Vikan - 18.01.1999, Blaðsíða 52
'JÖRNUslúður..
TEXTI: SÆVAR HREIÐARSSON
FELL FYRIR FLOSKUNNI
Kathleen Turner var eitt sinn talin kyn-
þokkafyllsta leikkonan í Hollywood en nú
er hún bara fyllsta leikkonan í kvik-
myndaborginni. Þær fréttir berast nú að
Turner sé niðurdregin og eyði öllum
stundum í áfengissull, ýmist heima hjá
sér eða ein á veitingastöðum þar sem
hún drekkur stíft með matnum. Hún fær
líka heimsendar vodkaflöskur hjá áfengis-
sala í nágrenni við heimili sitt. Kunnugir
segja að leikkonan hafi þjáðst af liðagigt
og lini sársaukann með því að drekka sig
fulla. Náinn vinur hennar segir í viðtali
við bandarískt vikurit að það sé sorglegt
að horfa upp á ófarir leikkon-
unnar. „Hún er mjög hæfileik-
arik leikkona en hefur glatað
mörgum tækifærum með
þessu ástarævintýri með vín-
flöskunni," segir vinurinn.
HÆTTUR HJÁ SÁLA
Sérvitringurinn Woody Allen
segist ekki lengur þurfa á
hjálp sálfræðings að halda.
Woody hætti að hitta sálann
sinn eftir að hann giftist fyrr-
verandi stjúpdóttur sinni, Soon-Yi. Það
þýðir þó ekki að
myndirnar hans
hafi breyst. I þeirri
nýjustu, Celebrity,
leikur Kenneth
Branagh tauga-
veiklaðan blaða-
mann sem lendir í
ástarævintýrum
með fögrum og
föngulegum meyj-
um, sem Melanie
Griffith, Winona
Ryder og Famke
janssen leika.
Woody segist sjálf-
ur mundi
smellpassa í aðal-
hlutverkið - ef
hann væri bara
þrjátíu árum yngri.
íslandsvinurinn john Travolta er með fullan kassa af . i
giftingarhringum við rúmstokkinn hjá sér. „Ég týni
svo mörgurn," segir Travolta. Eiginkona hans, leik- 3
konan Kelly Preston, segir að Travolta takist alltaf
að týna hringnum sínum - í heilsuræktinni, í bíln-
um, í matarboðum og í kvikmyndaverinu. „Stundum .•ÆLi
finnum við þá aftur,“ segir Preston. „Ég veit að i8|if Æ
hann er ekki að halda fram hjá.“ Travolta er ekki V'iW jj|
fyrsti leikarinn sem hún hefur verið í tygjum við.
Preston var um tíma með George Clooney og var trúlofuð Charlie Sheen áður en hún
féll fyrir Travolta. „Ég er ánægður með að hún var í þessum samböndum því hún ger-
ir sér þá enn betur grein fyrir hvað hún vill og hvað ekki,“ segir Travolta.
STiUPINN ER DÆMDUR
Tll
10
MORÐINGI
Þegar harðjaxlinn Sylvester Stallone fylgdi
móður sinni, Jackie Stallone, til altaris í
nóvember, lýsti hann ánægju sinni með
að hún hefði fundið hamingjuna með
taugaskurðlækninum Stephen Levine. En
nýi stjúpfaðir kraftakarlsins býr yfir
miklu leyndarmáli sem Sly komst að fyrir
skömmu. Levine var
kærður fyrir að myrða
fyrrum eiginkonu sína,
Myrnu, árið 1984. Hún
lést eftir ofneyslu lyfja
sem hann hafði útveg-
að henni. Levine lét yf-
irvöld ekki vita af and-
látinu og fékk bróður
sinn, sem einnig er
læknir, til að skrifa
dánarvottorð þar sem
hjartaáfall var sagt
banameinið. Ættmenni
eiginkonunnar komu lögreglunni á sporið
og Levine var handtekinn. Hann samdi
við saksóknara um málalok þar sem hann
gekkst við manndrápi af gáleysi og sat
sex mánuði í fangelsi. Levine missti einnig
læknisleyfið en hefur fengið það á ný.
Hann er nú 55 ára, 14 árum yngri en
Jackie.
yiLDI FARA AFTUR
I FANGELSI
Hórumamman Heidi Fleiss hefur setið í
fangelsi síðustu tvö árin fyrir samsæri,
skattsvik og peningaþvætti en hún komst
í heimsfréttirnar þegar flett var ofan af
vændishring hennar í Hollywood með eft-
irminnilegum hætti. Undir lok síðasta árs
var hún flutt úr fangelsinu í athvarf í Los
Angeles þar sem henni bauðst að dvelja
það sem eftir var fangavistarinnar. Henni
var úthlutað
vinnu sem af-
greiðsludama í
verslun en þurfti
að mæta í at-
hvarfið strax eftir
vinnu. Fleiss
fannst frelsið ekki
mikið og bað yfir-
völd um að skila
sér aftur í fangels-
ið. Hún sagðist
ekki fá frið fyrir
karlmönnum í at-
hvarfinu og fannst
vinnan ömurleg.
Áður en hún fór aftur á bak við lás og slá
brá hórumamman sér þó á hárgreiðslu-
stofu og lét lita gráu hárin sem höfðu
sprottið á meðan hún var í fangelsinu.
AFMÆLISBORN VIKUNNAR
18. jan.: Kevin Costner (1955) 19. jan.: Dolly Parton (1946),
20. jan.: Skeet Ulrich (1969), Stacey Dash (1966) 21. jan.:
Emma Bunton (Baby Spice) (1976), Geena Davis (1957), Jill
Eikenberry (1946), Placido Domingo (1941) 22. jan.: Diane
Lane (1965), John Hurt (1940) 23. jan.: Tiffany-Amber Thiessen
(1974), Rutger Hauer (1944), 24. jan.: Nastassja Kinski (1961)
26. jan.: Eddy Van Halen (1957), Paul Newman (1925) 27. jan.:
Bridget Fonda (1964), Mimi Rogcrs (1956), Michael Baryshnikov
(1948), James Cromwell (1940) 28. jan.: Elijah Wood (1981),
Edward Burns (1968), Alan Alda (1936) 29. jan.: Sara Gilbert
(1975), Heather Graham (1970), Oprah Winfrey (1954), Tom
Selleck (1945) 30. jan.: Vanessa Redgrave (1937), Gene Hack-
man (1930) 31. jan.: Minnie Driver (1971), Anthony LaPaglia
(1959), Kelly Lynch (1959), Phil Collins (1951).
Kevin Costner verður 44
ára þann 18. janúar.