Vikan - 20.01.1996, Síða 50
HEILSAN
yfirborðið strax og láta tilfinn-
ingarnar flæða og vinna
þannig úr þeim um leið og
atvikin koma fyrir. Ekki loka
þær niðri í „ruslapoka" því þá
er hætta á að þær gerjist og
komi upp seinna og valdi al-
varlegum sjúkdómum. Af því
hefur Farida eigin reynslu,
25 ára fékk hún krabba-
mein í annað brjóstið og
vildu læknar taka það af.
Hún afþakkaði uppskurð og
geislameðferð því að hún
gat ekki hugsað sér að
missa brjóstið, en ákvað
þess í stað að takast á við
vandamál sín með náttúru-
legum aðferðum. Orsökina
fyrir krabbameininu kvað
hún hafa verið innibyrgða
reiði og vonbrigði vegna
misheppnaðs hjónabands
og af þeim sökum hafi hún
misst lífslöngunina og helst
viljað deyja. En þegar hún
fékk úrskurð um lífshættu-
legt krabbamein og horfðist
■ Orkustöðvar
mannsins tengjjast
frumefnunum fimm;
jjörð, vatni, eldi, lofti
og orku (tilfinninga- og
hugarorku). Það skýrir
tengsl mannverunnar
við alheiminn að hún
er úr sömu frum-
efnum og
hann.
í augu við vanheilsu eða
jafnvel dauða, fékk hún lífs-
löngunina aftur og ákvað
að finna leið til heilbrigðis.
Hún segir að innri rödd hafi
leitt sig áfram og að lokum
hafi sigur unnist á sjúk-
dómnum með andlegum
iðkunum, heilnæmu matar-
æði, jurtalækningum og
föstum. Til að forðast sjúk-
dóma út frá hugsana- og til-
finningamunstri segir hún
að best sé að útiloka nei-
kvæðar hugsanir eins og
áhyggjur, ótta, reiði, slúður,
græðgi, öfund og eigingirni.
Slíkar hugsanir veiki and-
lega- og líkamlega mót-
stöðu. Þar sem nú á tímum
eru þekktar margar leiðir
sem hjálpa fólki að komast
yfir tilfinningaáföll ráðleg-
gur hún öllum að leita
hjálpar sem ekki finni sína
eigin leið út úr slíkum
vanda.
LÆ.KNANDI DANS
Dr. Sharan segir að komið
hafi i Ijós að ekkert sé eins
heilsusamlegt og dans, hún
á ekki við hefðbundinn dans
heldur hreyfingar eftir sér-
stakri tónlist sem hún hefur
samið og þróað fyrir hverja
einstaka orkustöð líkamans.
Þá er hljóðfall náttúrunnar
ávallt notað sem undirtónn.
Bæði dansinn og tónlistina
tók mörg ár að þróa en að-
ferðin hefur á undanförnum
árum sannað ágæti sitt sem
árangursrík heiiunaraðferð
og öflug leið til að leysa stífl-
ur úr orkustöðvunum sem
hafa myndast við tilfinn-
ingaáföll í lífinu. Hún segir
þennan dans vera undir-
stöðu í þeim náttúrulegu að-
ferðum sem hún kenni kon-
um til sjálfshjálpar. Við dans-
inn notar hún einnig marg-
litar silkislæður en silki er
talið leiða vel lífsorkuna og
er því ráðlagt að ganga í
silkiklæðnaði.
Orkustöðvar mannsins
tengjast frumefnunum fimm;
jörð, vatni, eldi, lofti og orku
(tilfinninga- og hugarorku).
Það skýrir tengsl mannver-
unnar við alheiminn að
hún er úr sömu frumefn-
um og hann þess vegna
finnast réttu efnin í náttúr-
unni til að viðhalda lífi
hennar.
Vitað er að máttur lita við
lækningar er mikill og talið
skipta máli hvaða litum við
klæðumst. Hverri orkustöð
tilheyrir ákveðinn litur sem
þó er breytilegur eftir þörfum
einstaklingsins. Ef val lita á
klæðnaði er í samræmi við
liti orkustöðvanna er það tal-
ið hjálpa til við að halda
þeim í jafnvægi.
Það eru frumskilyrði fyrir
heilbrigði að orkustöðvarnar
séu í lagi. Oft þarf margar að-
ferðir til að lagfæra það sem
aflaga hefur farið í líkaman-
um því að um leið og orkust-
öð truflast fer samtímis svo
ótalmargt annað úr skorðum í
líkamanum. Eitt kröftugasta
ráðið til að bæta þar um er
það að brjóta upp gamlar,
neikvæðar tilfinningar og
hugsanir og við slíka vinnu er
dansinn afar hjálplegur.
