Vikan - 18.01.1999, Blaðsíða 42
Smásaga
hefði aldrei fengið þessa kaup-
hækkun ef ég hefði ekki heillað
herra Baker upp úr skónum. Auk
þess hittir maður svo margt in-
dælisfólk. I fyrra eignuðumst við
fyrir vini - eða kynntumst í það
minnsta - hjónum sem búa í Éal-
ing. Hann vinnur við kvikmynda-
gerð.
- Hann er tökumaður, sagði
Francis sem þurfti alltaf að vera
nákvæmur.
- Já, ég sagði að hann ynni við
kvikmyndir. Þau buðu okkur í
samkvæmi og hvern haldið þið að
við höfum hitt þar?
- Herra Baker? spurði Mary eft-
ir helst til langa þögn.
- Hvernig datt þér það í hug? En
það sýnir að ég hef rétt fyrir mér
og það kæmi mér ekki á óvart að
Francis yrði gerður að innkaupa-
stjóra fyrst þeir vita að við erum
vön að umgangast útlendinga. Ég
hef verið að hvetja hann til að
læra frönsku.
- Ég kann ekki stakt orð í
frönsku, sagði Francis. - Og ég
þoli heldur ekki þetta tungumál.
- En frú Rogers talar málið svo
fallega, sagði Betty.
- Hún er biluð, sagði Francis
góðlátlega og átti við konu sína.
- Hún eyðir hálfu árinu í að
sauma föt fyrir þessar þrjár vikur
á ströndinni og það sem eftir er af
árinu fer í að búa til jólagjafir úr
afgöngunum. Allur hennar tími
fer í þetta.
- Já, en það er nú svo gott að
gefa persónulegar gjafir, sagði
Betty.
- Ef þú vilt eyða tíma þínum á
þennan hátt þá ætla ég ekki að
banna þér það, sagði Francis.
- Það skiptir mig engu máli.
Þetta er þitt líf.
- Þeir eru alls ekkert þakklátir
fyrir allt sem við gerum fyrir þá,
sagði Betty með tárin í augunum
og reyndi að höfða til samúðar
eldri konunnar. - Ef ég væri ekki
eins og útspýtt hundsskinn hefð-
um við ekki ráð á að umgangast
þá vini sem við höfum eignast.
En Mary Rogers var staðin upp.
- Ég held að ég ætti að koma mér
í bólið. Góða nótt herra og frú Cl-
arke, sagði hún. Án þess að virða
eiginmann sinn viðlits gekk hún á
braut.
Tommy flýtti sér að ná í þjón og
borga fyrir matinn. Svo kvaddi
hann ungu hjónin í skyndi og
hraðaði sér á eftir konu sinni.
Hann náði henni þegar hún var
42
komin góða spöl upp eftir stígn-
um. Það var stjörnubjart og
pálmatrén bærðust í mildri kvöld-
golunni. - Satt að segja var þetta
ekki sérlega kurteislega gert,
sagði hann reiðilega.
- Ég þoli þetta einfaldlega ekki,
sagði hún. Röddin var hvöss en
gráturinn var skammt undan.
Hann leit á hana undrandi á svip
og lét hana í friði.
En daginn eftir fór hann aftur í
veiði með ungu hjónunum. Fyrir
Mary var fríið búið. Hún var farin
að pakka saman og fór ekkert á
ströndina þann daginn.
Um kvöldið sagði hann: - Þau
vilja endurgjalda okkur máltíð-
ina.
- Farðu bara, ég er þreytt.
- Já, það ætla ég að gera, sagði
hann þrjóskur. Hann fór og kom
seint heim.
Heimferðin hófst snemma næsta
morgun. Þau stóðu á brautarpall-
inum innan um fjölda fólks sem
barmaði sér hástöfum yfir því að
fríið væri búið. En ekki Mary!
Um leið og lestin kom steig hún
um borð og lét Tommy eftir að
kveðja hóp af Englendingum sem
hann hafði greinilega náð að
kynnast um nóttina. í þann mund
sem lestin átti að leggja af stað
komu Clarke-hjónin hlaupandi á
sundfötum til að kveðja. Mary
kinkaði kuldalega kolli til þeirra
og hélt svo áfram að ganga frá
farangrinum. Svo fór lestin að
hreyfast og Tommy kom til henn-
ar.
Klefinn var fullur af fólki sem
gaf þeim átyllu til að talast ekki
við. En þögnin stóð allt of lengi.
Tommy horfði áhyggjufullur á
hana meðan hann reyndi að
spjalla um veðrið sem varð verra
og verra eftir því sem norðar dró.
I París voru fimm tímar milli
lesta. Þau gengu niður að Signu
og rákust á flóamarkað þar sem
hún staðnæmdist hjá leirmuna-
sala.
- Nei sko, sjáðu stóru skálina
þarna, sagði hún og röddin var
aftur orðin lifandi og full af hlýju,
- þessa stóru rauðu þarna. Sú færi
nú vel við jólatréð.
- Já, satt segirðu, farðu bara og
kauptu hana, gamla mín, sagði
hann og það leyndi sér ekki að
honum var létt.
Þröstur Haraldsson þýddi.
(Úr smásagnasafninu The
Habit of Loving)
Hver veit?
1. Hver leikur hellisbúann í sam
nefndu leikriti?
2. Hvaöa sjúkdómur er Schizofrenia?
3. Botnaðu: Sveltur sitjandi kráka.
4. í hvaöa hrauni er Víögelmir?
5. Hvaö eru St Bernard, Weimeraner
og Pug?
6. Úr hverju er ilmefnið Musk unnið?
7. Hvaö þýöir þýska orðið Tafelwein?
8. Hvaö heitir hundurinn hans Tinna?
9. Viö hvaöa götu bjó Sherlock
Holmes?
10. í hvaöa drykk er m.a. notað
Tequila og Lime safi?
11. Hvaö veldur því aö maís veröur aö
poppkorni?
12. Á hvaöa fingri vaxa neglur hraöast?
13. Hvaöa litur er í fánum allra mú
hameðstrúarmanna?
14. Úr hvaöa vatni fellur Öxará?
15. Hvaöa frelsishetja sagöi „ Ég á
mér draum“?
16. Systir hvaða heimsfrægu leikkonu
skrifaöi bókina Eiginkonur í
Hollywood?
17. Hver var fröken Hnallþóra?
18. Hvaö heita synir John Lennon?
19. Hvort vaxa bananar upp eða niöur
á trénu?
20. Hvaö heitir íslenski þjóösöngurinn?
O)
C
0
O)
O
0
H
o
o
0
c
o
'O
n
0
O)
r to.É
X3 *0 03
cí ci
™ ® 2. e
o) td ra e
o c ® _
° S- 2 (3 tr ,
E o c E -d 2 g
ra a, 9 w o >, o
=3
0 .
X '
: ■£ c
C/)
_Q 0
-Q •
í/)
C
0
-Q.
E
3
c
tn
. 'o
v3 E
0 o
p-=
O)
c
o
3 §
C »
!3 <S
co i:
=
ö 5
O —
cn c <2
c ra
^ ° m c
7 2? ra
- | L
= œ c o> ® 3
—1 _ o o 0)
S C .2 -§ c > .§
11 -s s J í |
^ -3 X -3 H _j
Q.
CL
t-WCON1D(ONCOO)t-
CMCON'tnCONCOCDO
T-T-T— T— T-T-T— T-C\J