Vikan - 18.01.1999, Page 29
Krabhinn
Vinna og pen-
ingar:
Arið verður sér-
lega gott fjár-
hagslega fyrir
krabba. Allt sem þeir snerta
verður að gulli og hvaða verk-
efni sem ráðist verður í mun
skila bestum fáanlegum ár-
angri. Krabbinn er útsjónar-
samur og fljótur að víkja sér til
hliðar sjái hann að beina
brautin muni ekki fær. Þessir
eiginleikar koma þeim til góða
eins og oft áður í ár og margir
krabbar leysa vandamál í
tengslum við vinnu og peninga
á mjög hagstæðan hátt í ár.
Ást og kynlíf:
Krabbar eru trygglyndir og
sennilega munu þeir þurfa á
því að halda í ár. Sambönd
krabba verða ákaflega sveiflu-
kennd á árinu og oft munu
þeir þurfa að sigla milli skers
og báru og sýna vinum sínum
skilning. Þeir krabbar sem
ekki gefast upp munu hins
vegar fá þolinmæðina launaða.
Kynlífið tekur mið af þessum
sveiflum en flestir krabbar
munu vera mjög kynorkumikl-
ir seinni parts sumarsins og vel
fram á haust.
Heilsa og líðan:
Krabbinn mun oft finna til
depurðar á árinu. Samskipti
hans við aðra eru ekki eins og
best verður á kosið í ár og
krabbinn finnur fyrir því. Það
verður líklega eins og allt sem
krabbinn segir verði misskilið
og lagt út á versta veg. Líkam-
lega er krabbinn hraustur og
ætti að vera að mestu laus við
smákvilla í ár en slæm andleg
líðan getur dregið dilk á eftir
sér. Krabbar ættu að hafa í
huga að öll él birtir upp um
síðir og ekki mun líða á löngu
þar til hans góða skap og löng-
un til að tengjast fólki nánum
böndum verður metin að
verðleikum á ný.
Lióniö
Vinna og
peningar:
Ljón eru á kafi
í vinnu í ár.
Flestum ljón-
um gengur allt í
haginn og þeim bjóðast góðar
stöður, ný vinna eða fá mikið
hrós fyrir framlag sitt. Metn-
aðarfull ljón ættu því að nota
sér árið eins og hægt er. Fjár-
hagurinn batnar mjög hjá
ljónum fyrri hluta árs og fram
á vor en ætti að haldast stöð-
ugur eftir það.
Ást og kynlíf:
Ljón geta stundum verið erfið
í sambúð. Þau eru haldin full-
komnunaráráttu og skilja
ekki alltaf að aðrir geta sætt
sig við minna en þau. 'Ljón
þurfa að temja sér umburðar-
lyndi gagnvart öðrum og
þeim sem tekst það munu
eiga góð samskipti við aðra í
ár. 1 sumar er ljónið í sínu
besta formi og kemur til með
að hafa mikil áhrif á hitt kyn-
ið. Mörg ný ástarsambönd
byrja hjá ljónum í sumar en
þau sem eru í sambandi ættu
að nýta þennan góða tíma til
að bæta sambandið.
Heilsa og líðan:
Ljónið er svo heilsuhraust í ár
að til þess verður tekið. Ork-
an er mikil og bókstaflega
engir kvillar ná að vinna á
stálhreysti ljóna á þessu ári.
Sumarið og haustið er ein-
staklega góður tími og ljón
ættu að nýta hann til að
stunda útivist og íþróttir.
Andleg líðan ljóna verður al-
mennt góð en þó má búast við
verulegri andlegri lægð undir
lok ársins.
Mevian
Vinna og
peningar:
Meyjur eru vi-
nnufíklar. Þær
verða að hafa
góða stjórn á
öllu og yfirsýn yfir öll svið lífs
síns. í ár getur fólk í meyjar-
merkinu glaðst því það mun
hafa einstaklega góða stjórn á
lífi sínu. Vinnan verður þeim
ákaflega auðveld og meyjur
hafa allt í hendi sér og eiga
ákaflega auðvelt með að
greiða úr flækjum og vanda-
málum. Fjármálum meyja er
alltaf vel stjórnað og engra
stórra breytinga er að vænta á
því sviði á árinu.
