Vikan - 24.10.2000, Page 24
Texti: Steingerður Steinarsdó11 i r
Myndir: Gunnar Gunnarsson og Sigurjón Ragnar
Miklar breytingar hafa orðið á stöðu kvenna í
samfélaginu undanfarna áratugi og endur-
speglast það ekki hvað síst í ömmuhlutverkinu.
Hér áður fyrr var algengt að ömmur lifðu fyrir
heimsóknir barnabarnanna og tækju þau jafn-
vel upp á sína arma að nokkru leyti. ímyndin
um hlýju, gömlu konuna í peysufötum með
langar fléttur sem situr á rúmstokknum í bað-
stofunni og spinnur á rokk meðan barnabarnið
situr við fætur hennar og hlýðir á sögur og fróð-
leik er iöngu orðin úrelt og fáum sem dettur
hún í hug lengur. Amman sem bíður með svunt-
una, kakóbollann og heitar kleinur beint úr
steikarpottinum þegar barnabarnið kemur
gangandi í heimsókn til hennar í hríðinni er
heldur ekki sannfærandi lengur. Sú amma tók
barnið í fangið þegar það hafði yljað sér og borð-
að og kenndi því Ijóð og sögur. Þessi mynd er
þó furðu lífseig í myndskreytingum á barnabók-
um enn í dag þótt hún heyri að mestu sögunni
til líkt og hin og ákaflega fáar ömmur sem falla
að henni þótt hugsanlega megi finna nokkrar
langömmur sem bera af henni einhvern keim.
Nútímaamman virðist oftar en ekki vera at-
hafnasöm og glæsileg kona á besta aldri.
Kona sem nýtur lífsins til fulls og hefur ótal-
margt við tíma sinn að gera. Tímarnir breytast
því í þessu tilliti og mennirnir með og hvernig
skyldi nútímaamman rækta barnabörnin og
hver skyldu viðhorf hennar til hlutverksins
vera?
Helga Bjarnason rekur ráð-
stefnuþjónustuna H og H ráð-
stefnur og er oft mjög upptekin
við starf sitt. Helga er jafnframt
fremur nýbökuð amma því hún á
sonarson sem er rétt rúmlega
eins árs og hún segist hvorki
vera margreynd í ömmuhlut-
verkinu né alvön. Helga hefur
þó kynnst því nógu vel til að
geta sagt að henni finnist það
með því skemmtilegasta sem
hún hefur gert um ævina.
„Ég hef ekki passað hann
Aron Björn mikið, enda gefst lít-
ill tími til þess þegar maður er
í sjálfstæðum atvinnurekstri og
þarf oft að vera allt frá sendli
upp í framkvæmdastjóra. Ég
hef þó fengið að njóta samvista
við hann en það er ekki hægt
að segja að það hafi verið nein
kvöð á mér. Ég veit til þess að
sumar ömmur eru stundum dá-
lítið tættar, sérstaklega þær
sem eiga mörg barnabörn. Ungt
fólk þarf mikiðað vinna í dag og
sú barnagæsla sem býðst dug-
ar oft ekki til. Við erum svo
heppin að þannig er það ekki
hjá okkur. Tengdadóttir mín
hefur verið heimavinnandi sl. ár
en var að byrja í námi. Hún er
einstök stúlka sem er ákaflega
góð móðir og hugsar um barn
sitt af kostgæfni. Mér er það
mikil ánægja að passa þegar ég
er beðin um það og líður aldrei
\
i
24
Vikan