Menntamál


Menntamál - 01.03.1950, Blaðsíða 16

Menntamál - 01.03.1950, Blaðsíða 16
10 MENNTAMÁL Miklar framfarir hafa orðið á þessu sviði á síðustu árum. Ýmis konar fötltin má nú ýmist laga að fullu eða ráða stóra bót á, sem áður var vonlaust verk að fást við. Betri og hagkvæmari lyf hafa nú fundizt við ýmsum sjúk- dómum, sem lækna þá eða halda þeim í skefjum. Mikils má vænta og mikið er hægt að gera, ef þekkingu og tækni er rétt beitt. En mein manna, bæði líkamleg og andleg, eru margvísleg, og hinir færustu menn standa oft ráðþrota gagnvart þeim. Mun hér lengi sannast hið fornkveðna: Munu við ofstríð alls til lengi konur og karlar kvikvir fæðast. Ég mun nú reyna að gera grein fyrir nokkrum þeim atriðum, sem þing þetta lagði mesta áherzlu á og flestir eða allir virtust sammála um varðandi uppeldi afbrigði- legra barna almennt. Þingið lagði ríka áherzlu á, að vinna ætti að því í öllum löndum að auka almenna fræðslu um uppeldi og sálarlíf barna. Það nægir engan veginn, þótt einhver þjóð eigi sér- fræðinga á þessu sviði. Fræðsla þessi verður að verulegu leyti að ná til almennings, einkum til foreldra. Uppeldi barna er bæði svo mikilvægt og almennt starf, að nokk- ur þekking á því hlýtur að teljast til almennrar mennt- unar. Ráð til að auka þessa þekkingu meðal almennings eru fjölmörg: Alþýðlegar fræðibækur, greinar í blöð og tímaritum, fyrirlestrar, erindi með ýmsu sniði í útvarp, aukin uppeldisfræðileg kennsla í öllum húsmæðra- og kvennaskólum o. s. frv. Þessi almenna fræðsla er mikil- vægt skilyrði þess, að afstaða almennings gagnvart af- brigðilegum börnum verði réttari og betri. Enda þótt af- staða almennings og þjóðfélagsins gagnvart þessum börn- um sé smám saman að færast í betra horf, er henni samt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.