Vikan - 15.02.2000, Síða 6
Steingeröur Steinarsdóttir
Myndir Baldur Bragason og Friðrik Örn
María Ellingsen leikkona heiilaði marga með leik sínum í myndinni
flgnesí sem byggð var á sögu flgnesar Magnúsdóttur síðustu konu sem
tekín var af Iffl fyrír morð á Islandi. Örlagasaga flgnesar bessarar gáfukonu, sem
steynti sfálfri sér í svo mikla ógæfu, hefur ieitað svo á hugi fólks löngu eftir dauða
hennar að kona nokkur í Reyklavfk varð ffyrir hví uppúr seinna stríði að flgnes vitjaði
hennar og bað hana um að hlutast til um að bau skötuhjúin, hún og Friðrík, hlytu leg
í vígðri moltí. Þjóðin öli fylgdist með beirra jarðarför rúmrí öld eftir að fólkið dó. Síð-
ar lék María Sólborgu í kvikmyntíinni Dómstíegi en bað var kona sem ekki síður hlaut
erfíð og meinleg örlög. Sagt var að hún fylgdi Einarí Benediktssyni og margir vilja
meína að hann hafi trúað bví sjálfur. Nú hefur María ráðist til atlögu við að túlka aðra
konu sem ekki síður hefur skipað sér sess í hjörtum íslendinga og bað er Salka
Valka, Halldórs Laxness. Hvað varð til bess að María valdí sér betta viðfangsefniP
„Ég las bókina ellefu ára og
þá fannst mér Halldór Laxness
skilja mig voðalega vel. Enda
eru ekki margar bækur skrifað-
ar um stúlku sem verður kona
og ég tala nú ekki um af svip-
aðri næmni. Þótt ég hafi ekki
upplifað sömu hörmungar og
Salka kannaðist ég við margar
tilfinningar hennar. Þetta að
finnast maður asnalegur í lag-
inu og verða yfir sig skotin í
einhverjum strák sem sér mann
Hugsanicga líður
Siilku best eiuni
ekki. Allt frá því að ég útskrif-
aðist úr leiklistardeild New
York háskólans hef ég haft lítið
leikfélag í vasanum sem ég
kalla Annað svið og tek það
upp þegar ég fæ hugmynd sem
ég verð að framkvæma. Salka -
ástarsaga var eitt af þessum
verkefnum, önnur hafa verið
Svanurinn eftir Elizabeth
Egloff, Beðið eftir Beckett,
dagskrá úr verkum Samuels
Beckett og Sjúk í ást eftir Sam
Shepard.
Það getur tekið mörg ár að
gera draum að veruleika og ætli
það séu ekki þrjú ár síðan ég
byrjaði að vinna alvarlega að
því að koma Sölku Völku á
svið. Ég fór að vinna í að fá
sýningarréttinn og afla fjár til
að geta byrjað að vinna leik-
gerð og undirbúningsvinnu. Ég
sá strax fyrir
mér að þetta
ætti að vera
leiksýning
sem sprytti
upp úr bók-
inni en lifði
sjálfstæðu
lífi, væri sem
sagt ekki
bókin flutt
uppi á sviði.
Nú svo mátli
hún heldur
ekki kosta nein ósköp sem
þýddi kannski að þetta þyrfti að
vera pínulítil sýning. Um þetta
leyti var ég að kynnast Hafnar-
fjarðarleikhúsinu og sá að þar
gæti slík sýning einmitt fæðst.
Þar er tiltölulega takmarkandi
leikhúsrými sem nær að víkka
og breikka með dýrmætum
hugmyndum og lítill leikara-
hópur margfaldast á sviðinu
eins og fyrir galdur. Ég fór því
þangað með hugmyndina og
var henni vel tekið og samstarf
hófst.
Hilmar Jónsson leikstjóri
verksins og Finnur Arnar höf-
undur leikmyndar unnu saman
að því að gera leikgerðina.
Þannig fæddist hin myndræna
útfærsla verksins samhliða
þeirri dramatísku og það er lyk-
illinn að sýningunni. Síðan tók
leikhópurinn við og fengum við
að koma með okkar innlegg.
Það er mjög gefandi fyrir leik-
ara að taka þátt í að skapa
svona sýningu ekki síst þegar
svona vel tekst til. Þetta er fal-
leg sýning sem sprettur upp úr
magnaðri sögu og hún hefur
fengið góða dóma, mikla að-
sókn og áhorfendur hrifist
með.“
Ekkí eftirsóknarvert að
vera háð karlmanni
Salka Valka er sérstæð per-
sóna, hún virðist þrá sjálfstæði
ofar öllu og í lok sögunnar færir
hún þá rniklu fórn að senda ást-
ina sína frá sér. Getur María
skilið Sölku og hefði henni
farist á sama veg?
„Það má líta á þetta á ýmsa
vegu. Arnaldur er að veslast
upp í litla þorpinu og hún veit
að hann þrífst ekki þar. Það er
ef til vill ekki góður kostur fyrir
Sölku að vera með Arnaldi
þegar neistinn er slokknaður.
Sumum finnst hún elska hann
nóg til að leyfa honum að láta
draurna sína rætast. A það ber
einnig að líta að Salka er kyn-
ferðislega misnotuð sem barn
og hún á erfitt með að vera í
nánu sambandi, kannski getur
hún það ekki til lengdar? Hugs-
anlega líður Sölku best einni.
Hún hefur upplifað að sjá móð-
ur sína háða karlmanni og
sveiflast til og frá eftir því hvort
hann er að koma eða fara.
Kannski finnst henni það ekki
eftirsóknarvert? Henni líður
Vikim