Vikan


Vikan - 01.02.1999, Page 48

Vikan - 01.02.1999, Page 48
Þórunn Stefánsdóttir tók saman LÁTT U ÞÉR LÍÐA V E L ! hlaupaskónna þinna næst þegar þú gleymir þér í um- ferðinni en nærð að bremsa áður en þú keyrir á næsta bfl. Ef þú værir ekki í góðu formi hefði örugglega getað farið verr. Sýnt hefur verið fram á að líkamlegt form og öryggi í umferðinni fer sam- an. I könnuninni voru 31 kona látnar taka þátt í æfinga- prógrammi með þolfimi, leikfimi og hlaupum. Ári seinna hafði viðbragðsflýt- ir, fimi og jafn- vægi þeirra aukist til muna. Samanburðarhópur, sem ekki tók þátt í líkams- þjálfun, stóð sig ekki eins vel. Niðurstaðan er sú að viðbragðsflýtir og gott lík- amlegt ástand haldast í hendur. ÚT MEÐ ÞIG! Finnst þér þú alltaf vera þreytt? Hér áður fyrr hefði þér, og öðrum sem þjást af þrálátum þreytueinkennum, verið sagt að leggjast upp í rúm og slaka á. En nú er öldin önnur. I British Med- ical Journal mátti lesa þetta á dögunum: Sjúklingar sem eru látnir í líkamsþjálfun sem aukin er smátt og smátt fá fyrr bata en þeir sem eru látnir hvíla sig. Því þjálfunin kem- ur til góða þegar til lengri tíma er litið. BRAGÐGOTT HJALPARTÆKI 66% minni líkur eru til þess að fólk sem drekkur kaffi fremji sjálfsmorð en þeir sem halda sig frá þeim eðaldrykk. Þetta stendur skrifað í blaðinu Illusterad Vetenskap og þar er vísað í bandaríska könnun. Maður get- ur því greinilega lát- ið eftir sér að njóta kaffibollans með góðri samvisku. VILTU JFÁ AÐ SOFA I FRIÐI? Gefðu honum þá kvöldmat sem inni- heldur mikla fitu. Rannsókn sem fór fram við Utah Medical Center sýndi að eftir fituríka máltíð minnkaði styrkleiki karl- kynshormónsins testosteron um 30%. Hjá karlmönnum, sem fengu fitusnauðan mat, hélst það óbreytt. 48 Vikan SÆTINDI UM MIÐJAN DAG Það sem við borðum í hádeginu þarf að gefa okkur orku það sem eftir er vinnudagsins svo það er mikilvægt að máltíðin sé rétt saman sett. Gættu þess að fá kolvetni úr fæðunni og slepptu fitunni. Þetta þýðir að þú mátt gjarnan borða grófa brauðsneið með marmelaði eða hunangi, en slepptu því að nota smjör á bauðið. Oft þegar við finnum að orkan er að yfirgefa okkur ALLT ER ÞEGAR ÞRENNT ER Langar þig í þríbura? Þá skaltu bíða með það að verða ófrísk þangað til þú nálgast fertugs- aldurinn. Möguleik- arnir á að fertug kona eignist þríbura eru 17 sinnum meiri en hjá mjög ungum konum og sex sinnum meiri en hjá konum á þrí- tugsaldri. Þetta sýnir könnun sem birtist í tímaritinu Population Trends. Miðað er við náttúrulegan getnað, ekki glasagetnað. STÖNDUM SAMAN Ófrískar konur sem reykja reyna að leggja þann óvana á hilluna, alla vega meðan á meðgöngunni stendur. En það er stað- reynd að það getur reynst konunum erfitt að hætta ef eiginmaðurinn heldur áfram að reykja. Við skorum á alla eiginmenn að sýna sam- stöðu og drepa líka í sígar- ettunni. Fundist hefur nikótín í fósturvatni hjá konum sem ekki reykja, en búa með reykingamönnum. Ef pabbinn heldur áfram að reykja er barninu hættara við að fá ofnæmi og öndun- arfærasjúkdóma. Fyrir utan það að hann sýnir barni sínu slæmt fordæmi. freistumst við til þess að fá okkur sætindi. En orkan sem við fáum úr sykrinum hverfur fljótt. Það er betra að fá orkuna með því að borða ferska ávexti, ber eða hunang. Og mundu að það er ekki góð hugmynd að borða súkkulaðistykki í há- deginu! LIKAMSÞJALFUN OGVIÐBRAGÐS- FLYTIR Þér er óhætt að hugsa hlý- lega til líkams- ræktarþjálfar- ans þíns og

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.