Vikan - 07.05.1998, Blaðsíða 38
SÆTT
OG
SUMARLEGT
Upplýsingar um hvar Tinnugarnið
fæst í síma: 565-4610
29-32-33-35 lykkjur á öxlum, en setjið
lykkjurnar í hálsmálinu á nælu.
Framstykki: Prjónið eins og bakstykkið, en
þegar mælast 19-24-25-28 sm eru felldar af 5
lykkjur í miðjunni (klauf). Prjónið hvort
stykkið fyrir sig. Þegar klaufin mælist 5 sm er
komið að hálsmálinu. Fellið af í byrjun prjóns
við hálsmálið 4 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1
sinni, 2 lykkjur 1-2-2-2 sinnum og 1 lykkju 2-
1-2-3 sinnum = 29-32-33-35 lykkjur á öxl.
Prjónið áfram þar til framstykkið er jafnlangt
og bakstykkið. Fellið af.
'P%fétKZ$ ÚK
mandarin ^
STÆRÐIR:
Yfirvfdd:
Sídd:
Ermalengd:
1 2 3 4 ára
63 69 72 75 sm
28 32 35 38 sm
9 10 11 12 sm
Peysa og húfa:
Dökkbl. nr. 374
Hvítt nr. 301
Gult nr. 314
Rautt nr. 340
Grænt nr. 384
Buxur:
Dökkbl. nr. 374
Hvítt nr. 301
3 3 4 4 d.
1 1 2 2 d.
1 dokka í allar stærðir
1 dokka f allar stærðir
1 dokka í allar stærðir
3 4 4 5 d.
1 dokka í allar stærðir
Einnig er hægt að nota SISU
ADDI PRJÓNAR FRÁ TINNU:
50 eða 60 sm hringprjónn nr. 2.5
Mælum með BAMBUSPRJÓNUM
40 og 60 sm hringprjónar nr. 3
Sokkaprjónar nr. 2.5 og 3
Tölur: 3 stk.
Teygja: Hæfilega löng í mittið
Góðir fylgihlutir:
Merkihringir, prjónanælur,
þvottamerki fyrir garnið.
PRJÓNFESTA:
27 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna nr. 3
= 10 sm.
Ef of laust er prjónað þarf fínni prjóna.
Ef of fast er prjónað þarf grófari prjóna.
BOLUR:
Fitjið upp með dökkbláu á hringprjón nr. 2.5,
170-185-Í95-205 lykkjur. Prjónið 10 prjóna
slétta í hring + 1 prjón brugðinn = brotlína +
munstur A. Skiptið yfir á hringprjón nr. 3 og
prjónið 3 prjóna slétta. Setjið merki í báðar
hliðar með 85-93-97-103 lykkjur á framstykki
og 85-92-98-102 lykkjur á bakstykki. Prjónið
nú rendur þannig: 5 prjónar með gulu, 10
prjónar með rauðu, 5 prjónar með hvítu, 3
prjónar með dökkbláu og 12 prjónar með
grænu. Endurtakið rendurnar þar til fullri
sídd er náð. Þegar mælast 14-17-19-21 sm frá
brotlínunni er skipt við hliðarmerkin og hvort
stykki prjónað fyrir sig.
Bakstykki: Prjónið rendurnar fram og til
baka þar til mælast 28-32-35-38 sm. Fellið af
ERMAR:
Fitjið upp með dökkbláu á sokkaprjóna nr.
2.5, 60-65-70-70 lykkjur. Prjónið líningu +
brotlínu eins og neðan á bolnum + munstur
A. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr. 3 og
dökkblátt. Aukið í 1 lykkju í byrjun og enda
hrings með 1 sm millibili þar til 74-81-86-90
lykkjur eru á erminni. Þegar mælast 9-10-11-
12 sm frá brotlínunni er fellt af.
HÁLSLÍNING OG LISTAR:
Saumið axlir saman.
Byrjið neðst hægra megin við klaufina.
Prjónið upp með dökkbláu á hringprjón nr.
2.5, 20 lykkjur meðfram klaufinni, 76-80-82-
86 lykkjur í hálsmálinu og 20 lykkjur meðfram
vinstri brúninni. Prjónið slétt prjón fram og
til baka. Aukið jafnframt í 2 lykkjum í bæði
hornin á framstykkinu á öðrum hverjum
prjóni. Eftir 3 prjóna eru gerð 3 hnappagöt
öðrum megin, hvert yfir 2 lykkjur, það neðsta
1.5 sm frá brún, það efsta í hornið og eitt mitt
á milli. Prjónið alls 7 prjóna + 1 prjón
brugðinn á réttunni = brotlína + 7 prjóna slétt
prjón (munið eftir hnappagötunum á
innafbrotið), en nú er tekið úr á hornunum
þar sem áður var aukið í. Fellið af.
