Vikan - 07.06.1999, Page 44
FJOLDAMORÐ UNDIR
Sólin skein skært á
himninum daginn sem
kakkalakkanir fluttu
inn í íbúðina. Þeir höfðu
búið þar áður, en gefist upp
á sóðaskap fyrri íbúa og
ákveðið að flytja út. Jafnvel
kakkalakkar hafa sína sjálfs-
virðingu. En þeir höfðu til-
finningar til gamla bústaðar-
ins, íbúðin var þægilega
staðsett miðsvæðis í borg-
inni og margir ættingjar
þeirra bjuggu í nágrenninu.
Þeir sendu því einn af ætt-
bálknum út af örkinni þegar
það fréttist að nýr íbúi væri
kominn á gamla staðinn,
sem dag eftir dag bæri inn
fulla poka af marglitum
brúsum merktum Ajax, Mr.
Shine og öðrum framandi og
spennandi nöfnum. Kakka-
lakkarnir höfðu aldrei fyrr
heyrt þessi nöfn, en skýring-
in var líklega sú að nýi íbú-
inn, kona, var útlendingur.
Einnig hafði hún undan-
farna daga rogast upp stig-
ana með stórar járnfötur,
rúllur, kústa og prik. í fötun-
um var eitthvað sem kallað
var málning. Kakkalakkarn-
ir ákváðu að nokkrir úr fjöl-
skyldunni skyldu hafast við í
íbúðinni og athuga hvað þar
færi fram. Þeir komu sér fyr-
ir í dimmum sprungum og
fylgdust spenntir með þess-
ari undarlegu konu. Hvern-
ig hún klæddist stórum
hönskum úr gúmmíi,
næstum því engum
fötum, og batt eitthvað
undarlegt fyrir munn og nef
44 Vikan
meðan hún af mikilli hörku
sprautaði þessum framandi
efnum á veggi og gólf.
Kakkalakkarnir, sem bjuggu
í sjúkrahúsinu í hverfinu,
gátu upplýst að læknarnir
þar notuðu svona útbúnað
við uppskurði. Þeir kinkuðu
kolli með aðdáun þegar þeir
horfðu á hana nota
kíttisspaða til þess að skafa
gamla fitu og óhreinindi úr
eldhúsinu. Samúðarkliður
fór um hópinn þegar hún
réðst til atlögu við klósett-
skálina. Lífið fór að verða
spennandi þegar konan opn-
aði fyrstu járnfötuna, setti
skrýtinn bursta á kústskaft
og byrjaði að strjúka þessu
áhaldi eftir veggjum og loft-
um. Svei mér þá ef þetta er
ekki að verða flottasta íbúð-
in í hverfinu, sögðu þeir
hver við annan. Og ákváðu
að hér eftir yrði þetta þeirra
framtíðarhúsnæði, hér
skyldu börnin þeirra alast
upp. Þegar þeir sáu konuna
leggja frá sér kústskaftið í
síðasta sinn vissu þeir að
þeirra tími var að koma.
Hvað með konuna? Al-
deilis grunlaus um áform
kakkalakkanna fór hún glöð
í bragði til skransalans í göt-
unni, keypti borð
og
stóla og myndir á veggina.
Síðan fór hún til blómasal-
ans, keypti fullt af stórum
plöntum og dreifði þeim um
drifhvíta, fallega íbúðina
Hún leit í kringum sig með
aðdáun, setti Bítlana á fón-
inn, söng hástöfum og steig
trylltan dans. Kakkalakk-
arnir vissu að tími var kom-
inn til þess að láta til skarar
skríða þegar þeir sáu kon-
una útbúa nesti og stinga því
í tösku ásamt sundbol, bók
og handklæði. Hún ætlaði
greinilega að eyða deginum
á ströndinni.
Elsti kakkalakkinn gaf
merki. Og af stað lögðu þeir,
konur og karlar, ungir og
gamlir, feitir og mjóir. Hver
fjölskylda fann sér sinn
samastað, sitt yfirráðasvæði.
Ur öllum hornum heyrðust
ánægjuhljóð. Sumir voru
með tárin í augunum og rifj-
uðu upp gamlar minningar.
Alls staðar mátti heyra:
Manstu... manstu... Mikið
voru þeir hamingjusamir að
vera komnir í gamla bústað-
inn aftur.
Hvað með konuna? Þeir
þekktu hana aftur þegar hún
kom til baka, jafnvel þótt
hún hefði verið of lengi úti í
sólinni og líktist
meira
stórum, bleikum humri en
konunni með kústinn. Þeim
líkaði vel við hana. Þess
vegna komu viðbrögð henn-
ar þeim algjörlega í opna
skjöldu. Þegar hún sá stór-
fjölskylduna skríða upp eftir
húsgögnunum og bókunum
hennar fékk hún taugaáfall.
Þeir skildu ekkert í hljóðun-
um sem komu úr hálsi henn-
ar meðan hún starði á ung-
lingana í fjölskyldunni
klöngrast eftir tölvunni
hennar. Þeir voru nú bara að
velta því fyrir sér hvaða
skrýtna tæki þetta væri. Þeir
hristu hausinn meðan þeir
fylgdust með henni henda
tannburstanum sínum og
einhverjum fötum ofan í
poka og önduðu léttar þegar
hún hljóp út og skellti hurð-
inni á eftir sér. Þessir útlend-
ingar! Líklega var hún óvön
sterkri sólinni og hafði feng-
ið sólsting.
Og hvað um konuna?
Hún settist inn á næsta bar.
Það kom áhyggjuglampi í
augu þjónsins þegar konan
sagðist ætla að fá eina
hvítvínsflösku. Var þetta
ekki örugglega konan sem
bjó þarna í nágrenninu og
kom gjarnan í eftirmiðdag-
inn og drakk eitt hvítvíns-
glas? Eitt glas. Nú sat hún
þarna, illa til reika, eldrauð í
andliti, með gamlan plast-
poka við fætur sér. Þú
meinar eitt glas, er það
ekki? spurði hann
varlega. Eg
sagðist