Vikan


Vikan - 01.02.1999, Síða 49

Vikan - 01.02.1999, Síða 49
Hverju svarar lœknirinn ? Faðerni Þorsteinn lœknir Eg veit ekki hvert ég á að snúa mér eða hvort þetta er beint mitt mál, en það hvílir svo þungt á mér að ég vona að þú getir svarað mér fljótt. Maðurinn minn á fjögur börn úr fyrra sam- bandi og hefur ekki haft mikið samband við þau, enda búa þau í Reykjavík en við úti á landsbyggðinni. Það hefur nú komið upp að eitt barnanna er ekki sagt vera hans. Hann hefur greitt með þessari dóttur sinni í 11 ár, en nú er hún eftir allt saman ekki endilega hans. Móðirin vill ekki láta rann- saka þetta og við vitum ekki hvort við eigum að láta barnið vita eða hvort hann eigi að láta þetta afskipta- laust. Það væri erfitt fyrir stúlkuna að vita ekki hver er pabbinn og því er henni hlíft við fréttum af þessu óvissa faðerni. En ef hún fær ekkert að vita er þá ekki verið að hætta á að hún gift- ist ættingja sínum og eignist kannski mongólíta? Ég hef áhyggjur af sifjaspellum og þvílíkum hlutum, ef þú skil- ur hvað ég meina. Er rétt að krefjast DNA rannsóknar eða eigum við að láta þetta afskiptalaust? Með fyrirfram þökk, Nátthrafn. Kœri Nátthrafn Ég skil vel að þér sé ekki svefnsamt því þetta er afar erfitt og flókið, tilfinninga- legt og siðferðislegt vanda- mál og það er enginn einn sem kann svarið við því. Ég get einungis sagt þér mína tilfinningu fyrir því hvernig þið ættuð að leysa málið en endanlega eru það foreldr- arnir sem verða að taka af- stöðu. Það er margt sem getur blandast inn í svona mál, samkvæmt minni reynslu, og ekki bara það að faðirinn er búinn að greiða meðlag með barninu í 11 ár. Ég veit nokkur dæmi þess frá mínum starfsferli að full- yrðingum um að börn séu ekki börn föður sé beitt af foreldrunum í skilnaðarmál- um til að ná sér niðri á hvort öðru. I nokkrum til- vikum man ég að um barn var að ræða sem var mjög náið því foreldri sem árásin beindist að. Það virðist stundum ekki skipta máli hvaða meðulum er beitt til að ná sér niðri á fyrrum maka. Þegar svona fullyrð- ingar eru komnar fram tel ég að verði að komast til botns í því, því er það ekki þannig að þjóð veit þá þrír vita? Ef barnið veit ekki nú þegar, án þess að tjá sig um það, að þessi fullyrðing hef- ur komið fram, þá kemst það að því fyrr heldur en síðar. Vanlíðan og óvissa sem kvelur barn og föður hljóta að vera óþolandi og skaðlegar til lengdar. Ég mæli því með því að fá mál- ið á hreint. DNA rannsókn í barnsfaðernismálum er hægt að fá gerða á rann- sóknarstofu Landspítalans. Síðast þegar ég vissi varð að greiða sérstaklega fyrir rann- sóknina en með henni komist þið væntanlega að því sanna. Ég mæli líka með því að þið leitið aðstoðar eða stuðnings fyr- ir ykkur og e.t.v. stúlkuna, ef þið hafið nokkuð um það að segja, á meðan á þessu stendur. , Gangi ykkur öllum vel Þorsteinn Brjóstastækkun Kœri lceknir. Gleðilegt ár! Mér datt í hug að skrifa þér í von um svör við spurningum mínum. Ég hef mikið verið að spá í að láta lagfæra brjóstin á mér, en þau eru orðin vel sigin eftir nokkrar barneignir. Hvernig er best fyrir mig að snúa mér í þessum málum? Við hvern er best að tala um svona mál? Hvernig er svo með fitusog - getur þú sagt mér eitthvað um það? Með von um svör. Kveðja, ein rámlega þrítug. Sœl Veistu að það er þó nokk- uð um að konur láti laga brjóstin sín. Þeir sem fram- kvæma þessar aðgerðir eru lýtalæknar og þeir eru margir mjög færir hér á landi. í þeim tilvikum sem ég sé eru konur einmitt eins og þú sem finnast brjóst sín orðin sigin, en mun oftar konur sem eru í vandræðum með stór brjóst. Þær fá vöðvabólgur og höfuðverki vegna brjóstanna og brjóstahaldaranna. Misstór brjóst eru líka vandamál margra kvenna. Ég sé sjaldnar konur sem vilja brjósta- stækkanir enda geri ég ráð fyrir því að þær leiti frekar | beint til lýta- læknanna. Sjúkratrygging- i arnar taka ekki þátt í svona að- \V gerðum nema að brjósta- vandamál- ið valdi sálarleg- um eða lík- amlegum vandaræðum, Þorstcinn Njálsson heimilislæknir eftir því sem mér skilst. Þannig eru brjóstastækkanir líkast til alltaf borgaðar af konum sjálfum og líklega aðgerð á signum brjóstum líka. Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um brjóstaað- gerðir þá ráðlegg ég þér ein- dregið að leita til lýtalæknis og spyrja hann síðan í þaula um aðgerðina, árangur, hættu á ýmis konar vanda- málum eins og örmyndun og sýkingum, farðu síðan heim, hugsaðu málið og taktu svo ákvörðun. Brjóst- in þín eru þér mikilvæg sem konu, þau eru hluti af þér og þinni ímynd sem konu og kynveru. Ég hef rætt við margar konur sem eru mjög ánægðar með að hafa farið í aðgerð, en tek það líka fram að það er alltaf áhætta sem fylgir aðgerðum. Fitusog er stundað af lýta- læknum hér á landi eins og víða annars staðar. Þeir gefa upplýsingar um það og hvað á við hvern og einn sem óskar eftir því. Fitusogi geta fylgt aukaverkanir og því mikilvægt að fara og hitta lýtalækninn, fá nákvæmar upplýsingar hjá honum um árangur og aukaverkanir, fara síðan heim og hugsa málið og taka svo ákvörðun. Hér á aftur við að það fylgir áhætta hverri aðgerð. Þorsteinn Spurningar má senda til „Hverju svarar læknirinn?“ Vikan, Seljavegi 2, 101 Reykjavík. Farið er með öll bréf sem trúnaðarmál og þau birt undir dulnefni. Netfang: vikan@frodi.is Vilon 49

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.