Vikan - 24.10.2000, Síða 56
Texti: Hrund Hauksdóttir
56 Vikan
Gelneglur mjög vinsælar
Vikunni lék forvitni á að
kynna sér þessi mál nánar og
því var tekið hús á Bergþóru
Eiðsdóttur, eiganda naglastof-
unnar Neglur og List en stofan
hefur notið mikilla vinsælda allt
frá upphafi. Þar er veitt alhliða
þjónusta sem lýtur að hand- og
naglasnyrtingu.
Bergþóra segir að svokallað-
ar gelneglur séu vinsælastar:
,,Þá eru neglurnar snyrtar og
bindiefni sett ofan á þær og að
lokum gel. Með þessu móti
verða neglurnar sterkar og fá
mjög fallegan glans. Sérhver
viðskiptavinur ræður að sjálf-
sögðu hvernig lag hann vill hafa
á nöglunum og „french
manicure'1 er vinsælt hjá okk-
ur enda löngu orðið sígilt. (
,,french manicure" eru
naglatopparnir hafðir hvítir
fremst og fölbleik glanshúð er
sett yfir allar neglurnar. Við
erum einnig með hefðbundna
hand- og naglasnyrtingu fyrir
konur sem eru með eigin negl-
urog bjóðum meðal annars upp
á styrkingu fyrir neglurnar.
Fyrir þær konur sem eiga
erfitt með að safna nöglum, en
vilja gjarnan hafa þær langar,
setjum við toppa fremst á negl-
urnar (sem er eins konar fram-
lenging á nöglunum) og síðan
eru þær sverfðar til í fallegt
form. Að því loknu setjum síð-
Fátt er jafn fallegt og vel
hirtar og fallega lagaðar
neglur. Sumar konur eru
svo heppnar að hafa sterk-
ar og góðar neglur frá nátt-
úrunnar hendi en þær eru
sennilega fleiri sem eiga í
stöðugu basli með þær. í
gegnum tíðina hafa konur
hamast við, með misjöfn-
um árangri, að þjala neglur
sínar og setja þykk lög af
naglaherði ofan á þær í
þeirri von að neglurnar
verði langar og fínar. í dag
er hins vegar komin ný
tækni í naglasnyrtingu
sem gerir konum kleift að
vera með sterkar, langar
og glansandi neglur allan
ársins hring, með afar lítilli
fyrirhöfn.
skiptum við annað fólk, eins og
t.d. viðýmisafgreiðslu-og þjón-
ustustörf."
Fer það ekki illa með neglurnar
að vera með gel á þeim til lengri
tíma?
,,Nei, þær eiga það að vísu
til að þorna aðeins upp, en ég
er mjög vandfýsin og nota ein-
göngu hágæðaefni. Neglurnar
vaxa líka alltaf að nýju, endur-
nýjast rétt eins og litur vex úr
hári."
Er þetta skemmtileg vinna?
,,Já, það finnst mér, annars
myndi ég ekki starfa við þetta!
Sumir halda að þetta sé einhæft
starf en það er mesti misskiln-
ingur. Maður er alltaf að hitta
nýtt fólk og starfið byggist mik-
ið á mannlegum samskiptum.
Það er líka mjög gaman að
hjálpa konum við að fá fallegar
og góðar neglur. Stundum koma
hingað konur sem eru alveg
miður sín út af ástandi nagla
sinna og það er einstakleg góð
tilfinning þegar manni hefur
tekist að gera þær fínar því kon-
urnar varða svo glaðar.
Það er mikið að gera hjá okk-
ur og því er opið á laugardög-
um og einnig höfum við ákveð-
ið að hafa opið til klukkan 9 á
fimmtudagskvöldum.
Nýlega hleyptum við af stokk-
unum förðunaraðstöðu á stof-
unni þar sem boðið er upp á
bæði dag- og kvöldförðun en
þetta er skemmtilegur viðauki
við naglasnyrtinguna."
Neglur og list er að Suður-
landsbraut 52 (bláu húsunum)
og síminn er: 553 - 4420.
an bindiefni, gel og glans yfir.
Þannig verða neglurnar bæði
fallegar og endast lengi. Það er
þó nauðsynlegt að koma reglu-
lega á stofuna til að halda nögl-
unum við."
Hverjir eru viðskiptavinir ykkar?
,,Við fáum alls konar við-
skiptavini," segir Bergþóra
brosandi. ,,Hingað koma kon-
ur sem eru með lélegar neglur
sem hefur aldrei tekist að ná
þeim löngum. Það koma líka til
okkar konur sem eru með ágæt-
is neglur frá náttúrunnar hendi
en nenna ekki að standa í því að
þjala, næra og hugsa stöðugt
um neglurnar eða hafa hrein-
lega ekki tíma til þess. Þeim
finnst afar þægilegt að láta okk-
ur sjá um þetta og vera alltaf
með glæsilegar neglur með svo
að segja engri fyrirhöfn."
Er konum mikilvægt að
hafa vel snyrtar neglur?
,,Já, það er ekki nokkur
spurning," segir Bergþóra
„Sumar konureru með illafarn
ar neglur og eiga þá jafn-
vel til að reyna að fela
hendursínarog verða þvingað-
ar í framkomu. Það veitir
um ákveðið öryggi að
vera með vel snyrtar og
fallegar neglur sérstaklega ef að
þær vinna störf þar sem þær
nota mikið hendurnar í sam-