Ást og kynlíf:
Flestar meyjur eiga erfitt með
að tengjast fólki en þegar þær
gera það verður það til lífstíð-
ar. Þær meyjur sem enn hafa
ekki náð að finna lífsförunaut
geta verið bjartsýnar því vor-
ið verður meyjum einstaklega
hagstæður tími til að njóta
ásta. Meyjur verða þó að læra
að opna sig og taka við ást
jafnframt því að gefa hana.
Heilsa og líðan:
Fleilsufar meyjanna verður
upp og ofan í ár. í vetur og
vor verða meyjur oft lasnar
og sennilega verður talsvert
um fjarvistir frá vinnu vegna
kvefs, flensu eða annarra sýk-
inga. Sumarið verður meyj-
unni betri tími og hyggi þær á
ferðalög er sá tími ákaflega
hentugur. Haustið verður al-
mennt ágætur tími fyrir meyj-
ur en líkamsorka þeirra verð-
ur í hálfgerðu lágmarki seinni
partinn.
Vonin
Vinna og
peningar:
Vogin safnar yf-
irleitt ekki pen-
ingum. Flestar
vogir líta svo á
að peningar séu til þess eins
að eyða þeim í lífsins
lystisemdir. Langtímafjár-
hagsáætlun vogarinnar batnar
ekki í ár en hún gæti haft tals-
vert meira, handa á milli, en
oft áður. Vogin er ákaflega
skapandi og þær sem vinna
listræn störf ná mjög góðum
árangri í ár og hljóta viður-
kenningu fyrir störf sín. Aðr-
ar vogir munu njóta velvildar
yfirmanna en sennilega verð-
ur ekki mikil hreyfing upp á
við í starfi.
Ást og kynlíf:
Vogir eru rómantískar og ást-
leitnar. Flestar fá þær hlýju
sína margfalt til baka en það
er misjafn sauður í mörgu fé
og vogir eru auðsærðar. Vogir
ættu að vera á varðbergi
gagnvart fagurgala í ár og var-
ast að treysta fólki of fljótt.
Kynorka vogarinnar verður
sem aldrei fyrr, um mitt sum-
ar, og ástarævintýri í sumar-
fríinu verður því líklega
ógleymanlegt.
Heilsa og líðan:
Eðli vogarinnar er að sveiflast
upp og niður. Andleg lægð
verður ríkjandi fyrri hluta árs
en sveiflast upp á við í vor og
sumar. Nokkurs konar jafn-
vægi næst í haust en þá líður
voginni best. Líkamleg líðan
vogarinnar fylgir venjulega
andlegum sveiflum og orkan
fer alveg eftir hvort sveiflan
er upp eða niður á við. Vogin
verður að læra að laga sig að
andlegri líðan og taka því ró-
lega þegar þunglyndið ræður
ríkjum en láta það eftir sér að
hamast þegar birtir á ný.
SDDrðdrekinn
Vinna og
peningar:
Iðnara fólk en
sporðdrekar
fyrirfinnst ekki.
Þeir eru skarp-
greindir og fljótir að átta sig á
öllum hlutum. Sporðdrekar
eru því vinsælir vinnukraftar
og þeim gengur vel hvað sem
þeir taka sér fyrir hendur. í ár
eru góðar líkur á kauphækk-
unum og öðrum viðurkenn-
ingum frá vinnuveitendum til
sporðdreka. Ef þeir vilja ræða
slík mál við yfirmenn sína er
góður tími til þess í febrúar og
mars. Árið verður sporðdrek-
um hagstætt í fjárhagslegu
tilliti og þeir ættu að ná að
koma ár sinni vel fyrir borð.
Ást og kynlíf:
Sporðdrekar eru ástríðufullir
og miklir elskhugar. Oft mu-
nu sterkar tilfinningar koma
sporðdrekum í vandræði í ár.
Þeir eru dulir og ættu að hafa í
29