Menntamál - 01.03.1950, Blaðsíða 65
MENNTAMÁL
59
haldið eiga allir þeir Islendingar, sem fæðzt hafa eftir
1981, að verða sundfærir.
Til þessa höfum við miðað sundskyldualdurinn við 13
ára aldur, en við tilkomu barnaprófs, sem barnið tekur
12 ára, hefur verið ákveðið að láta sundskyldualdurinn
vera 12 ára. Ástæðurnar fyrir þessu eru þær, að reynslan
hefur sýnt, að bezt er að fá börnin til sundnáms 11 og 12
ára; sé ekki sundskyldan bundin við barnapróf færist hún
yfir á unglinga eða miðskólapróf — 14 eða 15 ára — og
myndi án efa verða meiri vanhöld á svo gömlum nemend-
um, vegna vinnugetu þeirra við framleiðslustörf og einnig
að þeir eru komnir úr barnaskóla, en kennarar barnaskól-
anna hafa reynzt ötulir við að koma nemendum sínum til
sundnáms; s. 1. skólaár voru unglingaskólar taldir 44, en
sund kennt í aðeins 6 þeirra; á aldursskeiðinu 12—15 ára
fara nemendur víða bæði sér til gamans og til starfa og
drukknunarhættan víða á vegi þeirra.
Þakka ég samstarfið á líðandi áratug og treysti á átak
ykkar til þess að ná markinu að fullu.