Vikan - 24.10.2000, Page 60
texti: Gunnhildur Lily Magnúsdóttir
BAKIBAK
Sitjið á gólfinu með hnén bogin en iljar á gólf-
inu, bein í baki og snúið bökum saman. Krækið
handleggjunum svo saman og notið mótstöðuna
frá hvort öðru til að standa upp. Standið kyrr með
fætur bogna í um 90 gráðum í stutta stund áður
en þið setjist hægt niður aftur. Æfingin krefst tals-
verðs styrks og jafnvægis og því er ekki víst að
þið getið gert hana nema örfáum sinnum til að
byrja með.
Þetta ætti að reyna vel á rass og læri!
Ertu ein af þeim sem finnst ákaflega leiðinlegt
að fara í ræktina jafnvel þótt vinkona þín geri
sitt besta til að draga þig með? Hvernig væri að
fá sér nýjan æfingarfélaga sem þekkir hvern
sentimetra af líkama þínum nú þegar, getur
hvatt þig áfram og stutt við bakið á þér í orðsins
fyllstu merkingu? Þú og kærastinn þinn getið
örugglega skemmt ykkur vel saman í líkams-
ræktinni og um leið bætt útlit ykkar, heilsu og
jafnvel kynlíf!
Hér á eftir fara nokkrar góðar æfingar sem þið
AXLIR SAMAN
Til þess að fá flotta bakvöðva og styrkja axlir og upphandleggi
er upplagt að sitja í sömu stöðu og í fyrstu æfingunni. Notið eitt
getið gert saman. Byrjið á að endurtaka hverja
æfingu átta sinnum og endurtakið þær svo oft-
ar eftir því sem þrekið og krafturinn eykst.
hæfilega þungt handlóð, hvort um sig, lyftið handleggjunum
upp í loft og hallið ykkur til hliðar með lóðin. Bök ykkar veita
ykkur stuðning við þessa æfingu og geta þvf hindrað bakmeiðsli.
60
Vikan