Vikan - 24.10.2000, Side 38
JillopspiBJBH JngijQng :jj(a}UBuiBS
panta pízzu
Pizzupantanir eru ekkert gamanmál og margir
eru sveittir og þreyttir eftir að hafa pantað sér
pizzu. Þeim finnst þeir hafi sloppið naumlega úr
frumskógi tilboða og tegunda og eru þeirri stund
fegnastir þegar símtalinu er lokið. Best er að vita
nákvæmlega hvað maður vill og láta freistandi
tilboð ekki slá sig út af laginu. Spurningar eins
og „Viltu ekki fá brauðstangir með?“ og „Viltu
ekki sækja pizzuna og fá aðra fría með?“ koma
mörgum úr jafnvægi. Alhörðustu og vönustu við-
skiptavinirnir eru farnir að kunna á kerfið og finnst
ekkert tiltökumál að panta sér pizzu lengur. Sum-
ir þeirra eru meira að segja farnir að hafa gaman
af því að hringja á pizzustaði og gera smá at í leið-
inni. Ein harðasta hetjan í bransanum segir það
hina bestu skemmtun að hringja t.d. í Domino's,
segjast vera með Hróa hött á hinni línunni og ætla
að kaupa pizzu hjá þeim sem býður betur.
Ef þú hefur gaman af því að skemmta þér á kostn-
að annarra skaltu endilega prófa þessar aðferðir
sem hér koma á eftir.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8
9.
50 góð ráð
til að gera
pizzu pontun
skemmtilegri
Notaðu ýkt mikið slangur
þegar þú pantar pizzuna.
(„Meikaðu eina þokkalega
feita slæsu með plenty tjís
á kantinum ...“)
Búðu til gervikortanúmer
og athugaðu hvort viðkom-
andi taki við númerinu.
Segðu þeim að senda til
þín pizzuna og spurðu
hvort sendillinn geti kom-
ið við á McDonalds og tek-
ið einn „Big Mac“ fyrir þig
í leiðinni.
Ef þú ert með tónvalssíma
skaltu ýta af og til á takk-
ana. Biddu síðan mann-
eskjuna sem er að taka við
pöntuninni að hætta
þessu.
Ljúktu símtalinu með þvt
að segja: „Mundu ... við
áttum aldrei þetta símtal!"
Svaraðu öllum spurningum
með spurningum.
Byrjaðu símtalið á að gefa
upp heimilisfangið þitt og
segðu síðan „Komdu mér á
óvart," og skelltu svo á.
Bættu þessum orðum inn
í samtalið: Afturhalds-
hyggja, Keikó, Bónusferð-
ir, flasa.
Stafaðu það sem þú vilt
sem álegg á pizzuna.
10. Talaðu mjögsmámælt þeg-
ar þú segir sósa og ostur.
11. Stamaðu á öllum p-orðum.
12. Spurðu viðkomandi hvern-
ig hann sé klæddur.
13. Pantaðu 52 pepperoni-
sneiðar og láttu raða þeim
í blómamynstur á pizzuna.
14. Láttu sem þú þekkir við-
komandi. „Vorum við
ekki saman í sumar-
búðum?"
15. Reyndu að leigja
þér pizzu.
16. Spurðu hvort þú
megir eiga pizzu-
kassann. Þegar þau
segja já skaltu þykj-
ast ofsaglöð/ofsaglað-
ur.
17. Þegar þú ert spurð/ur
hvernig þú viljir hafa
pizzuna segðu þá:
„Shaken, not stirred.“
18. Biddu þau um að tvítékka
á því hvort pizzan sé ekki
örugglega dauð þegar hún
kemur út úr ofninum.
19. Hermdu eftir rödd þess
sem tekur við pöntuninni.
20. Biddu um kynþokkaafslátt.
21. Þegar þú ert spurð/ur hvað
þú viljir, segðu þá: „Ehh,
ertu að meina núna ... eða
á pizzuna?"
22. Segðu að þetta sé brúð-
kaupsafmælið þitt og
spurðu hvort sendillinn sé
til í að fela sig í runnunum
fyrir framan hjá þér og
koma konunni á óvart með
pizzunni.
23. Spurðu hvort hægt sé að
senda matseðil heim til
þín.
24. Talaðu eins og þú sért við-
skiptafræðingur og biddu
um uppreiknað verð
pizzunnar með tilliti til
flatra ríkisbundinna vaxta.
25. Pantaðu ... og segðu síðan
að þetta samband ykkar
komi ekki til með að ná
38
Vikan