Vikan - 24.10.2000, Page 20
texti: Gunnhildur Lily Magnúsdóttir
Það geta nú sennilega ekki margir sagt að þeir
hafa gaman af húsverkunum þótt mörgum dugn-
aðarforkum farist þau betur úr hendi en okkur
hinum sem hrýs hugur við uppvaskinu eða
ryksugunni.
í nýlegri breskri könnun kom það fram að eitt
aðalþrætuefni hjóna og sambúðarfólks eru hús-
verkin, þ.e. hver á að gera hvað, af hverju viðkom-
andi gerði ekki það sem hann ,,átti“ að gera og svo
framvegis.
í nútímasamfélagi er sem beturferekki sjálf-
gefið að það sé konan sem vinni meirihluta
húsverkanna, þótt það sé nú víst enn æði oft
raunin, en í þeim tilvikum sem karlinn er dug-
legri en konan fær hann mikla samúð sam-
ferðarfólks sín fyrir hversu duglegur hann er
við heimilsstörfin! Ef þú ert í þessari aðstöðu,
að vera sá sem meira gerir á heimilinu, sama
hvort þú ert karl eða kona, ættir þú að hafa
eftirfarandi ráð bak við eyrað næst þegar heim-
ilsstörfin ber á góma.
Hrósaðu maka þín
um fyrir vel unnin
störf á heimilinu
sem hann er ekki
vanur að vinna.
Ef þú ert reyndari í húsverkunum en maki þinn skaltu
gefa honum skýr skilaboð um hvernig hann eigi að bera
sig að.
Gerið bað sem ykkir tiykir
skemmtilegt
Skiptið verkunum þannig
með ykkur að þið gerið þau hús-
verk sem ykkur þykja skemmti-
legust eða að minnsta kosti
skást. Láttu hann skúra ef þér
finnst það erfitt eða leiðinlegt
en sjáðu sjálf um að þurrka af
og laga til svo allt skrautið,
kertastjakarnir og blómapott-
arnirfari núörugglegaá „rétta"
staði aftur.
Skýr skilaboð
Ef þú ert reyndari í húsverk-
unum en maki þinn skaltu gefa
honum skýr skilaboð um hvern-
ig hann eigi að bera sig að. Þótt
þér þyki sjálfsagt að ryksuga
undir rúm og vitir að ekki á að
setja brjóstahaldara með spöng-
um beint í þvottavélina er ekki
víst að maki þinn viti það. Ef
skilaboð þín eru óskýr og al-
menns eðlis þýðir ekki að fara
í fýlu þótt makinn geri hlutina
öðruvísi en þú vildir.
Nauðsynlegt suigrúm
Það getur hins vegar gert
maka þinn brjálaðan ef honum
finnst þú anda niður um háls-
málið hjá honum og fylgjast
með hverri hreyfingu hans þeg-
ar hann sinnir heimilsstörfun-
um. Þegar þú hefur útskýrt hvað
á að fara saman í þvottavélina
eða hvernig best sé að bóna eld-
húsgólfið skaltu láta maka þinn
algjörlega í friði! Leyfðu hon-
um að vinna á sínum eigin
hraða og eins og honum þykir
best. Ef þú ert of afskipta-
söm/samur verða heimilisstörf-
in eilíft bitbein og makinn gefst
upp á að reyna að vinna sinn
hluta starfans.
Hrós skiptir máli
Hrósaðu maka þínum fyrir vel
unnin störf á heimilinu sem
hann er ekki vanur að vinna.
Þótt þér finnist sjálfsagt að
setja í þvottavélina eða vaska
upp eftir hverja máltíð þarf
maki þinn kannski á örlítilli
hvatningu og hrósi að halda
þegar kemur að þessum verk-
um.
Forðastu nöldur
Er eldhúsið allt í drasli eftir
að maki þinn eldaði kvöldmat-
inn til þess að gleðja þig?
Reyndu að koma því kurteislega
að að það þurfi líka að ganga frá
eftir matinn í stað þess að fara
upp á háa c-ið eða nöldra í hálf-
tíma yfir draslinu.
Lítil uerðlaun
Hvernig væri að taka íbúðina
eða húsið í gegn og ákveða svo
að fara út að borða eða í bíó að
því loknu? Ykkur gengur senni-
lega báðum betur að
klára húsverkin ef þið
hafið ákveðið að verð-
| , launa ykkur að þeim
j loknum.
20 Vikan