Vikan - 30.11.1999, Síða 12
Vespan úr "Roman Holiday"
sem Audrey Hepburn lék í
ásamt Gregory Peck og hlaut
óskarsverólaun fyrir.
"Moon River" úr Breakfast at Tiffany's var spilaö í
flutningi hennar sjálfrar.
Hlutirnir á sýningunni voru allir fengnir að láni
hjá sonum leikkonunnar, Sean og Luca og hjá
American Studios, en einnig hjá Hubert de
Givency og Valentino, sem voru nánir vinir Audrey
Hepburn.
[ inngangi aö bók um Audrey Hepburn, sem
gefin var út í tilefni sýningarinnar, skrifar eldri
sonur leikkonunnar, Sean Ferrer, um móöur sína.
Þar segir hann aö fyrst og fremst hafi það verið
hennar innri fegurð, byggð á aga, virðingu fyrir
Áhrif hennar á stíl og útlit heims-
þekktra kvenna voru mikil og
voru Maria Callas og Jackie
Kennedy einar af þeim sem
hrifust af leikkonunni.
öðrum og trú á mannlegt eðli, sem skapaði þann
stíl sem fólk minnist hennar fyrir. Móðir hans hafi
ekki fylgt tískustraumum heldur sótt í hreinar lín-
ur og trúað á einfaldleikann. Hún hafi snemma
fundið sinn stíl og það útlit sem klæddi hana og
því hafi hún ávallt fylgt. Einkunnarorð hennar hafi
verið: „Ekki draga að þér óþarfa athygli með útliti
þínu. Minna þýðir meira." Hún vildi ekki að útlit
hennar segði: „Sjáið mig" heldur „Þetta er ég og
ég er ekkert öðruvísi en þú."
Á þetta trúöi Audrey Hepburn og það er þess
vegna sem hún varð þekkt fyrir fagmennsku, ein-
lægni og hlýju bæði í starfi sínu sem leikkona og
hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. - Einstakur
stíll sagði allt um einstaka konu.
12