Menntamál


Menntamál - 01.03.1950, Blaðsíða 52

Menntamál - 01.03.1950, Blaðsíða 52
46 MENNTAMÁL Noregi. Hann er formælandi kristilegrar hugsjónahyggju í uppeldismálum. Með gagnrýni sinni, kröfuhörku og óskeldu tungutaki hefur hann verið sívökul samvizka norskra uppeldismála um aldarfjórðung. Hann var yfir- kennari við kennaraskóla um margra ára skeið, en 1925— 1930 var hann fræðslumálastjóri á Hálogalandi og upp frá því skólastjóri hins mikla kennaraskóla á Volda, unz honum var vikið frá embætti af nazistunum á stríðsárun- um. Eftir að kennaraháskólinn í Þrándheimi tók til starfa eftir styrjöldina, hefur hann gegnt prófessorsembættinu við hann í uppeldisfræðum. — Kristvik rektor hefur ritað margt og mikið. Ásamt Noreide rektor gaf hann út kennslu- bók í sálarfræði, og 1920 kom út bókin Hugleidingar um þjóðfélag og menningu eftir hann. Auk þessa hefur hann ritað fjölda greina í blöð og tímarit. En bækurnar þrjár Sálarfræði, Þekking á nemendum og Kennarastarfið eru höfuðrit hans. Sálarfræði er rit í fjórum aðalköflum. Fyrsti kaflinn „Áskapaðar lífshvatir“ fjallar um frumöfl sálarlífsins eins og þau birtast í eðlishvötum mannsins. í öðrum kafla „Áhrifum, sem móta manninn“ er rætt um, hvernig maður- inn lagar sig eftir umhverfinu, um skynjanirnar, og hvern- ig vitundin vinnur úr þessum áhrifum. f þriðja kaflanum „Sköpunarstarfi“ er því lýst, hvernig þau áhrif, sem náð hafa til vitundarinnar, verða „hráefni“ fyrir ímyndun og hugsun, og með hverjum hætti þessir hæfileikar mannsins starfa. Að öðru leyti fjallar bókin um þróun viljalífsins og tekur að síðustu til meðferðar undirstöðu siðgæðisins, vöxt þess og viðgang. Aðaltilgangur bókarinnar er að gefa ungum kennurum „eins ljósa hugmynd og auðið er um sálarlífið í heild, um þær vonir, sem andlegar framfarir bera í skauti sínu fyrir mannkynið.“ Bókin er ekki auðvelt lestrarefni, eins og að líkum læt- ur. Efni hennar er þjappað saman, og hefur það stund-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.