-
komnari, með nýrri og
betri tækjum til að þjálfa sér-
staka vöðva. Þjálfunartaflan
er líka vandlega tímasett til
að sem bestur árangur náist.
Það þarf heilmikla ná-
kvæmni og einþeitingu til að
teygja og toga vöðvana
RÉTT í öllum þessum tækj-
um. En því fullkomnari sem
„yngingarstöðvarnar“ verða
því meira líkist áreynslan
hörku púlvinnu!
Hér áður fyrr fóru menn
bara út að leika sér. Sjálf-
sagt hefur líkamsþjálfunin
ekki verið eins markviss þá,
og vöðvastyrkingin tilvíljana-
kennd, en menn hafa örugg-
lega skemmt sér betur.
SIÞPUBANDIÐ er eitt ein-
faldasta og ódýrasta líkams-
ræktartækið. Og líka alveg
bráðskemmtilegt til afnota.
Hver man ekki eftir siþpu-
leikjum æskunnar þegar
einn stóð við hvorn enda
sippubandsins og sneri því
ótal hringi á meðan stjarna
augnabliksins hoppaði aftur
á bak og áfram yfir bandið?
Hvernig væri að hafa
sippubandið við hliðina á
tölvunni og sippa í hvíldar-
hléum til að koma blóðrás-
inni á hreyfingu? En gætið
ykkar! Allt er best í hófi. Of
mikil líkamsþjálfun væri að
sippa í hvert skipti sem
staðið er upp! Við megum
heldur ekki gleyma að teygja
okkur eins og blessaður kött-
urinn gerir í takt við eðli nátt-
úrunnar. Kannski gætum við
látið kaffibollann og sippu-
bandið skiptast á.
SIPPUBANDIÐ er ekki
annars flokks líkamsræktar-
tæki þótt það sé skemmti-
legt. Það er notað í „ynging-
arsölunum" og boxarar eru
sagðir nota það mikið. í æf-
ingasal í Bandaríkjunum sá
ég eitt sinn geysimikið
vöðvafjall sippa á fullum
hraða, sá hvernig svitinn
bogaði í Iftratali af líkaman-
um - en þótt líkamleg
áreynslan væri mikil þá var
auðséð að maðurinn naut
hinnar taktföstu hreyfingar,
hann næstum dansaði með
sippubandið.
SIPPUBANDIÐ er einfalt
en það er EKKI sama hvern-
ig við sippum.
Lítum að-
eins á örfáar
leiðbeining-
ar:
Til að byrja
með er best að
hoppa jafnt á
báðum fótum.
Þegar búið er að ná betri
tökum á sippinu má þjálfa
sig upp í að hoppa til skiptis
á vinstri og hægri fæti.
Best er að vera í sokkum
og góðum skóm með fjaðr-
andi sólum. Hlaupaskór,
hannaðir fyrir hreyfingu fram
á við, eru ekki góðir til að
sippa. Tennis-, körfubolta-
eða leikfimiskór eru hent-
ugri. Það er hægt að meiða
sig í sippi eins og öðrum
íþróttum ef fótabúnaður er
ekki góður - snúa sig um
ökklann, særa tærnar eða
reyna of mikið á fæturna.
Það er líka eins gott að gæta
i, að hjartslættinum, reyna
,v' ekki of mikið á sig.
Ken Solis, læknir í
Milwaukie, sem hefur skrifað
bækur um sippubandið og
sýnt kaðlastökk, segir þetta
um sippið:
„Sippið lítur út fyrir að vera
svo auðvelt, alveg eins og
sund, en fólk þarf leiðbein-
ingar og þjálfun til þess að
ná góðum tökum á því.
Hreyfingunni sem flestir
þekkja í sippinu, má líkja við
hundastökk en íþróttin býr
yfir mörgum afbrigð-
um í færni sem
sum eru mjög erf-
ið en flestir full-
orðnir geta náð
ágætri leikni. Sipp
er ein af þeim fáu líkamsæf-
ingum sem sameina þjálfun
og skemmtilegan leik.“
Svo mörg voru þau orð.
Hvernig væri nú að ná sér í
sippuband og fara bara
hægt af stað? Best er að
hugsa sér atvinnuboxara,
kattliðugan sem varla yfir-
gefur jörðina þó að hann
hoppi yfir bandið. Þeir, sem
reyna að hoppa hærra, fá
kannski á tilfinninguna að
þeir séu orðnir börn í annað
sinn þegar líkaminn var svo
lóttur á sér að hann fór
næstum á flug. Væri ekki
gaman að ganga aftur á vit
æskunnar með sippubandið
sitt? □
■ ítarleg skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Há-
skóla íslands á fjölmiðlaneyslu eitt þúsund íslendinga
leiðir í Ijós meiri vinsældir tímaritsins BLEIKT & BLÁTT
en nokkurn hafði grunað.
■ EKKERT annað selt tímarit á landinu er lesið jafn ítar-
lega. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar lesa 38%
mestallt efnið og næstu 39% lesa einstakar greinar.
■ Nær 70% fólks á aldrinum 20 til 24 ára lesa BLEIKT &
BLÁTT.
■ Hvorki meira né minna en 84% karlmanna á aldrinum 20
til 24 ára lesa tímaritið.
■ Ekkert tímarit á íslandi nær til eins margra lesenda á
aldrinum 16 til 35 ára.
■ Þetta tölublað er það þrítugasta sem út kemur á átta ár-
um. BLEIKT & BLÁTT kemur nú út annan hvern mánuð.
Öll eldri tölublöðin eru uppseld. Tryggðu þér blaðið
með áskrift. Það er hentugra og töluvert ódýrara.
■ Yfir 1000 lesendur hafa gerst áskrifendur á ári undan-
farin ár. Bæstu í hópinn.
ÁSKRIFTARSÍMI: 515 5555