Brjótið allar líningar um brotlínuna yfir á
rönguna og saumið niður.
Saumið ermarnar í og festið tölurnar á.
Saumið þvottamerki innan í peysuna.
Byrjið í mittinu. Fitjið upp með dökkbláu á
hringprjón nr. 2.5, 120-126-136-142 lykkjur.
Prjónið 2 sm slétta í hring + 1 prjón brugðinn
= brotlína + 2 sm slétta. Skiptið yfir á
hringprjón nr. 3. Prjónið áfram slétt og aukið
í 32-34-36-38 lykkjum með jöfnu millibili á
fyrsta prjóni = 152-160-172-180 lykkjur.
Setjið merki í miðju að framan og aftan með
76-80-86-90 lykkjur á hvoru stykki. Prjónið
nú buxurnar hærri upp á rassinn þannig:
Byrjið við merkið í miðju að aftan og prjónið
6 lykkjur. Snúið við og prjónið 12 lykkjur.
Snúið við og prjónið alltaf 6 lykkjum meira í
hvert skipti sem snúið er við, alls 4-4-5-5
sinnum báðum megin við merkið. Setjið
merki utan um 2 lykkjur í miðju að framan og
aftan = miðlykkjur. Prjónið í hring yfir allar
lykkjurnar og aukið í 1 lykkju báðum megin
við miðlykkjurnar í miðju að aftan með 3 sm
millibili 3 sinnum = 158-166-178-186 lykkjur.
Þegar mælast 16-18-19-20 sm frá brotlínunni í
miðju að framan er aukið í 1 lykkju báðum
megin við miðlykkjurnar bæði að frarnan og
aftan á öðrum hverjum prjóni 10-10-11-11
sinnum = 198-206-222-230 lykkjur. Skiptið nú
buxunum í miðju að framan og aftan með 99-
103-111-115 lykkjur á hvorri skálm. Setjið
merki á samskeytin innanfótar. Takið úr 1
lykkju báðum megin við merkið á öðrum
hverjum hring Ó-6-7-7 sinnum = 87-91-97-101
lykkja. Prjónið áfram þar til skálmin mælist
7-9-13-15 sm. Prjónið munstur A + 1 hring
brugðinn með dökkbláu = brotlína + 3 sm
slétta. Fellið af. Brjótið um brotlínurnar yfir
á rönguna og saumið niður. Skiljið eftir 2 srn
op í miðju að aftan í mittinu til þess að draga
teygjuna í. Saumið fyrir.
Fitjið upp með dökkbláu á sokkaprjóna nr.
2.5, 98-102-108-114 lykkjur. Prjónið 13 hringi
slétta + 1 hring brugðinn = brotlína + 3 hringi
slétta með dökkbláu, 2 hringi gula, 2 hringi
rauða, 2 hringi hvíta, 2 hringi dökkbláa, 2
hringi græna og 1 hring dökkbláan. Skiptið
yfir á ermaprjón nr. 3. Prjónið áfram með
dökkbláu og aukið í 82-78-82-86 lykkjum með
jöfnu millibili á fyrsta hring = 180-180-190-200
lykkjur. Þegar húfan mælist 9-10-11-11 sm frá
brotlínunni er tekið úr þannig: Prjónið til
skiptis 8 sléttar, 2 sléttar saman allan
hringinn. Prjónið 8 hringi án úrtöku. Prjónið
til skiptis 7 sléttar, 2 sléttar saman allan
hringinn. Takið úr á fjórða hverjum hring
með 1 lykkju færra á milli í hverri úrtöku þar
til 18-18-19-20 lykkjur eru eftir. Slítið frá.
Dragið bandið í gegnum lykkjurnar sem eftir
eru og herðið vel að. Brjótið um brotlínuna
yfir á rönguna og saumið niður.
Byrjið hér
□ = Dökkblátt nr. 374
□ = Hvítt nr. 301
Þvottur á Mandarin Petit
40°/
Snúið röngunni út.
Þvoið flíkina eina í
fyrstu skiptin.
oi
Leggið flíkina
straxtilþerrisf ÞvOttaefnÍ
rétt mál, fjam sólar-
ljósi og ekki á ofn.
Notið