Vikan - 01.02.1999, Qupperneq 50
Smásaga Kristínar Jónu Þorsteinsdóttur, Einnar nætur
umslag, sem birtist nýlega í Vikunni, hefur vakið at-
hygli og skapað umræðu um málefni samkynhneigðra.
Vikan hitti Kristínu að máli og fékk að vita meira um
íslenskan raunveruleika homma og lesbía.
Kristín Jóna Þor-
stcindóttir (betur þekkt
undir nafninu Stína
bongó), Ijóðskáld og
tónlistarmaður með
meiru.
Sagan fjallar um
lesbíu og sársauka
hennar eftir að hafa
verið með giftri
konu og orðið ástfangin af
henni. En gifta konan var
eingöngu að leita eftir einn-
ar nætur gamni og var ekki
tilbúin að skilja við eigin-
mann sinn.
Hvað segir þú Kristín, er
algengt að gift fólk fari á
veitingastaðinn 22 við
Laugaveg í leit að ástarœv-
intýri með samkynhneigðu
fólki?
Ég hef nú ekki lent í því
sjálf. Neistinn að sögunni er
frásögn vinar míns sem er
hommi og er nú í staðfestri
sambúð með karlmanni.
Hann gerði mikið af því hér
áður fyrr að hringja í
stefnumótalínu og mæla sér
mót við einhverja karlmenn
á 22. Þetta voru yfirleitt
giftir menn sem voru að
leita að tilbreytingu og
höfðu alls ekki fast sam-
band í huga. Ég hef lítið
stundað barina í nokkur ár,
en ég veit að þetta var
svona. Maður horfði upp á
gift fólk stunda þetta.
í sögunni segir: ''Égveit
hvað þú ert, það stendur
skrifað í hegðun þinni, þú
ert gift og þér hundleiðist og
langar ísmá œvintýri... Þú
hefur engan tíma til að
pikka einhverja aðra upp.
Það er að hrökkva eða
stökkva með það sem þú ert
byrjuð á..."
Já, maður sér að þetta
fólk er ekki komið til að
skemmta sér. Það kemur
inn, er í leit að einhverju og
svo er bara stefnan tekin á
einhvern. Það er ekki verið
að eyða tímanum í kurteis-
ishjal og ekkert verið að
reyna að kynnast viðkom-
andi. Fólk kemur sér beint
að efninu: Hér er ég, mig
langar að sofa hjá þér, ertu
til?
Heldur þú að það sé
margtfólk úti íþjóðfélaginu
sem er samkynhneigt en
vogar sér ekki að viður-
kenna það fyrir sjálfum sér
og öðrum ogfer þá kannski
þessa leið?
Ég held að það sé allt
saman að breytast. Umræð-
ur um samkynhneigð eru
50 Vikan