Vikan - 18.01.1999, Síða 48
Spurningar má senda til „Hverju svarar læknirinn?" Vikan, Seljavegi 2,101 Reykjavík. Fariö er meö öll bréf sem triínaðarmál og þau birt undir dulneíni.
15 ára og kynlífið
Kæri Porsteinn lækn-
ir.
Ég er 15 ára og ég hef
nokkrum sinnum sofið
hjá 2 strákum. Þeir
hafa alltaf fengið sitt en
ég fæ ekkert út úr þessu og
ef eitthvað er, er þetta sárt
í| frekar en gott. Vinkona mín sem
er einnig 15 ára, er með strák og
hún fær alltaf fullnægingu. Hún
ráðlagði mér að vera ofan á og ég
gerði það en það var ekkert betra.
Allar aðrar vinkonur mínar sem eru
15 ára eru að prófa allskonar nýjar stell-
ingar og allt er frábært á meðan ég fæ
ekkert út úr neinu. Getur þú ráðlagt
mér? Er þetta bara ég eða eru fleiri með
sömu vandamál? Er ég með svona litla
kynhvöt? Er hægt að þjálfa kynhvötina?
Þá hvernig? Með ósk um svar
frk. kynlífsvandamál.
Kæra 15 ára
Veistu að þetta er eitt algengasta
áhyggjumál kvenna á öllum aldri. Marg-
ar vilja ekki viðurkenna það, en svo eru
líka aðrar sem bara tekst að fá fullnæg-
ingu fyrirhafnarlítið. Stór hluti þess að
upplifa fullnægingu er að þekkja sjálfa
sig og leyfa sjálfri sér að láta undan upp-
lifuninni, tilfinningunni sem fylgir full-
nægingu. Við erum öll með mismunandi
bakgrunn, stundum höfum við fengið já-
kvæð skilaboð um kynlíf og snertingu en
stundum neikvæð eða jafnvel mjög slæm.
Mikilvægast fyrir þig núna er að læra
að þekkja sjálfa þig og þinn líkama, læra
hvað þér finnst gott og hvar er gott að
láta snerta sig. Þetta þarftu allt að vita til
að njóta kynlífs með öðrum og til að geta
sagt þeim aðila hvað þér þykir gott og
hvað þú þurfir langan tíma til að fá full-
nægingu. Ég er að tala um að þú finnir
tíma til að vera ein og örugg með sjálfri
þér, upplifa þinn líkama og fá fullnæg-
ingu sjálf, því þannig veistu að þú gelur
það og lærir hvað þarf til. Það er þó einn
hlutur sem ekki verður gerður einn og
sér og það er að vera ástfanginn og láta
ástina framkalla löngun og fullnægingu í
kynlífinu og mundu að þú getur fengið
fullnægingu auðveldlega aftur og aftur,
sem strákar eiga erfiðar með að fá.
Gagnkvæm tillitssemi er grundvallarat-
riði í hverju sambandi og á það jafnt við
þegar kemur að fullnægingu og sársauka
sem getur fylgt samförum. Mundu að
láta tilfinningar þínar ráða ferðinni,
stundaðu kynlíf þegar þér finnst þú vera
tilbúin á þínum forsendum, því stundum
meiðir maður tilfinningar sínar í sam-
böndum sem ekki ganga vel. Kynlífi fylg-
ir líka hætta á kynsjúkdómum og ótíma-
bærri þungun, það er nógur tími til að
eignast barn síðar. Skrifaðu hiklaust aft-
ur ef þér eða öðrum finnst þurfa frekari
skýringar á einhverju varðandi þetta eða
viljið koma á framfæri einhverjum upp-
lýsingum.
Njóttu þess að vera 15 ára,
flýttu þér hœgt.
Þorsteinn
Af hverju er lungnabólga svona algeng?
Ágæti Þorsteinn Njálsson
Ég hef heilmikinn áhuga á heilsumál-
um og les mér til um ýmislegt varðandi
heilbrigði, sjúkdóma, lífsstíl og annað.
Það er eitt sem ég finn hvergi svar við;
það er útskýring á því hvers vegna
lungnabólga er orðin jafn algeng sem
raun ber vitni. Hér í eina tíð var það
mjög alvarlegt mál að fá lungnabólgu,
eins og við þekkjum úr sögunni og svo
virtist þetta vandamál að mestu hverfa
hjá Islendingum, en nú er töluvert um
lungnabólgu. Vinafólk mitt greindist
með lungnabólgu um mitt sumar og
dóttir mín og dótturdóttir fengu alvar-
lega lungnabólgu í haust. Hvað er hér á
ferðinni? Hefur þetta lifað með þjóðinni
en verið greint vitlaust til þessa eða af
hverju er þessi sjúkdómur orðinn svona
algengur? Gaman væri að fá þitt álit á
þessu.
Ein fróðleiksfás
Kæra fróðleiksfús
Það er einmitt á þennan hátt sem mestu
framfarir læknisfræðinnar hafa orðið.
Fróðleiksfús og athugull einstaklingur
tekur eftir breytingum í umhverfi okkar.
VIKAN
ÞORSTEINN NJÁLSSON
HEIMILISLÆKNIR
Það mættu vera fleiri eins og þú.
Lungnabólga hefur vafalaust fylgt mann-
kyninu alla tíð, farið illa með marga og
valdið, hér á árum áður, ótímabærum
dauðdaga hjá mörgum. Síðan um og upp
úr seinni heimstyrjöldinni fóru hins veg-
ar fúkkalyfin að breiðast út og þá virt-
umst við vera að ná yfirhöndinni.
Lungnabólga hefur samt haldið áfram að
hrjá okkur og veldur áfram dauðsföllum
hjá þeim sem veikir eru fyrir. Hin seinni
ár hefur hins vegar tilfellum lungnabólgu
fjölgað sem t.a.m. tjölónæmar bakteríur
valda. Þetta eru bakteríur sem þola öll
venjuleg fúkkalyf og jafnvel öll þekkt
fúkkalyf þó það sé reyndar sjaldgæfara.
Þessar bakteríur eru taldar tilkomnar
vegna of mikillar notkunar lækna á
fúkkalyfjum. Afbrigði af bakteríum
koma fram sem þola fúkkalyfin. Rann-
sóknir gefa hins vegar til kynna að þess-
ar bakteríur hverfi smá saman úr um-
hverfi okkar ef við getum forðast eða
dregið mjög mikið úr fúkkalyfjanotkun.
Ég ráðlegg þér að hlusta á sjálfa þig og
líkama þinn þegar og ef þú veikist. Hvíla
þig og fara vel með þig meðan veikindin
ganga yfir, þannig dregur úr líkum á því
að líkami þinn þurfi á hjálp að halda,
eins og fúkkalyfjum, til að komast yfir
sýkingar. Algeng ástæða þess að við
læknar erum beittir þrýstingi til að fá
fúkkalyf er að viðkomandi má ekki vera
að því að vera veikur. Megum við virki-
lega við því að fá yfir okkur fjölónæmar
bakteríur? Er ekki tími til kominn að
hlusta á sjálf okkur, draga fram gömlu
góðu ráðin, vitið þið að þau duga mjög
vel? Finnst þér nokkuð skrýtið að al-
menningur og læknar séu farin að horfa í
kringum sig eftir öðrum eða samhliða
aðferðum. Hvað bætir til dæmis varnir
líkamans, hvað eflir líkamann, hvaða
mataræði er hentugt fyrir okkur, hvernig
á umhverfi okkar að vera, hvað hefur
áhrif á heilsu okkur, svo fátt eitt sé nefnt.
Sœl að sinni
Þorsteinn
48