Vikan


Vikan - 18.01.1999, Blaðsíða 51

Vikan - 18.01.1999, Blaðsíða 51
Fanney. í hópinn vantaði Margréti sem er í Chile, Sigríði Sunnevu, Berglindi og Þórdísi sem ekki komust í boðið, Kristínu og Ólöfu Jakobínu sem búa í Reykjavík. Það er ekki erfitt að sjá það og heyra að hópurinn er samheldinn og hefur gaman af því að hittast. Þegar blaðamaður og ljósmyndari mættu á svæðið barst masið úr stofunni og brasið heyrðist úr eldhús- inu þar sem verið var að hella upp á ekta ítalskt kaffi. Þegar vinkonurnar höfðu allar komið sér fyrir í stofunni með kaffi, ís og konfekt var farið að ræða vinskap- inn. „Ég heyrði einhvern tímann sagt ...æ-i þessi mafíuhópur,“ byrjar Astrid og stelpurnar hlæja enda taka þær Mafíu- nafnið ekki alvarlega. „Karlmenn eru meira að segja hræddir við okkur,“ bætir Inga Þöll við í gríni og stelpurnar velta því fyrir sér hvort þær séu eitthvað ógn- vekjandi þar sem þær séu þetta margar saman. „Þetta er svona konu...,“ heyrist sagt og makarnir koma sjaldan með okk- ur. Ef svo er koma þeir óboðnir." Uinkonup um allan heim Það eru engir sérstakir upphafsmenn að „Mafíunni“ og vinkonurnar segjast ekki getað rifjað það upp hvernig hópurinn varð til. Það hafi bara gerst og allar hafi þær vitað af hver annarri áður en vin- skapurinn varð meiri þeirra á milli. Þær hittast alltaf einu sinni í mánuði og mis- jafnt er hversu margar þeirra komast í hvert skipti. Um jólin náðu þær að hittast þrettán alls, þar sem margar þeirra héldu á æskuslóðirnar um jólin en nú fækkar aftur í hópnum og nokkur tími líður áður Froða í bolla (Það þarf smá natni við kaff- ið. Oddrún sér um froðuna til að kaffið verði eins og það á að vera. þær ná að hittast aftur þetta margar. En það eru kostir og gallar sem fylgja því að eiga vinkonur um allan heim. Gall- arnir eru þeir að þeirra er saknað en kostirnir hins vegar að það er hægt að heimsækja þær til útlanda. Hjá „Mafí- unni“ er staðan t.d. þannig að Helga Gunnur er að flytja til Englands og á fyrstu tveimur mánuðunum þar mun hún hitta þrjár úr hópnum. Hinar segjast svo allar eiga eftir að koma og heimsækja hana því London sé ansi hentug- ur staður að heimsækja. Þær verða sorgmæddar við tilhugsunina að missa hana úr hópnum um tíma og Helga við- urkennir að hún sé nú frekar leið yfir því að kveðja vinkonurnar. „Þær báðu mig að taka stóra íbúð á leigu í London og helst að opna gistiheimili. En ég veit ekki alveg um það.“ Sjálfstyrkingarsamkvæmisleikip Vinkonurnar vita ekki hvernig eða hvort hægt sé að skilgreina hópinn og hvað þær eigi sameiginlegt. Ein nefnir að þær séu konur úr atvinnulífinu því þær vinni allar mjög ólík störf en hinar fara að hlæja og finnst það of settlegt og ekki eiga við um þær. Verkalýðsfélag heyrist nefnt, en nei, ekki alveg. Mafían er það besta. En þar sem þær eru þetta margar vinkonur hvernig fara þær þá að með jólagjafir og slíkt. Eru þær að gefa slíkar gjafir sín á milli? „Nei, ég gef bara sum- um,“ segir Laufey alvarleg og hláturinn brýst út enda vita þær að slíkt er ekki mögulegt í hópi sem þessum. Sameigin- legt eiga þær síðan Ítalíudvöl og heim- sóknir sem sterkan svip setja á stemmninguna í hópnum því sjaldan ber vott á alvarlegum undirtóni. „Við erum hér til að ræða karlmenn, borða og drekka gott kaffi," heyrist úr einum stólnum og þær samsinna því allar. „Stundum er spáð í bolla enda eru hér vaxandi spákonur. Við látum allar spá fyrir okkur og spárnar hafa ræst hjá mörgum okkar. Stundum er lýst yfir óá- nægju með spárnar og farið fram á end- urtekningu." Hvað með karlmennina? Laufey hefur orðið: „Við erum búnar að ræða alla karlmenn í bænum og þá sem koma í bæ- inn. Spáum í þá alla. Bæði útlendinga og aðra.“ Þær vita að ekki er hægt að taka mark á því sem Laufey segir og reyna í góðu að draga aðeins úr þessari áherslu hennar á karlpeninginn. „Við ræðum allt milli himins og jarðar. Mest er það þó bull." En samt ekki alveg því þær tala mikið um það sem þær eru að gera fyrir utan það að veita hver annarri góð ráð. „Já, það er töluvert um ýmis konar sjálf- styrkingu í gangi innan hópsins,“ segir Helga Gunnur. „Við förum stundum í sjálfstyrkingarsamkvæmisleiki en það er Inga Þöll sem er upphafsmaður þeirra.“ Það er ekki mikið á bak við þetta enda hlæja þær og rifja upp leikinn sem greini- lega er eftirminnlegur. „Nýta" hvep aðra og muna hver aðra Þær ræða mikið hvað hver og ein þeirra er að gera enda fjölbreytt starfsvið sem vinkonurnar hafa. Þar er einn arkitekt og annar innanhúsarkitekt, tveir skartgripa- smiðir og mósaíklistamenn, lögfræðingur, hársnyrtir sem var að klára listaakadem- íu, bókasafnsfræðingur, myndlistakonur, leirlistakona, fatahönnuðir, mannfræð- ingur, ferðamálafrömuður og mæður. Nokkrar eru þær á milli starfa (vinkon- urnar voru ánægðar með þetta orðatil- tæki og notuðu það mikið). Þær sögðust ánægðar með það svona í upphafi árs að eitthvað nýtt væri að taka við hjá þeim. „Við getum leitað hver til annarrar með ýmislegt,“ segir Fanney. Og þær bæta við: „Við getum ágætlega nýtt hver aðra þar sem störfin eru fjölbreytt innan hópsins. Það er þægilegt og þannig munum við líka hver aðra. Félagsskapurinn er því mjög þarfur.“ Það á eitthvað eftir að fækka í „Mafí- unni“ næstu mánuðina en allar skila vin- konurnar sér einhvern tímann aftur. „Það er rosalega gaman að fá alltaf að koma aftur,“ segir María. „Já, hér er sönn byggðastefna í gangi,“ má greina úr hlátrasköllunum og vinkonurnar sam- sinna því enda taka þær alltaf vel á móti þeim sem koma aftur heim. 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.