BREYTINGASKEIÐIÐ
ER EKKI SJÚKDÓMUR
Dr. Sharan flutti fyrirlestur
um breytingaskeiðið í
Gerðubergi í september síð-
astliðnum. Nýr andblær fylgir
kenningum hennar um tíða-
hvörf og kom greinilega fram
andúð hennar á hefðbund-
num hormónalyfjum sem
svo mikið hefur verið mælt
með af vestrænum læknum
á undanförnum árum. Hún
ráðlagði konum eindregið að
taka ábyrgð á eigin lífi og
læra að nota lyf náttúrunnar,
þau hafi sjaldan aukaverk-
anir af því að líkaminn geti
betur nýtt sér þau. í náttúr-
unni sé að finna öll þau lyf
sem konan þarfnist, jafnt
hormóna sem annað. Þörf
sé fyrir konur að átta sig á
því að því fyrr á ævinni sem
þær nái jafnvægi á líkama
og sál því betri verði árin
sem á eftir koma. Ungum
konum bendir hún á að
aukaverkanir fylgi inntöku P
pillunnar og hún hamli eðli-
legum þroska konunnar og
auki þörf hormónalyfja á
breytingaskeiði vegna þeirra
hormóna sem líkaminn venj-
ist við notkun þeirra. Notkun
pillunnar hafi neikvæð áhrif
bæði á sálarlíf og líkama
konunnar. Þörf sé fyrir konur
á öllum aldri að vanda vel til
næringar sinnar og gæta
þess að hlutfall basískrar
(lútargæfrar) fæðu sé í meiri-
hluta dag hvern.
Til eru náttúrulegar getn-
aðarvarnir sem ekki breyta
lífshrynjanda líkama og sál-
ar. Einnig telur hún tilefni til
að karlmaðurinn axli ábyrgð
sína hvað varðar getnaðar-
varnir.
Hún sagði að eftir tíða-
hvörf byrjaði yndislegur tími
breytinga, margar konur
væru þá búnar að koma upp
börnum sínum og gætu snú-
ið sér óskiptar að nýjum
hugðarefnum. Þær væru
orðnar reyndar og þroskaðar
og nytu virðingar samferða-
fólksins, ýmsar væru á há-
tindi velgengni sinnar í starfi.
Það væri því fráleit bábilja
að konur á þessum aldri
væru einskis virði og að við
breytingaaldurinn yrðu þær
uppþornaðar og hrukkóttar.
Hvort kona eltist vel eða illa,
færi mest eftir hugarfari
hennar og því hvernig hún
færi með líkama sinn.
Hún kvað það algengan
miskilning að tíðahvörf væru
sjúkdómur. Sennilega ættu
læknar þátt í þeim hugsunar-
hætti, þeir kenndu gjarnan
breytingaaldrinum um alls
kyns sjúkdóma sem ekkert
kæmu honum við. Það eina,
sem gerðist, væri að blæð-
ingar hættu. Hún benti á að
mikið sé til af jurtum og nátt-
úrulegum aðferðum til að
koma í veg fyrir óþægindi
sem oft fylgdu tíðahvörfum
og reyndust þessar aðferðir f
flestum tilfellum betur en
hefðbundin hormónalyf sem
að hennar mati væru í fáum
tilvikum æskileg og gerðu
það eitt að fría konuna við
því að takast á við andlegar
og líkamlegar breytingar;
breytingar sem hún telur
hverri konu til góðs taki hún
rétt á þeim. Öllum breytinga-
tímabilum ævinnar þurfi að
mæta með því að vinna úr til-
finningum og öðru er tengist
þeim. Það fari eftir því hvar
konan sé stödd tilfinninga-
lega, andlega og líkamlega
og úr hverju hún þurfi að
vinna hverju sinni og sé það
ekki bundið aldri. Sjálf segist
hún aldrei hafa notað horm-
ónalyf, þess í stað hafi hún
notað náttúrulyf og græðandi
grös sem auðvelt sé hverri
konu að læra að nota. Einnig
megi þakka því heilnæma
mataræði og drykkjum sem
hún hafi alla tíð tamið sér
Hún segist kenna konum að
hreinsa líkamann með heit-
um og köldum bökstrum,
gufubaði og burstun.
LITHIMNUGREINING
Hægt er að lesa ástand lík-
amans f lithimnum augnanna
hefur slík sjúkdómsgreining
verið þekkt um aldir. Eftir
þeim fræðum er fólki skipt í
sex gerðir og má finna sömu
veikleikana innan hverrar
gerðar. Þannig má stundum
sjá sjúkdóma áður en þeir
gera vart við sig líkamlega og
jafnvel koma í veg fyrir þá.
KEMUR AFTUR
Ekki er hægt í stuttri grein
að gera kenningum dr. Shar-
an full skil, þar er af of
mörgu að taka. í viðbót við
það, sem áður er nefnt,
kennir hún heilun, mataræði,
notkun jurta, blómadropa, il-
molía og fleira.
Fanný Jónmundsdóttir
leiðbeinandi sá um komu dr.
Sharan hingað til lands síð-
astliðið haust. Hugmyndin er
að gefa þeim konum, sem
vilja kynna sér þessi fræði,
kost á bréfanámi og ætlar
svo dr. Sharan að koma,
ásamt dóttur sinni, til nám-
skeiðahalds næsta vor. □
50 VIKAN 1. TBL. 1996