Vikan - 15.02.2000, Page 29
Ofsótti mig lengi eftir að
við hættum saman
Samband mitt við þennan
dreng entist ekki mjög lengi.
Við áttum illa skap saman og ég
fann að ég var ekki nógu hrifin
af honum til að þola álagið sem
fylgdi samskiptum við hann. Ég
varð fyrir miklu áfalli þegar ég
uppgötvaði að þrátt fyrir að
sambandi okkar væri lokið var
ég ekki laus við sjúku stúlkuna
sem elti hann. Mér barst bréf
sem var uppfullt af ruglingslegu
slúðri um samband okkar og
sterklega gefið í skyn að kyn-
ferðissamband okkar hefði ver-
ið mjög óeðlilegt. Ég varð svo
miður mín að ég reif bréfið í
tætlur og brenndi það. Seinna
komst ég að því að það hefði ég
alls ekki átt að gera. Símtölin
héldu einnig áfram en mamma
og pabbi kærðu og þá linnti lát-
unum um hríð.
Nokkru seinna kynntist ég
manninum mínum og við fórum
að búa saman. I nærri tvö ár
hafði ég fengið algjöran frið og
var mjög ánægð með líf mitt
þegar annað bréf barst eins og
þruma úr heiðskíru lofti. í þetta
sinn hafði ég vit á því að halda
því til haga þótt mér brygði
mjög mikið. Ég var nýbúin að
eignast barn sem var mikið
veikt um þessar mundir og
barðist í raun fyrir lífi sínu. í
bréfinu var gefið í skyn að þessi
fyrrverandi kærasti minn ætti
barnið og það væri getið í fram-
hjáhaldi. Sömuleiðis var mér
tilkynnt að dæi barnið mitt væri
það ekki meira en ég ætti skilið
fyrir að svipta bréfritara lífs-
hamingjunni. Hún sagði einnig
að hún hefði orðið ófrísk eftir
þennan fyrrverandi kærasta
okkar beggja og verið neydd til
að eyða fóstrinu. Léti guð barn-
ið mitt deyja sýndi það réttlæti
hans.
Maðurinn minn varð öskureið-
ur þegar hann las þetta bréf og
sama kvöld byrjuðu símhring-
ingar heim til okkar. Ef hann
svaraði í símann var skellt á en
svaraði ég voru heitingarnar úr
bréfinu endurteknar. Við
hringdum á lögregluna og stúlk-
an var handtekin og sleppt aft-
ur eftir örskamma stund. Móðir
hennar hafði farið niður á lög-
reglustöð og sagt að hún mundi
taka ábyrgð á henni. Geðsjúkur
einstaklingur á auðvitað ekki
heima í fangelsi en þegar hún
birtist í bíl fyrir utan húsið hjá
okkur nokkrum mínútum síðar
var okkur nóg boðið.
Neyddi loreldrana til að
leggja hana inn
Ég gat ekki þolað þessa tauga-
spennu. Barnið mitt lá dauð-
veikt uppi á spítala og ég á
stöðugum hlaupum milli sjúkra-
hússins og heimilisins. Hatur
þessarar stúlku á mér virtist
auk þess svo mikið að ég gat
trúað henni til hvers sem var.
Við hringdum aftur á lögreglu
og kröfðumst þess að þeir sæju
til þess að hún yrði lögð inn á
sjúkrahús. Ef það yrði ekki gert
myndum við kæra hana og láta
setja hana í fangelsi. Þetta varð
til þess að foreldrar hennar létu
svipta hana sjálfræði og leggja
inn.
Barnið mitt náði heilsu og ég
fékk það heim nokkrum vikum
seinna. Manninum mínum
bauðst góð staða úti á landi og
við fluttum þangað um tíma.
Árin okkar þar voru yndisleg
og við fengum frið til að njóta
lífsins. Við fluttum aftur í bæinn
fyrir nokkrum árum síðan og ég
hef nokkrum sinnum mætt
þessari stúlku á götu. í hvert
sinn lít ég fast á hana en hún
þorir lítið að hafa sig í frammi.
Yfirleitt lætur hún sem hún
þekki mig ekki en það hefur
komið fyrir að hún hafi hrækt í
áttina til mín. Einu sinni var ég
með börnin mín þrjú og hún
tók þá til að flissa á þennan
andstyggilega hátt. Þetta er
nánast hljóðlaust hvískur og
hún hristist öll og munnvatnið
frussast út úr henni. Ég flýtti
mér burtu enda losna ég aldrei
fyllilega við óttann þegar ég sé
hana.
Hún er að mínu mati gjörsam-
lega óútreiknanleg. Fyrrverandi
kærasta okkar ofsækir hún enn
og hefur sent honum bréf og
tölvupóst til útlanda þar sem
hann býr nú. Hann er þó hættur
að láta hana komast upp með
það og kærir í hvert skipti sem
Ég flýttí mér burtu
enda losna ég aldreí
fyllilega uið óttann
begarég sé hana.
hún gerir eitthvað. Ég vorkenni
þessari stúlku innilega að vera
haldin alvarlegum sjúkdómi.
Dómgreind hennar er sennilega
engin en undarlegt að foreldrar
hennar skuli ekki hafa tekið
eftir því sem hún var að gera né
getað haft betri stjórn á henni.
En þótt hún sé vissulega veik á
enginn að komast upp með að
ofsækja aðra og gera líf þeirra
nánast óbærilegt. Þjóðfélagið
þarf að skapa leiðir til að
bregðast við þegar svona gerist
því flestir hika við að láta dæma
veika manneskju í fangelsi.
Lesandi segir
Steingerði
Steinarsdóttur
sögu sína
Vilt þú deila sögu þinni með
okkur? Er eitthvað sem hefur
haft mikil áhrif á þig, jafnvel
breytt lifi þínu? Þér er vel-
komið að skrifa eða hringja til
okkar. Við gætum fyllstu
nafnleyndar.
Ileiiiiilisíun}>ið er: Vikan
- „Lífereynslusaga‘% Seljavcgur 2,
101 Revkjavík.
Nelfang: vikan@frodi.is